Fréttablaðið - 22.05.2003, Page 18

Fréttablaðið - 22.05.2003, Page 18
22. maí 2003 FIMMTUDAGUR www.NIVEA.com L ASH DESIGNER Fyrsti tvíhliða maskaraburstinn sem gefur tvöfalt lengri og þykkari augnhár. LENGD ÞYKKT Stutta hliðin fyrir takmarkalausa þykkt. Langa hliðin fyrir óendanlega lengd. NYTT! LASH DESIGNER Árið 1999 unnu sjálfstæðis-menn sögulegan sigur í þing- kosningum. Davíð Oddsson, for- maður flokksins, sigldi með 26 sjálfstæðismenn inn á þing, þar af níu konur. Mikið fylgi sjálf- stæðisflokksins kom frá kvenkjósendum og krafa um stærri hlut kvenna var eðlileg og raunhæf. Til forystu var kölluð Sólveig Pétursdóttir, þá 4. þing- maður Reykvíkinga. Hún varð dóms- og kirkjumálaráðherra og fór þar með fyrir þingkonum Sjálfstæðisflokksins. Nú, fjórum árum síðar, er fólk dæmt af verk- um sínum. Dómur kjósenda er af- hroð fyrir Sólveigu Pétursdóttur. Níu manna þing- flokkur kvenna undir hennar for- sæti er í dag fjórar konur. Sólveig tap- aði fimm þing- mönnum úr röðum sjálfstæðismanna. Konur yfirgáfu flokkinn í stórum síl. Davíð Oddsson vann mikinn varn- arsigur með því að halda 22 þingmönnum þrátt fyrir afhroð Sólveigar. Ráðherra ætti hún alls ekki að vera því nýjar konur þarf að skipa í forystusveit sjálfstæðiskvenna ef takast á að rétta hlut þeirra og okkar sjálf- stæðismanna. Af hverju þetta afhroð Sólveigar? Sólveig Pétursdóttir er ekki forystumaður né hefur hún leið- togahæfileika. Hún hefur ekki stuðning grasrótarinnar. Mannleg samskipti eru ekki hennar sterkasta hlið. Sólveig skýtur sér undan erfiðum málum og lætur skósveina og embættismenn svara fyrir gjörðir sínar. Innan ríkisstjórnar virðist hún ekki hafa nokkurn dug til að koma sínum málum í gegn og sama gildir inn- an þingflokksins. Það má reyndar ganga svo langt að segja að aðilar innan þingflokks Sjálfstæðis- flokks, sem ekki eru ráðherrar, hafi meira um stjórnsýslu ráðu- neytis dómsmála að segja en ráð- herra sjálfur. Innan ráðuneytis og stofnana þess hefur ráðherradóm- ur hennar einkennst af átökum, niðurskurði, mistökum og klaufa- gangi. Hættu þessu, Sólveig 529 útstrikanir segja meira en mörg orð í rólegasta kjördæmi landsins. Útstrikanir í öðrum kjördæmum, sem eru að mestu flokkadrættir vegna gömlu kjör- dæma- og sveitarfélagamark- anna, eru hjóm eitt miðað við 529 útstrikanir á Sólveigu Péturs- dóttur. Sólveig var kjörin á þing með 4.676 atkvæði, frá dragast 529 atkvæði eða 11%. Sólveig var flutt úr norðurkjördæmi Reykjavíkur yfir í Reykjavík suður og þar með undir verndar- væng Geirs Haarde, eins öflug- asta og traustasta forystumanns sjálfstæðisflokksins. Þó svo Sól- veig væri í rólegasta og átaka- minnsta kjördæmi landsins og að auki undir verndarvæng Geirs Haarde dugði það henni ekki. Tölfræði og Sólveig Sigríður Anna Þórðardóttir, í þriðja sæti í Kraganum, er með fleiri atkvæði á bak við sig en Sól- veig. Ef reiknaður er hlutfallsleg- ur styrkur atkvæða af kjörfylgi í hverju kjördæmi fyrir sig er Drífa Hjartardóttir með mest fylgi, Sigríður Anna númer tvö, Sólveig í þriðja sæti og Þorgerður Katrín rekur lestina, enda var hún í fjórða sæti á framboðslista í Kraganum. Fylgi og styrkur Sól- veigar eru að engu orðin. Til að efla styrk sjálfstæðiskvenna, og þar með okkar sjálfstæðismanna, þarf að skipta Sólveigu út af. Drífa Hjartardóttir á að verða ráðherra, helst landbúnaðarmála. Sigríður Anna á að verða forseti, helst Alþingis. Þorgerður Katrín hefur sýnt það með störfum sín- um og þekkingu að hún á heima í ráðuneyti, helst menntamála. Hún er framtíðarforystumaður sjálfstæðiskvenna og flokksins. Drífa, Sigríður Anna og Þorgerð- ur Katrín hafa skilning á grasrót Sjálfstæðisflokksins og kjörum og lífi almennings í landinu. Þær hafa einnig til að bera mannúð og tillitssemi fyrir aðstæðum sam- ferðarmanna. Það er styrkur þeirra. Nú er það svo að karlar halda að þeir viti allt. Konur vita betur. Því er það hér með beiðni mín til ykkar. Breytum rétt og snúum vörn í sókn. ■ ■ Fylgi og styrkur Sólveigar er að engu orðið. Til að efla styrk sjálfstæð- iskvenna, og þar með okkar sjálfstæðis- manna, þarf að skipta Sólveigu út af. Þjóðmál maí 2003 BIRGIR ÞÓR BRAGASON ■ skrifar um stöðu Sólveigar Pétursdóttur eftir kosningar. Afhroð Sólveigar Pétursdóttur Þeir sem sóttu tónleika Sinfóníu-hljómsveitar Norðurlands í Íþróttahöllinni á Akureyri 11. maí síðastliðinn, þar sem flutt var Requiem eftir Giuseppe Verdi, urðu vitni að stórkostlegum tón- leikum. Þarna voru komnir saman helstu hljómlistarmenn frá Norð- urlandi ásamt brottfluttum og fleirum. Sýndu þeir og sönnuðu að hér er hægt að gera hlutina með stæl. Þetta var einn stærsti listviðburð- ur sem hefur farið fram á Akureyri hin síðari ár. Þarna komu fram, ásamt h l j ó m s v e i t i n n i , Kirkjukór Akureyr- arkirkju, Kammer- kór Norðurlands og Kirkjukór Lang- holtskirkju ásamt fjórum stórsöngv- urum. Þetta var tímamóta tónlistar- flutningur og lyfti tónlistarlífi Norð- lendinga á annað plan eða kannski frekar upp á annan stall. Slæmar fréttir frá Reykjavík Tónlistarlíf á Norðurlandi á eft- ir að taka miklum framförum næstu árin og ekki síst þegar okkar langþráða menningarhús verður tilbúið. Með ákvörðun um bygg- ingu menningarhúss var stigið stórt skref fram á við og getur bæj- arstjórn Akureyrar verið stolt af þessum tímamótum. En það berast slæmar fréttir af vinum okkar og samstarfsfólki í Reykjavík þar sem stjórnmálamenn ætla enn eina ferðina að draga afturlappirnar með byggingu tónlistarhúss fyrir höfuðborgina og hús sem yrði hið eiginlega tónlistarhús okkar Ís- lendinga. Þetta eru slæmar fréttir og koma illa fyrir okkur sem störf- um við tónlist þar sem starfsvett- vangur hljómlistarmanna er mikill í Reykjavík. Hvað þurfa hljómlist- armenn að bíða lengi í viðbót? Bjartar framtíðarhorfur á Akureyri Á Akureyri eru góðir hlutir að gerast og stjórnmálamenn eru að vakna til lífsins og vonandi átta sig á að tónlist er jafn ómissandi eins og að hreyfa sig. Töluvert hefur verið um að hljómlistarmenn séu að flytja til Akureyrar (greinarhöf- undur er einn af þeim), þar sem framtíðin er björt og miklir fram- tíðarmöguleikar. Metnaður hefur aukist til muna og eru tónleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar sönnun þess. Vitað er að börn hafa gott af því að læra á hljóðfæri og það sem meira er, að barn sem tekur tónlist- arnám sitt alvarlega og hefur hæfi- leika á mikla möguleika á að verða atvinnuhljómlistarmaður. Beinar og óbeinar tekjur af tónlist eru töluvert miklar og eru að skila heil- miklu í ríkiskassann. Snýst ekki allt um það hjá svo mörgum? ■ ■ Það berast slæmar fréttir af vinum okkar og samstarfs- fólki í Reykjavík þar sem stjórn- málamenn ætla enn eina ferð- ina að draga afturlappirnar með byggingu tónlistarhúss fyrir höfuðborg- ina og hús sem yrði hið eigin- lega tónlistar- hús okkar Ís- lendinga. Þjóðmál maí 2003 HALLDÓR G. HAUKSSON ■ formaður Félags íslenskra hljómlistar- manna á Norðurlandi skrifar um aðstöðu tónlistarfólks. Framtíð tónlistarmanna

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.