Fréttablaðið - 22.05.2003, Side 28
22. maí 2003 FIMMTUDAGUR
MANNFAGNAÐUR Aðstandendur krá-
arinnar Grand Rokk hafa verið
duglegir að brydda upp á nýjung-
um í skemmtanalífi Reykvíkinga.
Staðurinn er orðinn eitt helsta
vígi lifandi tónlistar á Íslandi,
þetta er þekktur skák- og pílubar,
þarna eru sýndir fótboltaleikir og
nú er það nýjasta nýtt: Pöbba-quiz
– sem haldið er reglulega upp úr
klukkan fimm á föstudögum og
nýtur sívaxandi vinsælda. Fyrir-
bærið gengur undir vinnutitlinum
„Drekktu betur“.
Óvinsælar Biblíuspurningar
„Þetta er nú ekki neitt splúnku-
nýtt fyrirbæri sem slíkt heldur
nýtur „pub quiz“ vinsælda víða, til
dæmis á Englandi sem og á Ír-
landi,“ segir Freyr Eyjólfsson,
tónlistar- og útvarpsmaður, en
hann hefur haft veg og vanda að
framkvæmdinni. Hér er um viku-
legan gjörning að ræða og felst í
því að kráargestir para sig saman,
tveir og tveir, og síðan er spyrill
sem ber fram þrjátíu spurningar
um allt milli himins og jarðar.
Menn skrifa svörin niður á blað og
síðan skiptast menn á blöðum líkt
og í barnaskólanum í gamla daga –
þegar kennarinn nennti ekki að
fara yfir úrlausnirnar. Enda vísaði
spyrillinn, Davíð Þór Jónsson þýð-
andi, til kennslustofunnar þegar
Fréttablaðið fylgdist með fjórðu
keppninni. Davíð stjórnaði af mik-
illi röggsemi og voru bargestir
ákaflega stilltir – fyrirmyndar
nemendur. Reyndar fór kurr um
salinn þegar þriðja Biblíuspurn-
ingin var borin upp en spyrillinn
sagði að mönnum yrði hiklaust
vísað úr tíma fyrir óþekkt ef svo
bæri undir. Almenn þátttaka var
enda tveir bjórkassar í verðlaun.
„Já, venjan er sú að bjórkassi sé í
verðlaun en til þess að eiga mögu-
leika á kassa verða menn að svara
að minnsta kosti 15 spurningum
rétt. Síðast tókst það ekki, verð-
launin gengu ekki út og því eru
tveir bjórkassar í verðlaun núna,“
segir Freyr.
Spurninganördar velkomnir
Það fór svo að tveir frakka-
klæddir, bissnesslegir menn á
miðjum aldri – svona týpur sem
sjá má á flestum pöbbum Bret-
landseyja á þessum tíma dags –
sigruðu í keppninni með 20 svör-
um réttum. Þeir höfnuðu viðtali og
ljósmyndatöku á þeim forsendum
að þetta væri friðhelgur staður –
athvarf – og þeir höfðu lítinn
áhuga á að auglýsa veru sína þarna
þó þeir væru ákaflega kátir með
árangur sinn. Davíð Þór, sem hljóp
í skarðið fyrir Frey sem spyrill,
segir að stefnt sé að því að mynda
fjögurra manna hóp sem mun
semja spurningar og spyrja hverju
sinni. Næst mun Jón Proppé heim-
spekingur, sem hefur reyndar
sigrað í Pöbba-quizi Grand Rokk,
stjórna keppni. Karl Hjaltested,
eigandi Grand Rokk, sagðist að-
spurður ekki óttast að spurn-
inganördar muni flykkjast á stað-
inn. „Þeir eru varla verri gestir en
aðrir,“ sagði hann og hafði á orði að
með ólíkindum friðsælt væri á
staðnum á meðan Pöbba-quizið
stæði yfir. Davíð Þór þekkir hins
vegar vel til þegar hinir áköfu og
fjölmörgu þátttakendur í spurn-
ingakeppni framhaldsskólanna eru
annars vegar og sagði að ef ein-
hverjir, til dæmis úr þeim hópi,
gerðu sig líklega til að einoka
þennan samkvæmisleik yrðu sett-
ar einhvers konar reglur til að
sporna gegn slíku.
jakob@frettabladid.is
HLJÓÐLÁT
STUND Á
GRAND ROKK
„Það hefur aldrei
verið svona hljóð-
látt hér fyrr,“ sagði
Karl Hjaltested,
eigandi kráarinnar,
sem má sjá fyrir
miðri mynd, en þá
grúfðu menn sig
yfir svör andstæð-
inganna sem í
kennslustofu
væru.
FREYR EYJÓLFSSON OG DAVÍÐ ÞÓR
Glaðir á góðri stundu enda pöbba-quizið hlotið fádæma góðar viðtökur.
„Drekktu betur“
á Grand Rokk
Vikulega er spurningakeppni á Grand Rokk – svokallað pöbba-quiz.
Þessi skemmtun nýtur sívaxandi vinsælda og þó fastir gestir staðarins
teljist síður en svo einhverjir æsingamenn eru þeir með ólíkindum prúð-
ir meðan á keppninni stendur.
puma - nike - adidas - hummel
buffalo london - el naturalista
bronx - le coq sportif
björn borg - face -roots - dna
VERSLUNIN
HÆTTIR
ÚTSALAN
HEFST Í DAG
Allt á að seljast
20-50%
afsláttur
Mikið úrval
K R I N G L A N , S . 5 3 3 5 1 5 0