Fréttablaðið - 22.05.2003, Síða 29
FIMMTUDAGUR 22. maí 2003 25
SPYRILLINN
DAVÍÐ ÞÓR
Hann stýrði pöbba-
quizinu af röggsemi
enda þaulvanur á
því sviði, bæði sem
spyrill í Gettu betur
í Sjónvarpinu og
ýmsum spurninga-
keppnum í útvarpi.
SPURNINGAR Í PÖBBA-QUIZI NR. 4
1. Hvað tónlistarmaður söng inn á mest seldu
smáskífu allra tíma?
2. Hvaða afrek vann Tenzing Norgay?
3. Hverrar þjóðar var Golíat?
4. Hvenær á Ingibjörg Sólrún afmæli?
5. Hvert er algengasta kvenmannsnafn á Ís-
landi?
6. Hvað nefnist miðvikudagur í sjöundu viku
fyrir páska?
7. Hvaða ár voru Ólympíuleikarnir fyrst haldnir
á suðurhveli jarðar?
8. Á hvaða eyju er borgin Cagliari?
9. Sendiráð hvaða ríkis er til húsa í sömu
byggingu og Kvikmyndasjóður Íslands?
10. Fyrir hvað stendur skammstöfunin SMS?
11. Hvað nefnist stærsta tungl sólkerfisins?
12. Hvað nefnist Hrafnshreiður?
13. Hve margar eru þingkonur Framsóknar-
flokksins?
14. Þjóðhöfðingi ríkis, sem var þar sem Jemen
er núna, hafi komið til Salómons konungs til
að ganga úr skugga um hvort hann væri eins
auðugur og vitur og sagnir hermdu. Frá hvaða
ríki kom hann og hvaða titil hafði hann?
15. Á hvaða holti eru Álfaborgir og Vættaborgir
og í hvaða sveitarfélagi?
16. Fyrir hvaða lið keppir Spánverjinn Fern-
ando Alonso í Formúlu 1?
17. Hvaða sögulegi atburður átti sér stað í Par-
ís 28. desember 1895?
18. Hvaða plöntu kalla enskumælandi menn
Íslandsmosa, Iceland moss?
19. Hvaða viskítegund heitir sama nafni og ein
þekktasta klámdrottning nútímans?
20. Í hvaða leikriti segir frá tvíburabræðrunum
Antífólusi í Efesus og Antífólusi í Sýrakúsu og
þjónum þeirra, tvíburabræðrunum Drómíó í
Efesus og Drómíó í Sýrakúsu?
21.Tungumál eitt er ritað með sérstöku stafrófi
sem fundist hefur á áletrunum frá 3. öld fyrir
Krist. Það er elst og þróaðast dravídamálanna,
talað af um 60 milljónum manna, í suðurhluta
Indlands. Hvað heitir tungumálið?
22. Um hvern er fjallað í bókinni „Skrýtnastur
er maður sjálfur“?
23. Fæðingarborg Saddams Hussein heitir?
24. Hvað heitir byggingin sem hýsir Borgar-
bókasafn, Borgarskjalasafn og Ljósmyndasafn
Reykjavíkur?
25. Hverjir eru heimsmeistarar landsliða í ís-
hokkíi karla?
26. Hvaða tvö sveitarfélög var samþykkt að
sameina í kosningunum 10. maí 2003?
27. Hvað varð konu Lots að aldurtila?
28. Hvað heitir persónan sem Keanu Reeves
túlkar í Matrix-myndunum?
29. Eftir hvern er skáldsagan The Hitch Hiker’s
Guide to the Galaxy?
30. Hvaða á rennur á landamærum Texas og
Mexíkó?
Svör á bls. 38