Fréttablaðið - 22.05.2003, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 22.05.2003, Blaðsíða 31
FIMMTUDAGUR 22. maí 2003 31 SÍMI 553 2075 Sýnd kl. 4, 6.30 og 9 SKÓGARLÍF 2 m/ísl tali kl. 6 kl. 10.15 Sýnd kl. 6, 8 og 10 b.i. 12 ára Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.20 RECRUIT b.i. 14 kl. 10.20 Sýnd kl. 6, 8 og 10 SHANGHAI KNIGHTS kl. 4 og 6TÖFRABÚÐINGURINN kl. 4ABRAFAX OG SJÓRÆNINGJARNIR BAD BOY CHARLIE kl. 6, 8 og 10 Sýnd kl. 5.30, 8, og 10.15 b.i. 16 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 b.i. 12 ára BOWLING FOR... kl. 5.40 og 8 2 dagarí Eurovision Magnus Backlund, sem keppirfyrir hönd Svíþjóðar í Eurovision á laugardaginn ásamt Jessicu Anderson í dúettinum Fame, er síður en svo ánægður með rúss- nesku keppinautana í Tatú. Kærust- urnar í rússneska dúettnum eru einna helst þekktar fyrir nautnalega sviðsfram- komu sína, sem á síður en svo upp á pallborðið hjá siðprúð- um Svían- um. „Þær hafa ekkert að gera hérna og mér finnst afskaplega ósmekklegt hvernig þær höfða til barnaníðinga með framkomu sinni“, segir Backlund í samtali við Aftonbladet. „Þegar maður á sjálfur börn finnst manni það mjög óþægilegt að taka þátt í sömu keppni og dúett af þessu tagi.“ Breskir fjölmiðlar hafa greint fráþví að Tatú hafi fengið ströng fyrirmæli um að hegða sér skikkan- lega þegar þær stíga á svið fyrir framan tæpan milljarð sjónvarps- áhorfenda á laugardaginn. Svíarnir óttast þó að þær geri hið gagnstæða, ekki síst þar sem það hefur spurst út að stúlkurnar hafi farið fram á það að fá að syngja allsberar. „Það er sjúkt að þær hafi farið fram á þetta“, segir einn talsmaður sænsku keppend- anna og annar þeirra bætir við að hann „skilji ekki hvaða erindi þær eigi á svona fjölskyldu- skemmtun ef þær vilja vera naktar.“ Fulltrúar RÚV, og fylgisveinarBirgittu Haukdal í Riga, þeir Gísli Marteinn Baldursson og Logi Bergmann Eiðsson, eru öllu afslapp- aðri en þeir sænsku þó þeir geri sér fulla grein fyrir þeirri ógn sem staf- ar af Tatú. Þeir segja meðal annars í dagbók sinni að flestir hallist að því að rússneska tvístirnið beri sigur úr býtum „en þær hafa hótað því að hneyksla gjörvalla heimsbyggðina með djarfri framkomu á laugardag.“ Strákarnir hafa þó síður en svo gefið upp alla von og benda á að „sérfræð- ingar Reuters í Söngvakeppni evrópskra sjón- varpsstöðva segja að Segðu mér allt, íslenska lagið, í flutningi Birgittu Haukdal, geti komið á óvart á laugardag og jafnvel unnið í keppninni.“ Þá upp- lýsa félagarnir að auk Tatú og Birgittu þyki Tyrkir, Spánverjar og Lettar líklegir til að fá mörg at- kvæði í söngvakeppninni.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.