Fréttablaðið - 22.05.2003, Page 38

Fréttablaðið - 22.05.2003, Page 38
1. Elton John (Candle in the Wind, 1997). 2. Hann varð annar (ef ekki fyrsti) maðurinn til að ná tindi Everestfjalls. 3. Filistei. 4. 31. desember. 5. Guðrún – 5.266 talsins. 6. Öskudagur. 7. 1956, Melbourne, Ástralíu. 8. Sardiníu. 9. Kanada (Hallveigarstöðum). 10. Short Message Services. 11. Ganímedes. 12. Laupur. 13. Fjórar. 14. Drottningin af Saba. 15. Borgarholti, Reykjavík. 16. Renault. 17. Fyrsta kvikmyndasýningin. 18. Fjallagras. 19. Jameson. 20. Allt í misgripum – A comedy of errors. 21. Tamíl. 22. Halldór Laxness. 23. Tikrit. 24. Grófarhús. 25. Kanada. 26. Stöðvarhrepp og Búðahrepp. 27. Hún breyttist í saltstólpa við að horfa um öxl á eyðingu Sódómu og Gómorru. 28. Neo. 29. Douglas Adams. 30. Rio Grande. Rjómaísæði hefur runnið áReykvíkinga. Biðraðir eru við allar ísbúðir þegar vinnudegi lýk- ur og ná þær hámarki þegar kvölda tekur. Ísbúðareigendur eru þó ekki mjög hissa. Kalla þetta maísprengjuna: „Maímánuður er sterkasti mánuðurinn í íssölu ef veður er þokkalegt. Þá verður söluspreng- ing hjá okkur,“ segir Ólafur Ágústsson í Íshöllinni á Melhaga. Hann hefur selt ís í 17 ár. „Ekki er verra að verð á ís hefur ekki hækkað svo neinu nemur undan- farin ár enda höfum við pínt okk- ur niður úr öllu valdi til að koma til móts við neytendur. Lítill ís með dýfu kostar nú aðeins 130 krónur og stór með dýfu 190 krónur. Þetta er hagstætt og gott verð fyrir úrvalsvöru í góðviðr- inu,“ segir hann. Aðrir ísbúðareigendur taka undir með Ólafi í Íshöllinni. Allir með áþekkt verð og í sjöunda himni í maíblíðunni: „Í stuttbuxum með ís í hendi. Það er hugmynd Íslendinga um vorkomuna og gott veður,“ segir afgreiðslufólkið í Ísbúðinni í Fákafeni. Og Sigríður Pálsdóttir, afgreiðslustúlka í Ísbúðinni á Hagamel til tveggja ára, stendur í ströngu eins og hinir íssalarn- ir: „Hér var biðröð við dyrnar þegar ég mætti til að opna búð- ina skömmu eftir hádegi. En að- alösin er eftir. Í kvöld verður allt brjálað,“ segir hún. „Ísbrjál- að.“ ■ 22. maí 2003 FIMMTUDAGUR Veðurblíða ■ Það er líf og fjör í ísbúðum höfuðborg- arinnar þessa dagana. Fólk vill fá sér ís í vorblíðunni og helst borða hann í stuttbuxum. ■ Leiðrétting Að gefnu tilefni skal tekið fram að í draumi sér- hvers manns er fall hans falið - við Rauðarárstíg. ■ Veistu svarið? Svör við spurningum á bls. 6 1. 2. 3. Draumurinn á Rauðarárstíg. Riyadh. Reykjavík Loftbrú. VORBOÐINN LJÚFI Hagstætt verð – gott bragð. Ísæði í Reykjavík Ungliðahreyfing Samfylkingar-innar í Reykjavík hefur hvatt til þess að Birgittu Haukdal verði veitt Fálkaorðan vegna framgöngu sinnar í undirbúningi Eurovision- keppninnar sem fram fer á laugar- daginn: „Birgitta er glæsilegur full- trúi hinnar ís- lensku þjóðar á er- lendri grund,“ seg- ir í ályktun ungu j a f n a ð a r m a n n - anna. „Almennt telur UJR (ungir jafnaðarmenn í Reykjavík) að leg- gja skuli áherslu á að veita íslenskum a l þ ý ð u h e t j u m þessi heiðurs- merki á kostnað fulltrúa ákveðinna starfsstétta sem virðast hafa verið orðnir áskrifendur að henni við starfslok sín.“ Þá er rifjað upp kosn- ingaloforð forseta um aukna hlut- deild íslenskrar alþýðu í orðuveit- ingum embættisins.“ Ungu jafnaðarmennirnir telja upp nokkra sem ættu að vera búnir að fá fálkaorðuna. Þeirra á meðal eru: Ragnhildur Gísladóttir, Flosi Ólafsson, Hólmfríður Karlsdóttir, Eiríkur Hauksson og Ragnar Bjarnason. ■ BIRGITTA HAUKDAL Alþýðuhetja ung- um jafnaðar- mönnum að skapi. Orðuveitingar ■ Ungir jafnaðarmenn í Reykjavík vilja að Birgittu Haukdal verði veitt Fálkaorðan og hafa skorað á forseta að bregðast við. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T Birgitta fái Fálkaorðu ■ Svör við spurningum á blaðsíðu 29

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.