Fréttablaðið - 13.07.2003, Qupperneq 2
2 13. júlí 2003 SUNNUDAGUR
“Ég sit sveittur og bý
til frí fyrir aðra.“
Sumarfrí landsmanna standa nú sem hæst. Helgi
Jóhannsson er framkvæmdastjóri sumarferða.is.
Spurningdagsins
Helgi, á leið í fríið?
Fjárhagserfiðleikar hjá Altech:
Öllu starfsfólki sagt upp
VIÐSKIPTI Öllu starfsfólki Altech,
15 að tölu, hefur verið sagt upp í
kjölfar fjárhagserfiðleika hjá
fyrirtækinu. Starfsfólkið á inni
ógreidd laun hjá fyrirtækinu
vegna tveggja síðustu mánaða
og er viðskiptabanki Altech,
Landsbanki Íslands, hættur að
veita fyrirtækinu fyrirgreiðslu.
„Það er engin launung að við
erum í fjárhagslegri endur-
skipulagningu,“ segir Jón
Hjaltalín Magnússon, forstjóri
Altech. „Við erum að fá nýja
fjárfesta í félagið og stækka
það. Greiðslur frá stærri verk-
efnum hafa dregist vegna seink-
ana. Hins vegar hefur verkefna-
staða okkar aldrei verið betri.“
Altech hefur í samvinnu við
rússneska aðila unnið að undir-
búningi þess að reisa álver við
Húsavík. Jón segir að staða Al-
tech breyti engu um stöðu þess
verkefnis.
Altech var stofnað árið 1987.
Fyrirtækið hefur unnið að hönn-
un og framleiðslu á búnaði fyrir
skautsmiðjur í álverum. ■
Ekki verður réttað á
Keflavíkurflugvelli
Ráðuneytisstjóri segir utanríkisráðuneytið ekki úrkula vonar um að
ríkissaksóknari fallist á framsal hnífstungumannsins. Saksóknari segir
ekkert framsal á lögsögu felast í flutningi mannsins á varnarstöðina.
DÓMSMÁL Heimildir Fréttablaðsins
herma að réttarhald yfir hníf-
stungumanninum muni halda
áfram í Héraðsdómi Reykjavíkur
og að ekki komi til greina að ís-
lenskur saksóknari sæki málið á
Keflavíkurflugvelli. Þar séu engir
íslenskir dómstólar og því verði
að koma með hann fyrir rétt til
Reykjavíkur.
„Málið hefur þróast hægt. Það
að hann yrði vistaður á vellinum
hefur alltaf komið til greina í stöð-
unni. Ríkissaksóknari vildi setja
ákveðin skilyrði og
að það væri gengið
mjög tryggilega
frá þeim skrif-
lega,“ segir Gunn-
ar Snorri Gunnars-
son, ráðuneytis-
stjóri utanríkis-
ráðuneytisins.
Gunnar Snorri
segir stjórnkerfið hjá Bandaríkja-
mönnum flókið. Áður en þeir af-
hendi slíka yfirlýsingu skriflega
þurfi að fara í gegnum ákveðið
ferli. Því hafi þetta líka tafist af
þeirra hálfu. Á föstudag hafi utan-
ríkisráðuneytið fengið skriflegar
skuldbindingar, undirritaðar af að-
mírálnum á Keflavíkurflugvelli.
Þá hafi ráðuneytið getað tilkynnt
dómsmálaráðuneytinu og ríkissak-
sóknara að skilyrði væru uppfyllt.
„Hafa ber í huga að þetta er ein-
göngu spurning um vistunarstað,
ekki framsal. Það mál er ennþá í
athugun,“ segir Gunnar Snorri.
Hann segir skilyrðin sem ríkis-
saksóknari setti vera þau að hann
fari ekki úr landi og muni mæta
fyrir rétt ef á þurfi að halda.
Gunnar segir töfina við að fá að
yfirheyra bandarísk vitni ekki
hafa verið skýrða fullkomlega af
hálfu varnarliðsmanna. Nokkuð
ljóst sé þó að það tengist þessu
máli. Þeir hefðu samt hugsanlega
leyft einhvern aðgang á endanum.
„Við gerum ráð fyrir að frekari yf-
irheyrslur fari fram á vellinum.“
“Við teljum ekki ómögulegt að
sátt náist um ákvörðunina. Erum
ekki úrkula vonar um að ríkissak-
sóknari muni að lokum fallast á
okkar rök. Aðalmálið er að íslensk
stjórnsýsla komi sér þokkalega
saman. Bandaríkjamenn blandast
ekkert inn í þann slag, segja má
að þeir fylgist með af áhuga,“ seg-
ir Gunnar Snorri.
„Þetta er einungis spurning um
vistunarstað, í þessu felst ekkert
framsal á lögsögu,“ segir Kolbrún
Sævarsdóttir saksóknari.
Sveinn Andri Sveinsson, verj-
andi varnarliðsmannsins, lítur svo
á að maðurinn hafi í raun verið
leystur úr gæsluvarðhaldi. Ekki sé
hægt að láta menn vera í gæslu-
varðhaldi í umdæmi annars ríkis.
Hann er ósáttur við að maðurinn
hafi verið fluttur án sinnar vit-
neskju. „Það er eins og þetta hafi
verið einhver DHL-pakki sem var
afgreiddur til sendingar.“
hrs@frettabladid.is
RÓLEGT Á HÖFUÐBORGARSVÆÐ-
INU Lögreglu í Reykjavík og
Hafnarfirði bar saman um að að-
faranótt laugardags hafi verið
sérlega róleg. Skýringin var talin
sú að landsmenn væru á faralds-
fæti og þar af leiðandi fáir á ferli
á höfuðborgarsvæðinu. „Ef menn
eru að gera eitthvað af sér eru
þeir að gera það annars staðar,“
sagði varðstjórinn í Reykjavík.
MET Í HVALFJARÐARGÖNGUM Að
sögn lögreglunnar á Akranesi
munu um það bil 12.000 bílar
hafa farið um Hvalfjarðargöngin
á föstudag. Talið er að það sé
meiri fjöldi en fór í gegn daginn
sem göngin voru opnuð. Tölur
fást ekki staðfestar fyrr en á
morgun.
STJÓRN Í FÆÐINGU Óðum styttist
í að ný stjórn taki við völdum í
Írak, að því er AP fréttastofan
hefur eftir háttsettum en ónafn-
greindum vestrænum stjórnarer-
indreka. Bráðabirgðastjórn
Bandaríkjamanna í Írak hefur
unnið að því ásamt stjórnmála-
hópum í Írak að setja saman nýja
stjórn.
BÝÐST TIL AÐ SEGJA AF SÉR Mo-
hammad Khatami, forseti Írans,
bauðst í gær til þess að segja af
sér embætti ef það er almennur
vilji fólks í landinu. Vaxandi
óánægju gætir með að honum
hefur ekki tekist að koma í gegn
lýðræðisumbótum, sem hann hef-
ur lengi lofað að gera.
STJÓRN PALESTÍNUMANNA
Mahmoud Abbas, forsætisráðherra Palest-
ínumanna, er fyrir miðri mynd.
Palestínumenn:
Berjast
innbyrðis
GAZA-BORG, AP Meðlimir í Hamas,
samtökum herskárra íslamskra
Palestínumanna, réðust í gær á
palestínskar lögreglubifreiðar á
Gaza-svæðinu. Þetta gerðist í
framhaldi af því að lífverðir Mo-
hammeds Dahlans, yfirmanns
palestínsku öryggissveitanna,
skutu á og særðu meðlim í Hamas.
Átök þessi þykja ótvírætt
merki um að spenna sé að aukast
á milli palestínsku heimastjórnar-
innar og vopnaðra hópa herskárra
Palestínumanna.
Mahmoud Abbas, forsætisráð-
herra palestínsku heimastjórnar-
innar, er undir miklum þrýstingi
frá Ísrael um að afvopna Hamas
og önnur samtök, sem stundað
hafa árásir á Ísraelsmenn.
Ísraelskir ráðamenn réðust
harkalega að Yasser Arafat í gær.
Talsmaður stjórnarinnar sagði að
ef Arafat hætti ekki að berjast
gegn friðarferlinu kynni hann að
vera rekinn úr landi. ■
Þreyttur eftir innbrot:
Lagðist til
svefns
INNBROT Hann fór ekki langt mað-
urinn sem braust inn í íbúðarhús í
Kópavogi snemma morguns í gær.
Þegar inn í húsið var komið lagð-
ist maðurinn til svefns. Maðurinn
var ölvaður. Öryggiskerfi í húsinu
fór í gang þegar maðurinn braust
inn. Lögregla kom á staðinn, vakti
manninn og færði hann í fanga-
geymslur þar sem hann lagðist
aftur til svefns.
Fyrr um morguninn hafði lög-
regla haft hendur í hári manns
sem var að brjótast inn í bíla.
Hann hafði þá náð að gramsa í bíl-
um. Maðurinn, sem var undir
áhrifum áfengis, var færður í
fangageymslur. ■
KEFLAVÍKURFLUGVÖLLUR
Hnífstungumaðurinn er nú í vörslu varnarliðsins.
■
Gunnar segir
að töfin á að fá
að yfirheyra
bandarísk vitni
hafi ekki verið
skýrð fullkom-
lega af hálfu
varnarliðsins.
BÍLVELTA Í LANGADAL Bíll valt í
Langadal í Austur-Húnavatns-
sýslu aðfaranótt laugardagsins.
Að sögn lögreglu var öku-
maðurinn ölvaður og var hann
fluttur á sjúkrahús með minni-
háttar meiðsl.
ÓK Á GRINDVERK Karlmaður ók á
grindverk við Þingvallastræti á
Akureyri um fimmleytið í gær-
morgun. Maðurinn er grunaður
um ölvun og var færður í fanga-
geymslur. Miklar skemmdir urðu
á bílnum.
BÍLVELTA Í SVÍNAHRAUNI Fólks-
bifreið valt í Svínahrauni um há-
degisbil í gær. Ekki er vitað um
orsakir veltunnar, en fjórir voru í
bílnum og sluppu allir við meiðsl.
BARN BRENNDIST Tveggja ára
barn brenndist á fæti í Húsafelli
í gær þegar það datt um prímus,
sem á var pottur með sjóðandi
vatni. Barnið var flutt til skoðun-
ar í Borgarnesi. Þá féll maður af
hestbaki upp við Gufuá, rétt fyrir
ofan Borgarnes, þegar hestur
hans prjónaði, með þeim afleið-
ingum að hann féll og fótbrotn-
aði. Hann var fluttur með sjúkra-
bifreið til Reykjavíkur.
HÚSNÆÐI ALTECH VIÐ LYNGHÁLS
Altech á við fjárhagslega erfiðleika að
stríða. Forstjóri þess er bjartsýnn á að því
takist að leysa vandann.
■ Lögreglufréttir
Skeljungsmálið:
Keyptu fyrir
nær milljarð
VIÐSKIPTI Kaupþing Búnaðarbanki
keypti hlutafé fyrir nær milljarð
á markaðsvirði 30. júní, daginn
sem hlutafé Shell International og
Haukþings var selt á undirverði.
Viðskipti þennan dag eru í könnun
hjá Fjármálaeftirliti og Kauphöll-
inni eins og blaðið greindi frá í
gær. Hreiðar Már Sigurðsson, for-
stjóri Kaupþings Búnaðarbanka,
vildi í gær ekkert segja um málið
eða hvort fyrirtæki hans hefði
keypt bréfin hefði það vitað af
kaupum Burðaráss og Sjóvár-Al-
mennra á hlut Shell International
á undirverði.
Ekki náðist í Benedikt Jóhann-
esson, stjórnarformann Skeljungs
og Burðaráss, Bjarna Ármanns-
son, forstjóra Íslandsbanka, og
bankastjóra Landsbankans, þá
Halldór J. Kristjánsson og Sigur-
jón Þ. Árnason, þrátt fyrir ítrek-
aðar tilraunir. ■
■ Lögreglufréttir
■ Persaflói
Stórleik 10. umferðar lauk með sigri KR:
KR komið fast að hælum Þróttara
FÓTBOTLI „Ég er alls ekki sáttur við
þennan leik,“ sagði Ingvi Sveins-
son, leikmaður Þróttar, eftir 2-1
tap fyrir KR í gær. „Við áttum al-
veg möguleika á þremur stigum
og við vorum hreinlega óheppnir
að klára þetta ekki í lokin. Miðað
við hvernig leikurinn spilaðist átt-
um við alveg séns á einu stigi með
jafntefli en það hafðist ekki.“
Fyrsti leikur 10. umferðar
Landsbankadeildarinnar í knatt-
spyrnu fór fram í Frostaskjóli.
Þangað kom efsta liðið Þróttur í
heimsókn. Fyrri hálfleikur var
bragðlaus og fátt um alvarleg
færi. Hins vegar komu leikmenn
KR grimmir út í síðari hálfleik og
skoruðu tvö glæsileg mörk á
fyrstu 20 mínútunum. Eftir það
fóru Þróttarar að sækja meira og
náðu að minnka muninn, en þrátt
fyrir grimmar atlögur síðustu
mínúturnar náðu þeir ekki að
jafna.
„Það voru stór þrjú stig í boði
hér í dag og við tókum þau þannig
að ég er sáttur,“ sagði Willum Þór
Þórsson, þjálfari KR. „Mér sýnist
þetta vera að koma hjá okkur.
Fyrri hálfleikur var dauflegur og
við höfðum tilhneigingu til að
gera hlutina erfiða fyrir okkur en
þetta hafðist með frísklegum leik
í seinni hálfleik. Gamli baráttu-
hugurinn sem okkur hefur vantað
undanfarið er farinn að gera vart
við sig aftur og bjart fram und-
an.“ ■
FRÁ LEIK KR OG ÞRÓTTARA Í FROSTASKJÓLI
Leikurinn gat endað á hvorn veginn sem var.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M