Fréttablaðið - 13.07.2003, Blaðsíða 9

Fréttablaðið - 13.07.2003, Blaðsíða 9
FYLGIR FRÍTT M EÐ 9SUNNUDAGUR 13. júlí 2003 Fjölmenni á Akranesi: Fótbolti og írsk stemning HÁTÍÐ Mikið fjölmenni er á Akra- nesi þessa helgi, þar sem nú standa yfir írskir dagar og Polla- mót í fótbolta. Að sögn lögreglu hefur allt gengið snurðulaust fyr- ir sig og ekkert komið til kasta lögreglu. Pollamótið hófst á fimmtudag, en að sögn varðstjóra er stemningin góð, fólk hefur grúppað sig saman víða um bæ- inn, lokað götum og unir sér úti fram eftir nóttu við grill og söng að hætti írskra. Slökkviliðið á Akranesi var þó kallað út í gær vegna þess að pottur hafði gleymst á hellu. Ekki hlaust mikið tjón af, en íbúðin var reykræst. ■ YFIRKOMINN AF HARMI Dadollah Bijani, faðir hinna látnu tvíbura Laleh og Ladan, var harmi sleginn þegar kistur þeirra voru komnar á heimaslóðir. Þær voru jarðaðar í gær. Aðskilnaður samvöxnu tvíburanna: Lærdómur fyrir lækna BALTIMORE, AP Benjamin Carson, einn læknanna sem reyndu að að- skilja írönsku tvíburana Laleh og Ladan Bijani, segir nú að aðskilnað af þessu tagi hefði átt að gera í þremur til fjórum áföngum í stað- inn fyrir eina stóra aðgerð. „Ég held að það hefði breytt miklu,“ sagði Carson. Carson segist engu að síður sannfærður um að í fyllingu tímans verði hægt að framkvæma aðskiln- að af þessu tagi með öruggum hætti. Hann bætti því við að Ladan og Laleh hafi lagt stóran skerf af mörkum til þess að svo megi verða. Írönsku tvíburarnir Ladan og Laleh létust síðastliðinn þriðjudag vegna blóðmissis þegar aðgerðin hafði staðið í meira en tvo sólar- hringa. Jarðarför þeirra var gerð í gær í þorpinu Lohrasb í Íran, þar sem þær fæddust fyrir 29 árum. ■ Lögreglan í Reykjavík: Sprengiefnin enn ófundin SPRENGIEFNI 245 kíló af sprengi- efnum sem stolið var úr geymslu á Hólmsheiði í byrjun júlí eru enn ófundin. Að sögn lögreglunn- ar í Reykjavík hefur ekki komið fram neitt nýtt í rannsókn máls- ins. Áhyggjur eru varðandi hvar sprengiefnin séu niðurkomin og hver tilgangur þjófnaðarins hafi verið. Meðhöndlun sprengiefna er ekki á færi annarra en þeirra sem þjálfaðir eru í meðferð þess. ■ Deilur Ítala og Þjóðverja: Stefani segir af sér BERLÍN, AP Ítalski aðstoðarráðherr- ann Stefano Stefani hefur sagt af sér að beiðni Silvio Berlusconi forsætisráðherra. Ummæli Stef- ani um Þjóðverja fyrir skömmu urðu til þess að Gerhard Schröder, forsætisráðherra Þýskalands, hætti við að ferðast til Ítalíu í sumarfríi sínu. Í gær hvatti Carlo Azeglio Ci- ampi, forseti Ítalíu, bæði ítalska og þýska ráðamenn til þess að halda ró sinni og styrkja tengsl þjóðanna á ný. ■ TÓKÍÓ, AP Stjórn japanska Komm- únistaflokksins hefur áréttað til- mæli til hærra settra félaga sinna þess efnis að þeir takmarki áfengisneyslu við heimili sín. Bannið nær til um eitt þúsund háttsettra félaga í flokknum, stjórnarmanna og starfsmanna á skrifstofum flokksins. Þetta er gert til að sporna gegn frekari kærum um kynferðislega áreitni en félagar ku sumir gerast óþarf- lega frjálslegir í samskiptum þegar víman segir til sín. Kærum vegna kynferðislegs áreitis hefur fjölgað mjög á und- anförnum árum og eru nýleg dæmi um afsagnir háttsettra fé- laga í flokknum vegna slíkra mála. Leiðtogum og hærra settum félögum í japanska Kommúnista- flokknum hefur allt frá árinu 1970 verið óheimilt að neyta áfengis opinberlega en banninu hefur ekki verið framfylgt. Nú verður breyting á. Sjái flokksfélagar fram á að þurfa að neyta áfengis opinberlega verða þeir að fá til þess formlegt leyfi flokksins. ■ Saug tær á tuttugu drengjum: Ævilangt fangelsi SANTA ANA, AP Trenton Veches, rúm- lega þrítugur fyrrverandi umsjón- armaður æskulýðsstarfs í Newport Beach í Kaliforníu, hlaut ævilangt fangelsi fyrir að sjúga tærnar á tuttugu drengjum á aldrinum 6 til 10 ára. Drengina hafði hann í um- sjón sinni. Verjandi hins dæmda sagði framferði hans eingöngu hafa verið saklausan leik, en saksóknari sagði Veches „augljóslega hafa áunnið sér vináttu þessara barna, ráðskast með þau og síðan áreitt þau kynferðislega.“ Veches getur sótt um reynslulausn úr fangelsinu eftir fimmtán ár. ■ AP/H ASAN SAR B AKH SH IAN GAMANIÐ BÚIÐ Stjórn japanska Kommúnistaflokksins þykir nóg um hömluleysi leiðtoga og starfs- manna flokksskrifstofunnar. Kærum vegna kynferðislegs áreitis í tengslum við áfengis- drykkju hefur fjölgað svo mjög að blátt bann er nú lagt við opinberri drykkju starfsmannanna. Japanski kommúnistaflokkurinn: Yfirmönnum gert að djúsa heima M YN D /A P

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.