Fréttablaðið - 13.07.2003, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 13.07.2003, Blaðsíða 32
31NNUDAGUR 13. júlí 2003 Hrönn Eiríksdóttir varð ádögunum fyrsta konan á Ís- di sem lýkur sveinsprófi í gvirkjun. Hrönn hefur starf- hjá Flugfélaginu Atlanta síð- hún lauk námi í Bandaríkjun- árið 2000. Áður en hún fór út til Banda- janna lærði hún nudd og bif- avirkjun hér heima, en pabbi nnar er bifvélavirki. Hrönn, sem verður 25 ára í ust, segist hafa farið út í flug- kjunina eftir að kunningi bba hennar benti á námið. Aðspurð hvernig tilfinning sé að vera eini kvenkyns gvirkinn á Íslandi segist hún kert spá í það. Það geri fjöl- yldan hennar ekki heldur. „Þetta kemur þeim sem þekkja mig ekkert á óvart. Ég hef alltaf verið ein af strákunum,“ segir Hrönn, sem var stödd á Spáni að vinna fyrir Atlanta þegar Frétta- blaðið náði tali af henni. Hrönn segir það ekkert vera erfitt að vinna með körlum alla daga. „Það er auðveldara að vinna með karlmönnum heldur en konum. Það er bara staðreynd. Þeir taka það sem sagt er við þá ekki nærri því eins alvarlega og konur. Öll fýlan er búin eftir fimm mínútur hjá þeim, hún varir ekki í nokkra daga.“ ■ Strompfullt hjá Margréti Sverris g verð í því að koma mér af frá- bæru ættarmóti á mánudag sem dið er í Reykjanesi við Ísafjarð- júp, þar sem Síberían var fyrir a fólkið hérna fyrir vestan. Þetta ættmenni mín í föðurlegg, pabbi systkini hans og verður þetta mennt mót,“ segir Margrét rrisdóttir, framkvæmdastjóri álslynda flokksins, aðspurð um ð væri á verkefnalista vikunnar m nú fer í hönd. „Svo er komið að því að klára marfríið mitt, það er að líða að um þess. Og ég hef ætlað mér júka þaksmíði sem við hjónin m hálfnuð með. Við erum að durnýja gamalt hús sem við um, gamlan bóndabæ sem er kjubær við Skutulsfjörð. t utan við Ísafjörð. Þetta er marhúsið okkar. Vegna ættarmótsins eru ingjar mínir að koma hvaðan- a að, ein fjölskylda frá lgaríu, önnur frá Svíþjóð og framvegis. Við munum hýsa hverja þeirra. Ég er að vona það verði strompfullt hjá kur. Ég treð alveg upp í rjáfur. o er bara að vona að veðrið ði skárra en verið hefur danfarið.“ Margrét segir einnig fylgja gi hverjum, og er þessi vika gin undantekning, að vera á ktinni í pólitíkinni. Hún er í stöðugu tölvupóst- og símsam- bandi við hina ýmsu flokksmenn sína. „Svo er alltaf á verkefna- listanum að taka saman grein og skjóta á ríkisstjórnina hvað varðar ýmis glappaskot í utan- ríkismálum. En hvort það verður í þessari viku veit ég ekki. Líklega kemst ég ekki til þess sökum gestagangs og þakvið- gerða.“ ■ eftir Frode Øverlimbakassinn ÞOTA Í AÐFLUGI Hrönn Eiríksdóttir er eina konan á Íslandi sem hefur lokið sveinsprófi í flugvirkjun. Vikan fram undan ■ Hinn knái framkvæmdastjóri Frjáls- lynda flokksins hefur í mörg horn að líta í þeirri viku sem fer í hönd. Hún er á hinni pólitísku vakt og stendur í þakviðgerðum á sumarhúsi þeirra hjóna auk þess sem hún mun hýsa fjölda ættingja sinna sem eru að koma vestur í stórum stíl. Frammistaða Björgólfs Takefusameð úrvalsdeildarliði Þróttar í knattspyrnu hefur vakið athygli út fyrir landsteinana. Á dögunum barst fyrirspurn alla leið frá Japan þar sem annarrar deildar lið þar í landi spurðist fyrir um strákinn. Í loftinu lá tilboð sem skoðað var en sjálfur sýndi Björgólfur því engan áhuga. Hann er sem kunnugt er japanskur í föðurætt en talar þó enga japönsku. Þróttarar geta því varpað öndinni léttar og haldið ótrauðir áfram sigurgöngu sinni í Íslandsmeistaramótinu í knatt- spyrnu með Björgólf í framlínunni. Hádegistónleikar Tríó Cantabileí Ráðhúsi Reykjavíkur síðast- liðinn föstudag vöktu athygli og voru vel sóttir. Sérstaka athygli vakti þó umgjörð tónleikanna en út um glugga Ráð- hússins gátu tón- leikagestir fylgst með ástföngnu fólki í tilhugalífi með blóm og pakka á tjarnarbakk- anum fyrir utan – enda fjölluðu verkin öll um ástina. Tríó Cantabile hyggur nú á ferð um landið með söng sinn og leik en óvíst er hvort ástfangna fólkið á tjarnarbakkan- um fylgir með. Út í bakarí Á sunnudagsmorgnum finnstmér gott að lesa blöðin og drekka kaffi,“ segir Eyþór Arn- alds, tónlistar- og athafnamaður, en tekur þó fram að hann stundi blaðalesturinn og kaffidrykkjuna ekki uppi í rúmi. „Ég sit við eld- húsborðið í sloppnum og læt stressið líða úr sálinni. Með aldr- inum hefur mér lærst að líta á sunnudaginn sem hvíldardag. Þannig nýtur maður hans best.“ Kaffið dugar Eyþóri þó ekki eitt og sér við blaðalesturinn á sunnudagsmorgnum: „Ég fer út í bakarí og kaupi með brauð frekar en sætabrauð. Annað hvort fer ég í Konditori Copenhagen við Suð- urlandsbraut eða á Kaffi Roma við Rauðarárstíg. Það er í göngu- færi og gott.“ ■ Tímamót HRÖNN EIRÍKSDÓTTIR ■ hefur unnið fyrir Atlanta í tvö ár og segist kunna vel við að vinna með karlmönnum. Ein af strákunum ■ Morgunstund EYÞÓR ARNALDS Lætur stressið líða úr sálinni á sunnu- dagsmorgnum. ANDLÁT Björn Emil Björnsson, Lágengi 23, Sel- fossi, lést 10. júlí. Sigríður Guðbjörg Sigurðardóttir lést 10. júlí. Sigurrós Sigurðardóttir, Hrafnistu, Hafnarfirði, lést 10. júlí. Pétur Einarsson, Þrastarási 4, Hafnar- firði, lést 8. júlí. Jónas Þór Guðmundsson, Austurbrún 6, Reykjavík, lést í Búlgaríu 5. júlí. Friðjón Guðröðarson, Fjólugötu 25, Reykjavík, er látinn. ■ Tímamót Grænlenskir dagar á Flateyri: Trumbusláttur um allan bæ Mikil stemning er á græn-lenskum dögum sem nú standa yfir á Flateyri. „Þetta er búið að vera æðislegt,“ sagði Guð- mundur Sigurðsson, einn aðstand- enda hátíðarinnar, þegar haft var samband við hann í gær. „Ég hef aldei séð annað eins af bílum á Flateyri áður og ég giska á að hér séu um 1.200 til 1.500 manns. Það ljóma allir af gleði og ánægju,“ segir Guðmundur. Guðmundur segir Grænlend- ingana hafa skotið sel um leið og þeir komu, sem þeir hafa verið að matreiða ofan í gesti og gangandi. „Þeir fönguðu svo annan lifandi, sem þeir eru með í kari. Þá hafa þeir sýnt dans- og söngatriði og trumbusláttur frá trumbusvetinni þeirra dynur hér um allan bæ. Það eina sem hefur ekki leikið við okk- ur er veðrið, sem hefði mátt vera ögn betra.“ ■ FJÖR Á GRÆNLENSKUM DÖGUM Mikill mannfjöldi er á Flateyri og dagskrá í gangi allan liðlangan daginn og langt fram á nótt. MARGRÉT SVERRISDÓTTIR Það er á verkefnalista hennar að taka saman grein og skjóta rækilega á ríkisstjórnina vegna ýmissa glappaskota í utanríkismálum... en líkleg kemst hún ekki til þess sökum þakviðgerða.. Glæsilegur sumarbústaður í Kiðárbotnum nr. 34 í Húsafelli MIKIÐ ENDURNÝJAÐUR BÚSTAÐUR Í HÚSAFELLI MEÐ STÓRUM VIÐARPÖLLUM. BÚIÐ ER AÐ END- URNÝJA NÁNAST ALLT AÐ INNAN. HEITT OG KALT VATN, STÓR HEITUR POTTUR. MIKILL GRÓÐUR ALLT Í KRINGUM BÚSTAÐINN. Seljandinn verður á staðnum um helgina og þér/ykkur er frjálst að líta við eða hringja í hann Valdimar (eigandann ) í síma 897-9929 og hann gefur þér allar nánari upplýsingar Þórarinn M. Friðgeirsson sölumaður Gsm 899-1882 www.valholl.is - opið mán.- fimmtud. 9-17.30, föstud. frá kl. 9-17. Lokað um helgar.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.