Fréttablaðið - 13.07.2003, Síða 10

Fréttablaðið - 13.07.2003, Síða 10
10 13. júlí 2003 SUNNUDAGUR G ra fí sk a v in n u st o fa n s : 5 6 5 9 7 0 2 Sérsní›um Vi›ger›ir S í m i : 5 6 5 1 4 0 2 I F a x : 5 6 5 1 4 6 7 Callaway, Steelhead III trékylfur: 23.200 stgr. Golfboltar á ótrúlegu ver›i Bay Hill by Palmer, 15 í kassa 1.500 stgr. MacGregor Response, 15 boltar í kassa 1.500 stgr. GO-Titanium boltar, 15 boltar í kassa 1.500 stgr. Softspikes, 22 takkar, Black Widow 1.190 stgr. FootJoy skór frá kr. 4.900 S T R A N D G Ö T U 2 8 , H A F N A R F I R ‹ I Gó›ar ód‡rar kylfur fyrir byrjendur 20% afsláttur SAMA VER‹ Ísland – Bretland Frábær dræver frá RAM FX Titanium 440cc 12.900 stgr. RAM ZEBRA pútter 6.500 stgr. ADAMS Idea, Járnasett: 46.500 stgr. 8-járn, 3-PW, grafít sköft NANCY LOPEZ, Albany 38.000 stgr. Járnasett: 8-járn, 4-SW, grafít sköft ■ Kvikmyndir Leikkonan Katharine Hepburnlést fyrir skömmu, 96 ára göm- ul. Hún var tólf sinnum tilnefnd til Óskarsverðlauna og vann verð- launin fjórum sinnum. Þrátt fyrir þessi afrek voru skiptar skoðanir meðal gagnrýnenda um raunveru- lega leikhæfileika hennar og ein- hverjir héldu því fram að hún ætti frægð sína að mestu að þakka leiftrandi pesónuleika sínum sem endurspeglaðist svo einkar vel á hvíta tjaldinu. Hún fæddist árið 1907, önnur í hópi fimm systkina. Faðir hennar var læknir og móðir hennar var þekkt baráttukona fyrir kvenrétt- indum. Tólf ára gömul fór Kathar- ine ásamt bróður sínum Tom, sem var fimmtán ára, til gistingar hjá frænku þeirra. Einn daginn kom hún að bróður sínum þar sem hann hafði hengt sig. Hún þaut að húsi læknis sem bjó handan göt- unnar og barði á dyrnar. Þjónustu- stúlka opnaði og Hepburn sagði grátandi: „Hjálpaðu mér, bróðir minn er dáinn.“ „Ef hann er dá- inn,“ svaraði þjónustustúlkan ró- lega, „þá getur læknirinn ekki hjálpað honum“. Með þeim orðum skellti hún hurðinni á grátandi stúlkuna. Dauði bróðurins hafði gríðarleg áhrif á Katharine, sem einangraði sig og breytti afmælis- degi hans í sinn eigin. Fjölskyldan neitaði alla tíð að viðurkenna að Tom hefði fyrirfarið sér og sagði dauða hans vera slys. Hin sterka kona Hepburn var tvítug þegar hún kynntist ungum leikara, sem kall- aður var Luddy, og var átta árum eldri en hún. Hún giftist honum en hellti sér síðan út í leiklistina. Hún lék á Broadway og átti þar í ástar- sambandi við leikstjórann Jeff Harris. Hann var svo illa liðinn af kollegum sínum að Laurence Olivi- er hafði hann að fyrirmynd að túlk- un sinni á Ríkharði III og Walt Dis- ney notaði hann sem fyrirmynd að Stóra ljóta úlfi. Ástarsamband þeirra Hepburn entist ekki lengi. Hún skildi við mann sinn og átti í ástarsambandi við Howard Hug- hes. Hann bað hennar og hún tók bónorði hans. Þau áttu ýmislegt sameiginlegt. Bæði voru sjálf- hverf, ákveðin, sinntu í engu hefð- bundnum venjum, voru einræn og höfðu andstyggð á fjölmiðlum. Vin- ir Hepburn skildu ekki hvað hún var að gera með Hughes, sem átti fjölda ástkvenna auk hennar. Vinir Hughes töldu hins vegar að Hep- burn hefði verið stóra ástin í lífi hans. Hepburn ákvað loks að gift- ast ekki Howard Hughes heldur einbeita sér að ferli sínum og sagði honum að hún vildi ekki vera gift neinum. Hún sagðist seinna aldrei hafa haft áhuga á því að verða eig- inkona og móðir. Hún kom sér á kortið í Hollywood árið 1932 og hlaut Ósk- arsverðlaun ári seinna. Á hvíta tjaldinu var hún ímynd hinnar sterku, sjálfstæðu og greindu konu, rétt eins og hún var sjálf í raunveruleikanum. Hún var mikil íþróttakona, gekk yfirleitt í bux- um, málaði sig ekki og sást varla í samkvæmum. Hún fann stóru ástina í lífi sínu þegar hún, þrjátíu og þriggja ára gömul, kynntist einum virtasta leikara í Hollywood, Spencer Tracy, sem var átta árum eldri en hún og kvæntur. Þau léku saman í myndinni Kona ársins og urðu nær samstundis ástfangin. Vinur þeirra George Cukor sagði um samband þeirra: „Þótt þau væru bæði veraldarvanar manneskjur þá var hann eins og lítill drengur þegar hann var með henni og hún var eins og lítil stúlka með honum. Þetta var ekki einhliða ástarsam- band. Hann var jafn góður fyrir hana og hún var góð fyrir hann.“ Ást og fórn Hepburn sagði að sér hefði við fyrsta fund fundist Tracy ómót- stæðilegur og lýsti árum þeirra saman sem fulkominni hamingju. Tracy var alkohólisti en Hepburn sagði að drykkja hans hefði aldrei verið vandamál á milli þeirra. „Drykkja er eigið vandamál og sá eini sem getur eitthvað gert við henni er maður sjálfur,“ sagði hún. Tracy sýndi oft ótrúlegan vilja- styrk þegar kom að því að hætta að drekka og gat hætt meðan hann átti fulla viskíflösku á arinhillunni og bindindi hans gat staðið í tvö til þrjú ár í einu. Hins vegar varð hann ofbeldisfullur með víni og henti þá stólum og velti um borðum. Þegar hann datt í það lét hann sig hverfa og Hepburn leitaði hans á hótelum, tók hann heim til sín og lét hann jafna sig þar. Hepburn gat verið mesti galla- gripur. Hún þoldi ekki fréttamenn og ljósmyndara og oftar en einu sinni henti hún myndavélum þeirra í gólfið og braut þær. Hún gat verið mjög hranaleg í um- gengni, sjálfselsk og sérvitur en gagnvart Tracy var hún ekkert nema blíðan. Hún dáði hann tak- markalaust og vildi allt fyrir hann gera. „Hann var þarna. Ég var hans. Ég vildi að hann væri ham- ingusamur, öruggur og að honum liði vel,“ sagði hún. Allar ákvarð- anir sem hún tók um kvikmynda- hlutverk eftir kynni þeirra voru teknar með tilliti til þess að hún þyrfti ekki að vera fjarri honum í langan tíma. „Fólk er hneykslað á því að ég fórnaði svo miklu vegna karlmanns,“ sagði hún fyrir nokkrum árum, „en þið verðið að skilja að það gaf mér ánægju að gera hann hamingjusaman og sefa þjáningar hans.“ Hlakkaði til að deyja Samband Hepburn og Tracy var á allra vitorði í Hollywood en það er til marks um hversu mikill- ar virðingar þau nutu að slúður- blöð þögðu um sambandið. Þau Tracy léku saman í níundu mynd sinni árið 1967, Guess Who’s Com- ing To Dinner. Tveimur vikum eft- ir að upptökum lauk lést hann. Hepburn kom að honum þar sem hann lá á eldhúsgólfinu. Hún tók dauða hans afar nærri sér, hún vissi að hann hafði verið alvarlega veikur en hafði ekki búið sig und- ir að missa hann. Þau höfðu verið saman í 25 ár og hann hafði verið giftur eiginkonu sinni í 44 ár. „Það var mikilvægt fyrir hana að vera frú Tracy. Mér var sama,“ sagði Hepburn þegar hún var spurð af hverju hún hefði ekki þrýst á Tracy að skilja við eiginkonu sína. Eftir dauða Tracys hélt Hep- burn áfram að stunda kvikmynda- leik og vann til þriggja Ósk- arsverðlauna. Hún var afar heilsu- veil síðustu árin, þjáðist af parkin- sonveiki, gigt og lungnabólgu. Nokkrum árum fyrir dauða sinn sagði hún: „Satt að segja hlakka ég fremur til að deyja. Og ef það er líf eftir dauðann þá bíð ég bara eftir að sameinast Spence.“ kolla@frettabladid.is FJÓRÐU ÓSKARSVERÐLAUNIN Fékk Hepburn fyrir leik sinn í On Golden Pond árið 1981. Mótleikari hennar Henry Fonda hampaði einnig Óskarnum fyrir leik sinn. Sérvitur stórstjarna KATHARINE HEPBURN Ein þekktasta Hollywood-leikkona 20. aldar. Hún þótti leiftrandi persónuleiki og afar sjálf- stæð og á engan hátt dæmigerð Hollywood-afurð. EITT FRÆGASTA ÁSTARSAMBAND Í HOLLYWOOD Var samband Hepburn og Spencer Tracy en það stóð í 25 ár. Þau léku saman í níu kvikmyndum. Katharine Hepburn var mikil íþróttakona, málaði sig ekki og sást nær aldrei í samkvæmum:

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.