Fréttablaðið - 13.07.2003, Blaðsíða 21
20 13. júlí 2003 SUNNUDAG
LUCIANO FIGUAROA
„Litli Batistuta“ frá Rosario í Argentínu hef-
ur vakið athygli margra stórliða í Evrópu.
Fótbolti
hvað?hvar?hvenær?
10 11 12 13 14 15 16
JÚLÍ
Sunnudagur
Gæti enn spilað á móti karlmönnum:
Vill keppa við karla
GOLF „Það tók sinn tíma að kreista
golfsett út úr foreldrunum. Eftir að
það tókst varð ekki aftur snúið,“
sagði Sigurpáll Geir Sveinsson,
þrefaldur Íslandsmeistari í högg-
leik í golfi, um upphaf ferils síns.
„Ég hafði farið með systur
mömmu á golfvöllinn á Skaga-
strönd og fengið væga bakteríu.“
Ferill Sigurpáls hefur verið hægt
en bítandi upp á við. Hann er á
tuttugasta og áttunda ári og segist
vera rétt að byrja.
„Svo sannarlega, ég er hvergi
hættur. Ég hef verið að spila mitt
besta golf undanfarin tvö ár og ég
spilaði mikið í vetur svo ég er í
fínu formi. Ég hef þroskast mikið
undanfarin ár bæði sem mann-
eskja og golfari. Í leik eins og golf-
inu, þar sem keppt er fyrst og
fremst við sjálfan sig, er það ákaf-
lega mikilvægt. Það er svo mikill
hluti golfsins sálrænn að allur
þroski getur einungis komið til
góða. Ég þótti lengi vel vera með
högglengri mönnum og um það
var talað. Í dag eru teigskotin mín
20 metrum styttri en þau voru
vegna þess að ég hef lært að lengd
kemur ekki í stað nákvæmni.
Höggin eru ekki mjög löng en þau
hitta braut mun oftar og ég yrði
glaður maður ef mér tækist enn
frekar að bæta hittni á kostnað
lengdar. Það er margsannað að það
er auðvelt að tapa golfmóti á
teignum en það er ekki hægt að
vinna það þaðan. Það er fullt af
fólki sem getur dúndrað golfkúlu
langar vegalengdir en getur svo
fátt annað.“
Sigurpáll segir alla aðstöðu f
ir golfara hafa batnað mikið á
landi en ennþá vanti virkile
krefjandi golfvelli. „Þá á ég
golfvelli í líkingu við þá sem
sjáum oft erlendis. Velli sem kr
ast þess að slegið sé beint. S
dæmi vorum við á síðasta Evró
móti að spila svipað og stund
betur en mörg lið fyrir ofan okk
en það sem fór með okkur v
teighöggin. Við lentum aftur og a
ur í því að taka þriðja högg af t
og ástæðan er sú að við hittum e
brautirnar eins vel og aðrir í m
inu. Lentum gjarnan úti í skógi
týndum boltum og svo framve
Okkur hreinlega vantaði æfing
nákvæmni og hluti vandamáls
er íslenskir vellir. Á flestum þei
getur golfari skotið ónákvæmt
samt sloppið með það og jafn
verið á braut.“
Sigurpáll er í sambúð með A
Ásgrímsdóttur, sem á einn son f
ir. Þau búa á Akureyri og Sigurp
starfar við þjálfun hjá Golfklú
Akureyrar. „Ég er svo heppinn
Auður hefur einnig áhuga á g
og fylgir mér oft á mótum þan
að það eru minni fjarvistir
fjölskyldunni en ella.“ Sigurp
hefur undanfarin ár farið tú
með togurum Samherja á vetu
til að borga niður skuldir og e
til að hafa meiri tíma á sumrin
golfiðkunar. „Ég fer líklega e
vetur enn á sjóinn en eftir það
stefnan tekin á að klára íþró
gráðu við Íþróttaskólann á La
arvatni.“
albert@frettablad
FÓTBOLTI Kevin Keegan á í samn-
ingaviðræðum við Real Betis, lið
Jóhannesar Karls Guðjónssonar,
um að fá hann til Manchester City
fyrir veturinn. Verðhugmyndir
Betis hafa til þessa fælt félög frá
en forráðamenn Betis gætu mögu-
lega skipt um skoðun og leyft Jó-
hannesi að fara fyrir lægri fjár-
hæð þar sem ólíklegt er að hann
leiki með liðinu í vetur.
„Ég er alls ekkert inni hjá
þjálfara Betis og hann gerði mér
það ljóst fyrir löngu, þannig að ég
er hissa á afstöðu félagsins gagn-
vart sölu á mér,“ sagði Jóhannes
Karl, en Betis hefur þegar hafn
nokkrum tilboðum í hann. ■
14.00 Ásvellir Þróttur/Haukar
mæta ÍBV í Landsbankadeild kvenna.
16.00 Siglufjarðarvöllur
Þór/KA/KS fær Stjörnuna í heimsókn
norður í Landsbankadeild kvenna.
19.15 Akureyrarvöllur KA tekur á
móti ÍBV í Landsbankadeild karla.
21.55 RÚV Helgarsportið
22.10 RÚV Fótboltakvöld. Sýnt frá
leikjum tíundu umferðar.
FLUG Svifflug er ein þeirra íþrótta-
greina sem njóta vaxandi vin-
sælda á Íslandi sem víðar og fer
tala þátttakenda fjölgandi ár frá
ári. Svifflugfélögin á Íslandi eru
tvö talsins, Svifflugfélag Íslands á
Sandskeiði og Svifflugfélag Akur-
eyrar á Melgerðismelum í Eyja-
firði.
„Það er fleiri og fleiri sem
prófa svifflug,“ sagði Kristján
Sveinbjörnsson formaður
Svifflugfélag Íslands. „Íþróttin er
fyrir alla sem vilja njóta náttúr-
unnar svífandi um eins og fuglinn
en vilja einnig á sama tíma ná ár-
angri í spennandi íþrótt sem reyn-
ir á viðkomandi.“ Það er mikill fé-
lagsskapur meðal okkar. Við höld-
um Íslandsmeistaramót einu sinni
á tveggja ára fresti, yfirleitt á
Hellu, og þá er líka keppt stanslít-
ið í níu daga.“
Svifflugfélag Íslands á níu
svifflugur og margir félagsmenn
eiga sínar eigin vélar. „Það hefur
færst í vöxt að menn kaupi sínar
eigin svifflugur. Gjarnan fleiri
saman og geta þannig stundað
sportið hvenær sem er.“ Það eru
allir velkomnir að prófa hjá okk-
ur. Annars er tiltölulega ódýrt að
byrja miðað við margt annað sem
í boði er hérlendis. Byrjendapakki
kostar í kringum 70 þúsund krón-
ur.“
Allir eru velkomnir upp
Sandskeið en starfsemi er í ga
á svæðinu nánast alla eftirm
daga. ■
SVIFFLUGA
Áhugamönnum um svifflugið fjölgar ár frá ári.
Vaxandi áhugi á svifflugi hérlendis:
Einstök íþrótt
GOLF Fregnir herma að sænska
golfstjarnan Annika Sörenstam
gæti eftir allt saman enn tekið
þátt í mótum sem karlar hafa
hingað til einokað. Um er að ræða
styrktarmót sem ekki heyra undir
bandaríska golfsambandið.
Ef fer sem horfir gæti hún
mætt Tiger Woods og Retief
Goosen í Singapúr í nóvember og
hins vegar er mót í LaQuinta í
Kaliforníu. Áhugi fjölmiðla á
Anniku hefur aldrei verið meiri
og hefur áhorfendafjöldi á
kvennamótum í golfi vestra auk-
ist til muna eftir að hún réðst
gegn körlunum á Colonial-mótinu
fyrir skömmu. ■
ANNIKA SÖRENSTAM
Hefur aukið athygli á konum í golfi.
SIGURPÁLL GEIR SVEINSSON
Einn fremsti golfari Íslendinga.
JÓHANNES KARL GUÐJÓNSSON
Kevin Keegan reynir enn að fá Real Be
til að lækka verðið á honum.
Keegan í viðræðum við Betis:
Vill Jóhannes Karl
Golfmót vinnast
ekki á hetjuskotum
Sigurpáll Geir Sveinsson hefur spilað sitt best
golf undanfarið og er farinn að íhuga þátttök
á inntökumóti fyrir evrópsku mótaröðina.