Fréttablaðið - 13.07.2003, Side 4
4 13. júlí 2003 SUNNUDAGUR
Ertu sátt(ur) við að Trygginga-
stofnun þurfi ekki að greiða orlof
af fæðingarorlofi?
Spurning dagsins í dag:
Var innrásin í Írak réttlát aðgerð?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
43,2%
56,8%
Nei
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
ÓVENJULEGIR ÞRÍBURAR
Systurnar voru samvaxnar frá hálsi og
töldu læknar því ekki mögulegt að skilja
þær að.
Systur létust:
Samvaxnar
frá hálsi
BUENOS AIRES, AP Tvær argentínsk-
ar stúlkur sem fæddust samvaxn-
ar frá hálsi létust tæpum þremur
vikum eftir að þær komu í heim-
inn. Móðir stúlknanna eignaðist
einnig alheilbrigðan dreng.
Stúlkurnar tvær og bróðir
þeirra fæddust 21. júní síðastlið-
inn í borginni San Juan í Argent-
ínu. Systurnar deildu hjarta og
öðrum mikilvægum líffærum og
komust læknar að þeirri niður-
stöðu að ekki væri unnt að skilja
þær að. Voru þær settar í öndun-
arvél strax eftir fæðingu en önd-
unarfæri þeirra gáfu sig innan
þriggja vikna.
Þríburafæðingar af þessu tagi
eru afar sjaldgæfar, að sögn sér-
fræðinga. ■
Áætlunarflug til Bagdad í Írak:
Þrjú félög sækja um leyfi
FRANKFURT, AP Þýska flugfélagið
Lufthansa og Pólska flugfélagið
LOT hafa bæði sótt um leyfi til að
hefja áætlunarflug til Bagdad,
höfuðborgar Íraks. Áður hefur
skandinavíska flugfélagið SAS
sótt um leyfi til áætlunarflugs til
Bagdad. Áætlunarflug til Bagdad
lagðist niður árið 1990 í kjölfar
stríðsátaka.
Margir kaupsýslumenn þurfa
að ferðast til Íraks og binda fé-
lögin vonir við að flugið verði
jafn ábatasamt og áður.
Það eru bandarísk yfirvöld í
Írak sem veita áætlunarleyfin,
en þau hafa einmitt hvatt alþjóð-
leg flugfélög til þess að byrja að
fljúga til landsins. Lufthansa og
LOT ætla að hefja flugið síðsum-
ars.
„LOT hyggst fljúga milli Var-
sjár og Bagdad gegnum Beirút í
Líbanon. Við ætlum að fljúga
tvisvar í viku til að byrja með og
vonumst til að hefja flugið um
miðjan ágúst,“ sagði Leszek
Chorzewski, talsmaður LOT.
Áætlunarflug Lufthansa milli
Frankfurt og Bagdad skilaði
góðum hagnaði áður en
Persaflóastríðið braust út.
„Við höfum ekki enn fengið
svar en erum tilbúnir að hefja
flug viku eftir að það berst,“
sagði Thomas Jachnow, talsmað-
ur Lufthansa. ■
Samgöngur milli Ind-
lands og Pakistans
Áætlunarferðir með rútum hafa verið teknar upp að nýju á milli Ind-
lands og Pakistans eftir að hafa legið niðri í átján mánuði. Margir telja
þetta fyrsta skrefið í átt til friðar á milli landanna tveggja.
NÝJA-DELÍ, AP „Brú á milli tveggja
þjóða“ stóð skrifað stórum stöfum
á hlið indverskrar rútu sem lagði
af stað frá Nýju-Delí til Lahore í
Pakistan við mikinn fögnuð við-
staddra. Almenningssamgöngur
hafa verið teknar upp að nýju á
milli Indlands og Pakistans eftir
að hafa legið niðri í átján mánuði.
Áætlunarferðunum var hætt í
desember 2001 í
kjölfar árásar á
indverska þjóð-
þingið. Indversk
yfirvöld töldu að
pakistanska leyni-
þjónustan og her-
skáir múslímar
hefðu staðið á bak
við árásina og slitu
stjórnmálasambandi við nágranna
sína.
Önnur rúta lagði af stað frá
Lahore til Nýju-Delí og mættust
bílarnir á miðri leið. Á meðal
farþega voru blaðamenn, foreldr-
ar tveggja hjartveikra barna í
leit að læknishjálp og ættingjar á
leið í brúðkaup. Almenningur í
báðum löndum fagnar því af heil-
um hug að áætlunarferðirnar
skuli vera hafnar að nýju. Mörg-
um gefst nú tækifæri til þess að
hitta ættingja sína handan
landamæranna í fyrsta sinn í
hálft annað ár.
Mikil öryggisgæsla var í
tengslum við atburðinn. Leitað
var á farþegum og farangur
þeirra grandskoðaður auk þess
sem lögregla fylgdi báðum rútun-
um eftir.
Rútuferðirnar eru fyrsta stóra
skrefið í átt til friðar á milli Ind-
lands og Pakistans. „Við vonumst
nú til þess að fundin verði frið-
samleg lausn á öllum okkar
vandamálum“ sagði Bhuwan
Chandra Khanduri, samgöngu-
málaráðherra Indlands, sem
fylgdi rútunni úr hlaði í Nýju-
Delí. „Endurvakning áætlunar-
ferðanna hefur ekki aðeins vakið
von í brjóstum þegna landanna
tveggja heldur einnig opnað
tækifæri fyrir ferðaþjónustu og
menningarstarfsemi,“ sagði Raiz
Munir Ahmed, ferða- og menn-
ingarmálaráðherra Pakistans.
Ekki eru allir á eitt sáttir um
ágæti þess að áætlunarferðirnar
skuli vera hafnar að nýju. Í Nýju-
Delí mættu um 100 öfgasinnaðir
hindúar til að mótmæla brottför
rútunnar. Veifuðu þeir svörtum
fánum og hrópuðu svívirðingar að
rútufarþegunum.
Rúturnar munu fara á milli
Indlands og Pakistans tvisvar í
viku og taka ferðirnar um tólf
klukkustundir.
brynhildur@frettabladid.is
Ferðahættir fugla rann-
sakaðir:
Skúmar
með sendi
RANNSÓKN Tveir skúmar hafa verið
merktir með sendum í þeim tilgangi
að fylgjast með ferðum þeirra
næsta árið. Skúmarnir voru fangað-
ir í Öræfum en þar eru varpstöðvar
þeirra.
Fyrir ári voru fjórir skúmar
merktir með sama hætti og kom í
ljós að þeir ferðast ansi víða. Síðast
sást til eins á Grænlandshafi, annar
fór að vesturströnd Noregs, sá
þriðji flaug til Jótlands og sá fjórði
var við strönd Nova Scotia í
Kanada. Með rannsókninni er von-
ast til að hægt verði að kortleggja
ferðahætti og farleiðir fuglanna. ■
ARIEL SHARON
Ísraelski forsætisráðherrann heldur til
Washington síðar í þessum mánuði til að
funda með bandarískum ráðamönnum.
Ariel Sharon:
Á leið til
Washington
JERÚSALEM, AP Ariel Sharon, for-
sætisráðherra Ísraels, heldur í op-
inbera heimsókn til Washington í
lok þessa mánaðar til að ræða
áframhaldandi framkvæmd frið-
aráætlunar fyrir botni Miðjarðar-
hafs.
Ísraelska forsætisráðuneytið
hafði áður tilkynnt að Sharon færi
til Bandaríkjanna í september en
að sögn ísraelskra ráðamanna var
ferðinni flýtt að áeggjan banda-
rískra yfirvalda. Á sunnudaginn
heldur Sharon í fjögurra daga
heimsókn til Bretlands og Noregs.
Mahmoud Abbas, forsætisráð-
herra Palestínumanna, er einnig
væntanlegur til Washington í
sumar. ■
MEÐ TILHLÖKKUNARGLAMPA Í AUGUM
Pakistönsk börn bíða óþreyjufull eftir því að rútan leggi af stað frá Lahore til Nýju-Delí á
Indlandi.
■
Mörgum gefst
nú tækifæri til
þess að hitta
ættingja sína
handan
landamæranna
í fyrsta sinn í
hálft annað ár.
Á KORTIÐ Á NÝ
Þótt ástandið í Írak sé enn ótraust hafa að minnsta kosti þrjú flugfélög sótt um leyfi til
áætlunarflugs til Bagdad, höfuðborgar landsins.
WASHINGTON, AP George W. Bush, for-
seti Bandaríkjanna, sagðist í gær
harla ánægður með að George J.
Tenet, yfirmaður bandarísku leyni-
þjónustunnar CIA, skyldi taka á sig
alla ábyrgð á því að röng fullyrðing
hafi verið í stefnuræðu forsetans í
janúar síðastliðnum.
Bush hélt því fram í stefnuræðu
sinni að Írakar hefðu reynt að
kaupa efni í kjarnorkusprengjur í
Afríku. Fyrir nokkru viðurkenndi
Bush að þessi fullyrðing væri röng,
en bar fyrir sig að CIA hefði lesið
yfir ræðuna og lagt blessun sína
yfir þessa setningu.
Í lok yfirlýsingar sinnar í gær
sagði Tenet að efnislega hefði setn-
ingin í ræðu Bush reyndar verið
rétt, því forsetinn fullyrti reyndar
ekki annað en að „í skýrslu bresku
stjórnarinnar hafi sagt að Írakar
hafi sóst eftir úraníumi frá Afríku“.
Að mati Tenets var breska
skýrslan hins vegar ekki nógu
traust heimild til þess að verjandi
væri að hafa þessa fullyrðingu með
í ræðu forsetans. CIA hefði því átt
að „sjá til þess að setningin yrði tek-
in úr ræðunni.“
Jack Straw, utanríkisráðherra
Breta, svaraði gagnrýni Banda-
ríkjamanna fullum hálsi í gær og
sagði Breta hafa notast við upplýs-
ingar í skýrslu sinni, sem þeir hafi
ekki látið CIA í té. ■
Yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar
harðorður í garð bandamanna sinna:
Bresku stjórninni ekki
treystandi
GEORGE J. TENET
Yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar
CIA.