Fréttablaðið - 13.07.2003, Qupperneq 6
6 13. júlí 2003 SUNNUDAGUR
Boðin greiðsla fyrir að
falla frá nauðgunarkæru
Hún segir yfirmanninn hafa nauðgað sér og að vinir hans og vinnuveitendur hafi boðið sér 600
þúsund krónur félli hún frá kæru. Hún kærði og verður málið tekið fyrir dóm í haust. Hún vill
að maðurinn verði dæmdur.
Vinur hans hringdi í mig nánastdaglega, stundum oft á dag, og
bauð mér peninga fyrir að falla frá
kæru.“ Þetta fullyrðir 24 ára kona
sem segist vera fórnarlamb nauðg-
unar.
Hún starfaði í
Reykjavík. Konan
segir að þegar vinnu
var lokið eina nótt-
ina hafi yfirmaður-
inn ráðist á sig og
nauðgað sér. Þau
voru ein eftir á
vinnustaðnum. Hún
segir manninn hafa verið drukkinn
og æstan. Fyrr um kvöldið hafi
hann átti í útistöðum við aðra menn
og rifist við konuna sína í síma.
Konan segist hafa farið beint til
lögreglunnar þegar hún slapp frá
manninum og lagt fram kæru. Á
lögreglustöðinni segist hún hafa
fengið góðar móttökur. Síðan fór
hún á neyðarmóttökuna á Borgar-
spítalanum. „Þar hitti ég lækni sem
tók myndir og staðfesti að eitthvað
hefði gengið á. Mér var útvegaður
tími hjá lögfræðingi og tíu tímar hjá
sálfræðingi,“ Hún segir skipta
miklu máli að fara strax til að fá
áverkavottorð og ekki síður til að fá
þá hjálp sem þar er í boði.
„Ég var með glóðarauga, mar-
blett á handleggnum, marbletti á
innanverðum lærum og víðar. Fötin
mín voru öll rifin og tætt.“
Konan segir að fljótlega eftir að
hún kærði nauðgunina hafi vinnu-
veitendurnir hringt ítrekað og boðið
sér greiðslu félli hún frá kærunni.
Fyrsta voru henni boðnar 250 þús-
und krónur og síðasta tilboðið var
upp á 600 þúsund. „Þeir sögðu að ég
vissi ekki hvað ég væri að gera
manninum, hann ætti konu og börn.
Auk þess kæmi þetta sér illa fyrir
vinnustaðinn og setti framtíð hans í
hættu. Þeir héldu að ég væri að
kæra til að hafa peninga af mannin-
um. Ég kærði vegna þess að það var
brotið á mér og vegna þess að hann
þarf að bera ábyrgð á gerðum sín-
um.“
Hún treysti sér ekki til að vera í
Reykjavík eftir atburðinn og flutti
til Danmerkur. Sagðist ekki geta
hugsað sér að rekast á gerandann
og vinnuveitendurna á götum borg-
arinnar.
Hún átti kærasta síðastliðið
haust þegar hún segir nauðgunina
hafa átt sér stað. Eftir á leið henni
illa á margan hátt. Fannst eins og
henni væri um að kenna, eins og
hún hefði haldið framhjá. „Þetta
hafði hrikaleg áhrif á mig og hefur
eyðilagt mikið fyrir mér. Búið er að
taka frá mér frelsi. Mér finnst ég
ekki geta gert það sem mig langar
til. Þó ég viti betur núna kenni ég
sjálfri mér um allt. Til dæmis fyrir
að hafa verið að vinna þetta kvöld.“
„Ég vonast til að hann verði
dæmdur og fái að vita að hann verði
dæmdur fyrir það sem hann gerði
og komist ekki upp með það. Ef
hann kemst upp með þetta er hann
fær um að gera þetta aftur. Ég vil
ekki að aðrar konur þurfi að lenda í
því sem ég lenti í. Ég mun kannski
öðlast ró. Það eina sem ég hugsa
núna er hvort einhver muni trúa
mér. Á ég eftir að ganga inn í dóms-
salinn eins og kjáni sem enginn trú-
ir? Ég vil sjá fólk trúa mér og að
hann verði dæmdur.“
hrs@frettabladid.is
Neyðarmóttakan opnaði árið1993. Frá þeim tíma hefur orðið
ákveðin fjölgun á konum sem leita
til okkar. Við vitum ekki hvort mál-
in séu fleiri eða hvort fleiri vita af
neyðarmóttökunni og leiti sér að-
stoðar,“ segir Eyrún Jónsdóttir, um-
sjónarhjúkrunarfræðingur neyðar-
móttökunnar.
Eyrún segir að ekki sé bundið við
hvort þolandi ætli að kæra eða ekki
þegar leitað er til þeirra. Fyrst og
fremst sé þetta þjónusta við þolend-
ur sem þurfi stuðning. Frá opnun
neyðarmóttökunnar hafa komið
þangað 995 einstaklingar. Rúmlega
hundrað komi á ári síðustu ár. Í
fyrra komu 119 en 136 árið þar á
undan. Mest munaði um Eldborgar-
hátíðina. Árlega leita einn til sex
karlmenn sem þolendur til þeirra.
Hún segir miklu skipta að koma
á neyðarmóttökuna sem fyrst, ekki
síst vegna sakargagna. Í nauðgun-
armálum stendur oft orð gegn orði.
Því er mikilvægt að fá gögn sem
geta stutt sögu þolandans. Neyðar-
móttakan er fyrst og fremst til að
fá læknis- og réttarlæknisskoðun
og síðan stuðning, sem er viðtöl við
ráðgjafa og sálfræðing ef við-
komandi vill. Þjónusta lögmanna er
ókeypis eins og öll önnur þjónusta.
Réttargæslumaður fylgir þolanda í
gegnum allt málið sé tekin ákvörð-
un um kæru. ■
Þolendur
kynferðisofbeldis:
Þurfa hjálp
strax
Jóna Hrönn Bolladóttir mið-borgarprestur hefur oftsinnis
verið sálusorgari þeirra sem hafa
verið beittir kynferðislegu ofbeldi.
Hún segist finna mjög fyrir því
hversu djúp og ör-
væntingarfull sorg
þeirra er sem hafa
gengið í gegnum
slíkt ofbeldi. „Ég hef
bæði sinnt þeim sem
eru í áfalli eftir ný-
afstaðna nauðgun og
einnig þeim sem eru
að opna svona mál
eftir mörg ár. Í þeim
tilfellum er sorgin
ekki síður djúp og
það hefur kennt mér
hversu mikilvægt er
að taka á svona málum strax. Það er
verst þegar þolandinn byrgir til-
finningar sínar inni, því þá fara í
gang alls konar ranghugmyndir þar
sem þolandinn fyllist sektarkennd
og fer að ásaka sjálfan sig,“ segir
Jóna Hrönn.
Hún hefur þó séð þolendur kyn-
ferðisofbeldis ná ótrúlegum bata.
„Ég hef líka séð hvernig trúin hefur
hjálpað fólki að verða heilt á ný.
Trúin boðar að við séum heilög
musteri og óendanlega dýrmætar
manneskjur. Það er ekkert sem gef-
ur neinum leyfi til að vaða að þessu
musteri og misnota það. Það er með-
al annars leið sálusorgarans að
benda þolendum á þetta.“ ■
NEYÐARMÓTTAKA
Neyðarmóttaka er fyrst og fremst þjónusta
við þolendur sem þurfa stuðning.
FÓRNARLAMB NAUÐGUNAR
24 ára stúlka segir miklu skipta að fara á neyðarmóttöku til að fá þá hjálp sem þar er í
boði. Myndin er sviðsett.
■
Þeir sögðu við
mig: „þú veist
ekki hvað þú
ert að gera
manninum,
hann á konu og
börn.“
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/I
N
G
Ó
Neyðarmóttaka Landspítalans í Fossvogi:
995 hafa leitað til
neyðarmóttökunnar
JÓNA HRÖNN
BOLLADÓTTIR
Hún segir sér-
staklega mikil-
vægt að þolend-
ur kynferðislegs
ofbeldis fái hjálp
strax.
S P O R T S W E A R
TM
Meistaram
ótin nálga
st
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
2
17
30
07
/2
00
3
Gæðafatnaður frá
CROSS
www.utilif.is
Smáralind - Glæsibæ
Sími 545 1550 - 545 1500
Smáralind
mán.-fös.kl. 11-19
lau. kl. 11-18
sun. kl. 13-18
Glæsibæ
mán.-fös.kl. 10-18
lau. kl. 10-16
OPIÐ
Nú eru meistaramót klúbbanna framundan.
Góður árangur í golfi skapast af samspili
margra ólíkra þátta en vandaður og þægi -
legur fatnaður er sannarlega einn þeirra.
Þú leikur betra golf í fötum sem þér líður
vel í.
Kaupm.höfn
London
París
Berlín
Algarve
Benidorm
Torrevieja
Krít
Kýpur
Róm
New York
Miami
20°C skýjað m. köflum
24°C heiðskírt
27°C heiðskírt
23°C skýjað m. köflum
33°C léttskýjað
30°C skýjað m. köflum
31°C skýjað m. köflum
26°C heiðskírt
27°C heiðskírt
28°C heiðskírt
20°C skýjað
27°C mögul. þrumuv.
MánudagurÍ dag
Þriðjudagur
Veðrið úti í heimi í dag
Úrkomusvæði eru skyggð á kortinu. Minniháttar skúraleiðingar eru táknaðar með dropum. Hitatölur sýna hæstu hitagildi dagsins.
Veðrið
Egilsstaðir koma
sterkir inn í veðrinu
í dag. Þar eru horf-
ur á hlýju og birtu.
Hins vegar má ætla
að vel viðri á
gróðurinn í Hafnar-
firði og nágrenni.
M.ö.o. rigning og
hægur vindur.
Ferðafólk á Austur-
landi ætti því að
geta leikið við
hvern sinn fingur.
Allar horfur eru
hins vegar á því að
menn geti brúkað
regnhlífarnar sínar
þar sem rigning
verður því vindur
verður víðast
hægur. Munið eftir
bílbelt-
unum.
Kveðja,
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veðurfræðingur
Hægur
vindur
Hægur
vindur
Gola
Hægur vindur
Hægur
vindur
Hægur
vindur
Gola
Gola
Hægur
vindur
Hægur vindur