Fréttablaðið - 13.07.2003, Side 17
■ Íslenskur her
Mig grunar að þeir sem talahelst fyrir því að stofna her
vilji koma á fót enn einni stofnun-
inni þar sem þeir geta valsað um
með borðaklæddum mönnum og
gert plön,“ sagði einn viðmælandi
Fréttablaðsins um hugmyndina
sem nokkuð hefur gætt í umræð-
unni undanfarið, af gefnu tilefni,
að Íslendingar stofni eigin her.
„Sumir tala beinlínis um að búa
sér til bakland,“ sagði viðmæland-
inn enn fremur. „Mér finnst
stundum vera hálf fasískur tónn í
þessu.“
Það er óhætt að segja að hug-
myndinni um íslenskan her hafi
ævinlega verið mætt með nokk-
urri hæðni af hálfu Íslendinga.
Margir eiga erfitt með að sjá fyr-
ir sér Íslendinga í herbúningum
marsera niður Skólavörðustíg á
hersýningu í fylgd með brynbíl-
um, vopnaða hríðskotabyssum.
Þar á ofan eiga margir í miklum
erfiðleikum með að sjá fyrir sér
af hverju Íslendingar ættu að
hafa sveitir manna undir vopnum
yfirhöfuð. Þörfin er ekki augljós.
Að vernda byggingar
Ljóst er að Bandaríkjamenn
meta stöðu Íslands á þann veg að
landið sé ekki lengur hernaðar-
lega mikilvægt. Sú staðreynd að
þeir íhuga nú að taka herlið sitt á
brott af þeim sökum vekur marg-
ar spurningar. Margir telja lykil-
atriði að landið verði ekki varnar-
laust. Ef herinn fer hins vegar af
þeim sökum að landið sé ekki
hernaðarlega mikilvægt má
spyrja sig hvort það mat sé ekki
einmitt næg ástæða fyrir Íslend-
inga til þess að hafa litlar áhyggj-
ur af málinu og láta þar við sitja.
„Það er enginn að tala um að Ís-
lendingar myndu taka yfir starf-
semina sem er á Keflavíkurflug-
velli,“ sagði embættismaður inn-
an stjórnarráðsins í samtali við
blaðið. „Það er einfaldlega út úr
kortinu. Hins vegar er það spurn-
ing hvort við þurfum ekki að
halda uppi einhverri lágmarks-
starfsemi til þess að tryggja innra
öryggi.“ Bent er á að Íslendingum
eins og öðrum þjóðum stafi hætta
af hryðjuverkum. Það gæti því
verið þörf á lágmarksöryggis-
sveitum til þess að afla og halda
utan um upplýsingar sem kynnu
að berast og bregðast við þeim.
Nauðsyn gæti skapast á því að
vernda mikil-
vægar bygging-
ar og líf og limi
borgaranna. Við-
mælandi blaðs-
ins ræddi um
Falun Gong-mál-
ið í þessu samhengi. „Þó svo að
það hafi lítil hætta stafað af þeim
kom það bersýnilega í ljós í því
máli að sá hópur taldi ákjósanlegt
að koma til Íslands vegna þess að
þar væri lítil öryggisgæsla. Það
má ímynda sér að mun verri staða
kæmi upp. Það er aldrei að vita
hvað gerist.“
2.400 manna her eðlileg
stærð
Ef Ísland færi að dæmi ann-
arra þjóða og færi að verja lág-
marksupphæðum til varnarmála
miðað við það sem aðrir þjóðir
greiða myndi það leiða til þess
að 5 til 6 milljarðar rynnu til
varnarmála á ári hverju. Það
eru um eitt til tvö prósent af
heildarútgjöldum ríkisins. Ef
þjóðin færi að dæmi Norðurland-
anna og hefði undir vopnum 1,5%
af mannafla, sem telur um 160
þúsund manns, yrði íslenski her-
inn um 2.400 manns. Á það ber að
líta að það er sami mannfjöldi og
herinn á Keflavíkurflugvelli er
með nú.
Ljóst er því að her á vegum Ís-
lendinga, sem yrði sambærilegur
við herinn á Miðnesheiði, er ekki
fáránlegur í alþjóðlegu samhengi.
Af alþjóðlegum sjónarhóli mætti
slíkur her teljast lágmarksstærð.
En af sjónarhóli Íslendinga,
sem hafa aldrei haft innlendan
her, kann málið að horfa öðruvísi
við. Viljum við verja sömu upp-
hæð til varnarmála og við verjum
til Háskóla Íslands á ári hverju?
Hvar finnum við 2.400 Íslendinga
sem vilja ganga í her? Höfum við
efni á búnaði, þjálfun og viðhaldi,
sem rokkar á tugum milljarða?
Hernaðarútgjöld Bandaríkj-
anna eru áætluð um 28 þúsund
milljarðar króna á næsta ári. Lík-
legt þykir að aukning Bandaríkja-
manna á útgjöldum til varnarmála
muni hafa í för með sér aukningu
í útgjöldum annarra landa til
varnarmála, til þess að halda í við
þróunina. Í samhengi heimsmál-
anna má líta svo á að spurningin
fyrir Íslendinga sé sú hvort þeir
ætli sér á einhvern hátt að taka
þátt í þessum dansi og gerast her-
veldi. Það yrði algerlega nýtt við-
fangsefni fyrir land og þjóð
og í mörg horn að líta, eins
og hér er farið yfir.
gs@frettabladid.is
16 13. júlí 2003 SUNNUDAG
„Það er
aldrei að vita
hvað gerist.
Ef Íslendingar stofna her þarfhershöfðingja. Hann þarf vita-
skuld að vera miklum kostum bú-
inn. Spurningin er hvort slík hæfi-
leikamanneskja leynist á meðal
Íslendinga. Þeir fjölmörgu álits-
gjafar sem Fréttablaðið leitaði til
brugðust skjótt við þegar þeir
voru beðnir um að nefna nöfn,
enda er hér ný og spennandi
vangavelta á ferð.
Hinn íslenski Patton:
Guðjón Þórðarson
Guðjón Þórðarson knatt-
spyrnuþjálfari var oftast nefndur
í stöðuna. Framganga hans á hlið-
arlínunni virðist koma mönnum
fyrir sjónir sem mjög í stíl herfor-
ingja. „Hann stjórnaði Stoke og
landsliðinu eins og herforingi,“
sagði einn viðmælandi blaðsins.
„Hefur grimmdina sem til þarf.“
„Ég sé hann fyrir mér í fullum
herklæðum,“ sagði annar. „Fáir
hafa sýnt meiri herkænsku en
hann,“ sagði sá þriðji. „Hann
slökkti í ríkjandi heimsmeistur-
um.“ „Vægðarlaus náungi,“ sagði
knattspyrnuáhugamaður sem var
í engum vafa um hæfileika Guð-
jóns á sviði hernaðar. Guðjón
Þórðarson verður samkvæmt
þessu að teljast herforingjaefni
Íslendinga númer eitt.
Aðrir tilnefndir
Bubbi Morthens. „Bubbi hefur
útlitið, viðhorfið og fasið til að
fara fyrir flokki manna í stríði.“
„Blæbrigðaríkur talandi hans
hljómar sífellt meira eins og rödd
Winstons Churchills þegar hann
var upp á sitt besta.“ Davíð Odds-
son. „Hann hefur þegar ákveðið
þátttöku okkar í stríði. Sýndi fá-
dæma æðruleysi þrátt fyrir tví-
sýna stöðu.“ Haraldur Jóhannes-
sen. „Virðist kunna ágætlega við
sig í einkennisbúningi.“ „Hrein-
ræktaður herforingi.“ Helgi Vil-
hjálmsson í Góu. „Eitilharður
naggur og dugnaðarforkur.“ Einar
Karl Haraldsson. „Góður í ein-
hvers konar gæsluliði.“ Ögmund-
ur Jónasson. „Sérsveitarmaður.
Minnir ögn á Rambo.“ Hrafn Jök-
ulsson. „Það sem her þarf er beitt-
ur ræðumaður sem blæs eldmóði í
sitt fólk.“ Gunnar Eyjólfsson.
„Margra ára höfðingjareynsla.“
Grétar Örvarsson. „Mjög reffil
ur. Með þunnt og þráðbeint y
varaskegg gæti hann dottið in
suður-amerísku hershöfðing
týpuna.“ Sigmar B. Haukss
„Vegna þess að hann er forma
Skotveiðifélagsins.“ Kári Stefá
son. „Rumsfeld-týpan.“ K
Steinar Valsson. „Kann að ski
leggja hersveitir.“ Georg Lár
son. „Kæmi hlutunum í verk
gæti haldið góðri ímynd á hern
í leiðinni.“ Eyþór Arnalds. „My
tala um strategíu og skoða ko
reykherbergi í klæðskerasau
uðu júniformi með bryddingum
Tómas Ingi Olrich. „Væri góðu
hnébuxum, með gullspangagl
Her þarf búnað.
Lauslega áætlað virðist
innkaupalistinn vera
heldur dýr.
Réttu
græjurnar
F16 „Fighting Falcon“ orr-
ustuflugvél. Hún er mun ódýrari
en F15-vélarnar sem nú eru á
Keflavíkurflugvelli. Norðmenn
nota F16 og því ættu þær einnig
að henta okkur. Ein vél kostar um
1,2 milljarða króna. Við þyrftum
að lágmarki fjórar, til þess að
mynda lágmarks flugsveitarein-
ingu sem nýtast myndi til að-
gerða, hverjar sem þær yrðu. Inn-
kaupakostnaður yrði því í kringum
4,8 milljarðar króna.
C-130 Hercules. Ef við viljum vera
flott á því kaupum við Hercules.
Hún getur til dæmis nýst sem
bensínflutningavél ef við þurfum
að grípa til aðgerða á úthafi. Sá
hængur er hins vegar á að ein slík
vél kostar um 4 milljarða króna.
Svo kemur viðhald og starfs-
mannahald í ofanálag.
AIM-9 „sidewinder“ flugskeyti.
Orrustuflugvélarinnar verða vænt-
anlega að hafa einhver vopn. Eitt
svona flug-
skeyti, með
hitasæknu,
innrauðu
leiðsögu-
kerfi, tilval-
ið í F16-flugvélarnar, kostar um
6,5 milljónir króna. Óljóst er hver-
su margar eldflaugar Íslendingar
þyrftu.
Hummer-herbílar. Íslendingar
hefðu lítið að gera við skriðdreka,
en herbílar gætu komið að ein-
hverjum not-
um. Hægt
er að fá
notaða
Humm-
er-jeppa
fyrir eina
og hálfa milljón. Nýir kosta þeir
um og yfir 10 milljónir.
7.62mm FN MAG alhliða vél-
byssa. Þessi vélbyssa er mikið
notuð um allan heim, m.a. af
hernum í Lúxemborg. Hægt er að
hafa hana bæði á tvífæti og á þrí-
fæti og hún þykir létt í meðförum.
Hún gæti því hentað vel í íslenskri
hraunójöfnu. Eitt stykki kostar um
eina milljón.
Five-seveN® Tactical skamm-
byssa. Hinir hærra settu í hernum
myndu ef til vill hafa skammbyssu
í belti. Þessi er
nokkuð
ný af
nálinni
og þykir stöðug
og nákvæm. Hún
kostar um 50 þúsund
krónur. ■
Hershöfðinginn
Hver ætti að fara fyrir hernum? Væntanlega
þyrfti að leita í raðir óbreyttra borgara.
GUÐJÓN ÞÓRÐARSON
Knattspyrnuþjálfarinn snjalli virðist í fljótu
bragði henta vel í stöðuna. „Ég sé Guðjón
fyrir mér í fullum herklæðum,“ sagði einn
álitsgjafa Fréttablaðsins. „Fáir hafa sýnt
meiri herkænsku en hann.“
KARL STEINAR VALSSON
„Kann að skipuleggja hersveitir.“
Hugmyndir um íslenskan her hafa fengið byr undir báða vængi að undanförnu.
En hvernig yrði slíkur her? Hvað myndi herinn kosta og hvers vegna ættu Íslendingar
yfirhöfuð að stofna hann? Er hægt að taka hugmyndina alvarlega?
Herveldið Ísland