Fréttablaðið - 13.07.2003, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 13.07.2003, Blaðsíða 31
Maður vaknaði við steikar-lyktina og vissi að það var sunnudagur,“ segir Ingibjörg Pálmadóttir, fyrrverandi heil- brigðisráðherra, um sunnudags- steikina sem var fastur liður í lífi hennar í æsku og er enn. Ingibjörg hefur haldið í þann góða sið að borða hádegismat með sínum nánustu á sunnudög- um og erft hefðirnar sem í heiðri voru hafðar á æskuheimili henn- ar: „Það sem hefur breyst er að sveskjugrauturinn hefur vikið fyrir Emmess-ísnum. Það gerðist hægt og sígandi. Einnig hitt að hér áður fyrr var sunnudags- steikin alltaf tilbúin á slaginu tólf, strax að lokinni útvarps- messu. Núna getur það skeikað korteri eða tveimur. En steikin er á sínum stað.“ Börn Ingibjargar hópast til hennar í hádeginu á sunnudög- um og það þarf ekki að láta þau vita eða bjóða: „Það er eins og þau renni á lyktina og koma alltaf á réttum tíma þó hann sé ekki alltaf sá sami. Galdurinn við sunnudagssteikina hjá mér, eins og svo mörgum öðrum, er að hafa hana nógu lengi í ofnin- um. Þá verður hún mjúk og minna þarf að tyggja. Það er vinsælt,“ segir Ingibjörg, sem tekur hrygg fram yfir læri þeg- ar sunnudagssteikin er annars vegar. „Þegar maður er með marga í mat er betra að vera með læri. Það er drýgra. En ég reyni að vera með hvort tveggja og þá er slegist um hrygginn. Lærið mætir svo afgangi. Ég held að það sé puran á hryggn- um sem gerir gæfumuninn. Hún er víst óholl en góð,“ segir Ingi- björg, sem slær alltaf upp sömu sósunni í hádeginu á sunnudög- um: „Ég geri eins og mamma. Tek soðið, fleyti fitunni ofan af og bæti svo í sósujafnara, rjóma og sultutaui. Sultan gerir úts- lagið og gefur fallegan lit. Svo drekkur maður malt og appelsín með þessu,“ segir Ingibjörg, sem ætlar að viðhalda þessari sunnudagshefð á sínu heimili um ókomna tíð. Siðurinn sé góð- ur og samvera fjölskyldunn ekki síðri. Sunnudagssteik haldi þessu svo öllu saman. eir@frettablad Þetta var svo spennandi að éggat ekki sagt nei,“ segir Andrés Sigurvinsson, leikari og leikstjóri, sem ráðinn hefur ver- ið framkvæmdastjóri Fræðslu- og menningarsviðs Vestmanna- eyjakaupstaðar. Tekur Andrés við starfinu í kjölfar skipulags- breytinga á stjórnkerfi bæjarins sem gengu í gildi á dögunum og kostuðu meðal annars bæjar- stjórann starfið. Andrés er Vest- mannaeyingur í húð og hár, bróðir Ásgeirs landsliðsþjálfara í fótbolta, en flutti frá Eyjum 1968 og hefur vart verið þar síð- an: „Ég var hér reyndar einn vet- ur árið 2000 og nú síðast var ég formaður Goslokanefndar sem stóð fyrir miklum hátíðahöldum hér í bænum sem tókust vel. Við létum Helgafellið meira að segja gjósa blöðrum,“ segir Andrés, sem flytur nú af Kaplaskjólsveg- inum í Reykjavík og út til Eyja eftir langt ferðalag upp á fasta landið. Í Eyjum á hann marga vini, móður og bróður og þekkir nánast hverja þúfu og stein. Orð- inn 54 ára og söðlar um með bros á vör: „Ég hef mest verið að leik- stýra á mínum leikaraferli því ég komst snemma að því að ég var ekki nógu góður leikari. Svo er líka miklu skemmtilegra að leikstýra,“ segir Andrés og er viðbúið að leiklistarstarfsemin í Vestmannaeyjum taki kipp og fái vítamínsprautu þegar Andr- és mætir á svæðið. Hann situr aldrei aðgerðalaus að óþörfu: „Já, ég bý einn með kettinum mínum. Við förum saman til Eyja,“ segir hann. ■ FYRIRTÆKI TIL SÖLU. Var að fá í einkasölu þekkt veitingahús í miðbæ Reykjavík á frábæri verði Er með á skrá öflugan söluturn í Grafarvogi með góðri veltu Traust og góð bílaþvottastöð í eigin húsnæði til sölu Þekkt geisladiskaverslun með meiru í miðbæ Reykjavíkur til sölu Góður matsölustaður í Ármúla til sölu, sæti fyrir 50 manns Til sölu þekkt og öflugt hótel miðsvæðið í Reykjavík Lítið sælgætisframleiðslufyrirtæki til sölu, hentar víða um land Þekktur vínveitingarstaður í miðbæ Reykjavík á fínu verði Fiskvinnslufyrirtæki í útflutningi á grandanum vel tækjum búið og fín viðskiptavild. Eigið húsnæði Glæsilegur veitingastaður í austurbæ Reykjavík til sölu GO-KART í Reykjanesbæ í einkasölu, leitið uppl. Er með mjög öflug, góð og þekk fyrirtæki á skrá fyrir fjárfesta og aðra athafnamenn. Kristinn R. Kjartanson 5209312 - 8972338 kiddi@remax.is Hrafnhildur Bridde, löggiltur fasteignasali Suðurlandsbraut OPIÐ HÚS Í DAG - HVERAGERÐI FALLEG RAÐHÚS VIÐ BJARKARHEIÐI OG RÉTTARHEIÐI Í HVERAGERÐI. Húsin eru timburhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr og skriðkjallara. Húsin verða afhent samkvæmt byggingarstigi 1 eða byggingarstigi 2. Elísabet sölufulltrúi RE/MAX tekur á móti gestum milli kl. 15 - 17 sunnudaginn 13.júlí 2003. Verð eignar: Verð húsanna á byggingarstígi 1: Verð húsann á byggingarstigi 2: a) Endahúsin kr. 9.8 millj. a) Endaraðhús kr. 14,7 millj. b) Millihús kr. 9.5 millj. b) Millihús kr, 14,2 millj. Elísabet Agnarsdóttir, 861 3361 elisabet@remax.is Heimilisfang: Bjarkarheiði 16,18,20 og Réttarheiði 12 Stærð eignar: 96,3 fm Stærð bílskúrs: 22,6 fm Byggingarár: 2003 Byggingarefni: Timbur Áhvílandi: 7millj. Hans Pétur Jónsson, löggiltur fasteignasali MJÓDD LEGSTEINAR Mikið úrval af legsteinum og fylgihlutum Sendum myndalista MOSAIK Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík, sími 587 1960 Marmari Granít Blágrýti Gabbró Líparít 30 13. júlí 2003 SUNNUDAG ■ Bíltúrinn Hvað er gleði eða það að vera glað-ur?“ spurði Sören Kierkegaard. „Það er í sannleika að vera nærverandi sjálfum sér; en að vera í sannleika sjálf- um sér nærverandi, það er þetta í dag, þetta að vera í dag, í sannleika að vera í dag. . . . Ólukkans morgundagurinn er ekki til fyrir þér. Gleðin er nútíðin með allri áherslu á: hinn núlíðandi tíma.“ Sören Kierkegaard(1813-1855) var danskur heimspekingur. Tilvitnunin að ofan er úr ritgerðinni „Lilien paa Marken og Fuglen under Himlen“. Hugleiðingin Sunnudagssteikin ■ Í æsku vaknaði Ingibjörg Pálmadóttir við steikarlykt og vissi þá að það var sunnudagur. Hún heldur í þann góða sið að vera með sunnudagssteik og tekur hrygginn fram yfir lærið. Persónan ANDRÉS SIGURVINSSON LEIKSTJÓRI ■ hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Fræðslu-og menningarsviðs Vestmanna- eyjakaupstaðar. Snýr aftur á æskuslóðir eftir 35 ára fjarveru. Með köttinn til Eyja Enda í sundi Fengi ég að ráða æki ég sem leiðliggur að Reykjanesvita. Sér- staklega í sunnanstrekkingi því þá er svo gaman að fylgjast með briminu,“ segir Guðjón Arngríms- son, upplýsingafulltrúi Flugleiða, um sunnudagsbíltúrinn sinn. „Ég pirra fjölskylduna með svona uppástungum og sérstaklega finnst börnunum þetta lítið spenn- andi. En þarna er eitthvað sem heillar. Á bakaleiðinni stoppar maður í vegasjoppu og fær sér ís, pulsu eða Prins polo. Það tilheyrir og Njarðvíkursjoppan er tilvalin til þessa. Bíltúrinn myndi ég svo enda í sundi; annað hvort í Bláa lóninu eða Árbæjarlauginni.“ ■ Slegist um hrygginn ANDRÉS SIGURVINSSON Lét Helgafellið gjósa blöðrum á Gosloka- hátíð. INGIBJÖRG PÁLMADÓTTIR Sveskjugrauturinn vék fyrir Emmess-ísnum fyrir þó nokkru. Maltið og appelsínið eru enn á sínum stað. Gleðin er nútíðin FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T GUÐJÓN ARNGRÍMSSON Mælir með bíltúr að Reykjanesvita.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.