Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.08.2003, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 06.08.2003, Qupperneq 10
Ríkisstjórn Íslands kom samaní gær. Á dagskrá var eitt mál; Bókmenntahátið í Reykjavík 2003. Upplýsingar um fundinn voru sendar til fjölmiðla. Það er alltaf gert að loknum ríkisstjórn- arfundum. Þetta er ekki alltaf svo gott. Fyrir ekki löngu síðan hélt Davíð Oddsson forsætisráðherra blaðamannafund í Ráðherrabú- staðnum. Þar ræddi ráðherrann um meint samráð olíufélaganna, stöðu mála í samskiptum ís- lenskra stjórnvalda og banda- rískra vegna varna Ísland auk annarra mála sem þjóðina varðar um. Einn fjölmiðil vantaði á fund- inn. Fréttablaðinu barst ekki boð um fundinn og hann var haldinn án þess að Fréttablaðinu gæfist kostur á að mæta. Það sem kanns- ki er merkilegra, er að þennan sama morgun reyndi blaðamaður frá Fréttablaðinu að fá viðtal við Davíð Oddsson um þau mál sem hann var að ræða við aðra fjöl- miðla. Svörin sem blaðamaðurinn fékk í forsætisráðuneytinu voru lítilfjörleg. Ekki náðist í ritara ráðherra og ekki ráðherrann sjálfan. Hann var vant við látinn. Var á blaðamannafundi með full- trúum allra fréttafjölmiðla, nema Fréttablaðsins. Þegar fréttir útvarpsstöðv- anna vitnuðu í hádeginu þennan dag í blaðamannafund með ráð- herranum, var reynt að leita skýringa á hvers vegna Frétta- blaðinu var ekki boðið til fundar- ins. Ekki náðist í ráðherrann, ekki í ritarann, ekki í aðstoðar- mann ráðherrans og ekki í ráðu- neytisstjórann. Spurt var hvort hægt væri að fá skýringar á því hvers vegna Fréttablaðinu var ekki boðið til fundarins. Eina svarið var að þeim fjölmiðlum einum hafi verið boðið sem höfðu reynt innan einhvers ótiltekins tíma að ná tali af ráðherranum. Hinum ekki. Það er Fréttablað- inu. Munnlega var óskað frekari skýringa. Þær hafa ekki fengist. Elstu og reyndustu menn rit- stjórnar Fréttablaðsins sem hafa langa reynslu, muna ekki að áður hafi verið settar reglur um hvaða fjölmiðlum sé boðið til blaða- mannafundar forsætisráðherra. Vonandi festast þessir starfs- hættir ekki í sessi. Fréttablaðið beið ekki skaða af ákvörðun ráðuneytisins. Blaðið kom út og lesendur þess virðast hafa sæst á að ekki voru jafn ítar- legar fréttir af viðhorfum forsæt- isráðherra í Fréttablaðinu og hin- um fjölmiðlunum. Þrátt fyrir að Fréttablaðinu sé ekki boðið og engar skýringar fáist á hvers vegna það er ekki gert, mun blað- ið eftir sem áður flytja fréttir af gerðum æðstu embættismanna þjóðarinnar. ■ Samkynhneigð er mikið félags-legt og siðferðilegt áhyggju- efni,“ segir Jóhannes Páll páfi annar í páfabréfi sínu frá því á fimmtudaginn síðasta sem vakið hefur nokkra at- hygli og var mótmælt m.a. af ungum jafnaðar- mönnum hér á landi um helg- ina. „Ekki síst er samkynhneigð mikið áhyggju- efni í þeim lönd- um þar sem hjónabönd sam- k y n h n e i g ð r a hafa verið viður- kennd.“ P á f a b r é f i ð var sent biskup- um kaþólsku kirkjunnar og er meiningin sú að biskuparnir láti boðskap þess ganga til kaþólskra söfnuða og skóla. Tíðindin með bréfinu þykja ekki síst þau, að páfi skuli beinlín- is ætlast til þess að kaþólskir embættismenn vinni gegn þeim fyrirætlunum löggjafanna að lög- leiða hjónabönd samkynhneigðra. Í bréfinu segir að tilgangur þess sé að „bjóða fram rökstuðning byggðan á skynsemi, sem geti nýst biskupum víðs vegar um ver- öldina til þess að grípa inn í at- burðarásina.“ Ljóst er að afstaða Páfagarðs er umdeild. „Við skulum ekki fara í neinar grafgötur með það,“ skrifaði leiðarahöfundur Der Standard í Austurríki. „Kaþólska kirkjan er vonlaus.“ Í fimmtán þúsund manna könnun sem Gallup gerði í Evrópulöndum í júlí síðastliðnum kom fram að 57% íbúa Evrópusambandsins eru hlynnt hjónaböndum samkyn- hneigðra. Nær stuðningurinn allt upp í 80% í Danmörku og Hollandi. Í sumum löndum nýtur páfi þó meira fylgis hvað þetta varðar. Minnstur mældist stuðn- ingur við hjónabönd samkyn- hneigðra á Kýpur, eða 9%. Sumir hafa orðið til að benda á það, að afstaða kaþólsku kirkjunn- ar kunni einnig að eiga sér aðrar ástæður en trúarlegar. Kaþólska kirkjan hefur undanfarið þurft að eiga við ýmiss hneykslismál tengd kynferðislegri misnotkun. Í flest- um tilvikum eru slík mál sprottin af því að samkynhneigðir prestar, ókomnir út úr skápnum, hafa leit- að á unglingsstráka. Þetta kann að skýra að hluta til af hverju páfa er svo í nöp við samkynhneigð. ■ Baksviðs ■ Talað er um að Páfagarður hafi hafið herferð gegn hjónaböndum samkyn- hneigðra. Mál manna SIGURJÓN M. EGILSSON ■ skrifar um samskipti fjölmiðla og ríkisvaldsins. 10 6. ágúst 2003 MIÐVIKUDAGUR Útgáfufélag: Frétt ehf. Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson Ritstjórnarfulltrúar: Reynir Traustason og Steinunn Stefánsdóttir Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Suðurgötu 10, 101 Reykjavík Aðalsími: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Rafpóstur auglýsingadeildar: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð- borgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á lands- byggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 Ásínum tíma tókum við ákvarð-anir um stækkun fiskveiðilög- sögunnar þvert á ríkjandi skoðun í heiminum og höfðum þann árangur að gerbreyta viðhorfum manna til nýtingarréttar og fiskveiðistjórnun- ar. Þetta sýndi að með samtaka- mætti og trú á málstað getur lítil þjóð fengið ýmsu áorkað. Í kjölfar Þorskastríðanna var stundum haft á orði, að svo harðdrægir hefðu Ís- lendingar reynst, að forsjóninni væri fyrir að þakka að þeir væru ekki fjölmennari en raun ber vitni. Þá fyrst yrðu þeir varasamir þegar þeir kæmust í tölu milljónaþjóða. En dugnaður og eftirfylgni er síður en svo slæm, allt er undir því komið hver málstaðurinn er sem barist er fyrir. Ég er nokkuð viss um að innst inni þykir flestum hlutskipti okkar á alþjóðavettvangi vera vesælt nú um stundir. Núverandi ríkisstjórn hefur unnið sér það helst til afreka að reisa rándýr sendiráð, lofa hundruð- um milljóna inn í hermálahít Nató og ganga lengra en flestar aðrar þjóðir heimsins í gagnrýnislausum stuðningi við hernaðarstefnu Bandaríkjastjórnar. Alltaf eru þeir mættir, Davíð og Halldór, þegar kallað er frá Washington. Þeir þurfa ekki annað en klapp á kollinn, eða eitt símtal frá einhverjum háttsett- um, til að verða sælir með sitt. Átak- anlegust var barnsleg gleði ríkis- stjórnarinnar þegar henni var hrós- að fyrir að halda hér á landi áfalla- lausan fund æðstu manna Nató. Bætt samningsstaða á kostnað mannorðsins? Og nú vilja þeir fá að komast í Öryggisráðið. Það ætti að vera Ís- lendingum mikið kappsmál, segja þeir Davíð og Halldór, og kveðast hafa áform um að setja bæði mik- inn mannafla og fjármuni til að tryggja okkur setu í ráðinu. En hvaða stefnu á að framfylgja þar? Í þágu hvaða málstaðar ætlum við að beita okkur? Erum við að sækjast eftir aðild að Öryggisráði Samein- uðu þjóðanna til að fylgja þeirri stefnu sem við höfum fylgt á und- anförnum árum? Eða eru uppi aðr- ar hugmyndir? Tökum dæmi um hitamál sem upp hafa komið á vettvangi SÞ. Hver hefði afstaða Íslendinga verið árið 1990 þegar ákvörðun var tekin um að ráðast á Írak og í kjölfarið setja mjög umdeilt viðskiptabann á þjóðina? Þá voru uppi miklar deilur sem enduðu með þvingunum og stórfelldum mútugreiðslum af hálfu Bandaríkjastjórnar. Ríkis- stjórn Íslands hefði án efa stutt sína menn í Washington. Spurning- in er hvort hún hefði notað tæki- færið til að eiga orðastað um fram- tíð Keflavíkurflugvallar. Ef marka má yfirlýsingar framsóknarþing- manna nú í sumar styrkti afstaða okkar í Íraksmálinu stöðu okkar gagnvart Bandaríkjastjórn! Ekki lofar góðu hve lítils mannorðið er metið á þeim bænum. Hvað með Írak og Palestínu? Hvað hefðu Íslendingar gert þegar Bandaríkjamenn og Bretar kröfðust stuðnings Öryggisráðs SÞ til árásar á Írak, en fengu ekki, fyrr á þessu ári? Við þekkjum svarið. Ís- lenska ríkisstjórnin studdi ákvörð- un um árás án samþykkis Öryggis- ráðsins og voru Íslendingar þess vegna skilgreindir í Washington sem „staðfastir stuðningsmenn“. Hvernig hefðum við síðan greitt atkvæði 22. maí þegar hernámið var staðfest af Öryggisráðinu? Án efa hefðum við verið fylgjandi. Sér- fræðingar í alþjóðastjórnmálum hafa velt því fyrir sér hvers vegna samþykki hafi fengist fyrir þessari tillögu eftir allt sem á undan var gengið. Ekki síst í ljósi þess að Bandaríkjamenn fóru jafnframt fram á að liðsmenn þeirra í Írak yrðu undanþegnir hvers kyns kvöðum og málsókn af hálfu Al- þjóðaglæpadómstólsins í Haag (International Crime Court). Frétta- skýrendur hafa haldið því fram að Frakkar og Rússar hafi samþykkt tillöguna eftir að þeir fengu vilyrði fyrir því að tryggt yrði að ný ríkis- stjórn Íraks yrði gerð ábyrg fyrir útistandandi skuldum við Frakk- land og Rússland. Það þarf greini- lega sterk bein til að láta eigin hags- muni ekki stýra gjörðum sínum! Fyrir atkvæðagreiðsluna fóru bandarískir erindrekar hefðbundn- ar sendiferðir til fátæku ríkjanna í Öryggisráðinu til að sjá til þess að allt yrði með felldu. Hefði þurft að líta við í Reykjavík eða hefðu menn getað gefið sér að hér væru stað- fastir stuðningsmenn? Er ríkisstjórnin líkleg til að hugsa stórt? En eru þetta ekki nokkuð grófar ásakanir sem hér eru settar fram? Vissulega, en þannig er veruleikinn og Bandaríkjamenn gera ekkert til að fela hann. Dæmi um þetta er þegar Samtök ríkja utan hernaðar- bandalaga ákváðu að flytja tillögu 25. mars sl. um að komið yrði á frið- argæsluliði Sameinuðu þjóðanna í Palestínu. Það varð hlutskipti Kólombíu að flytja tillöguna í Ör- yggisráðinu. Bandaríkjastjórn beit- ti neitunarvaldi. Opinberlega var því lýst yfir að Kólombía myndi hljóta verra af. Hvernig hefðu Ís- lendingar greitt atkvæði? Því miður er fulltrúum núver- andi ríkisstjórnar ekki treystandi til að standa í fæturna. Ef við hins vegar værum reiðubúin að ger- breyta stefnu okkar í utanríkismál- um, sýna frumkvæði og hugsa stórt í þágu réttláts málstaðar þá efast ég ekki um að við gætum látið mik- ið gott af okkur leiða á alþjóðavett- vangi. En með þessa menn við stýr- ið hef ég efasemdir um að kröftum okkar og fjármunum sé vel varið. ■ Um daginnog veginn ÖGMUNDUR JÓNASSON ■ skrifar um umsókn Íslands að Öryggis- ráði Sameinuðu þjóðanna Hvað viljum við í Öryggisráð SÞ? ■ Bréf til blaðsins Páfagarður og samkynhneigð ■ Af Netinu Nýjung í skólamálum „Mjög mikilvægt er að svigrúm sé til prófana og nýjunga í skólamálum. Framtaki Garða- bæjar ber að fagna mjög, enda er hér um að ræða kærkomna viðbót við skólaflóru höfuðborg- arsvæðisins, viðbót sem eykur valfrelsi foreldra grunnskóla- barna til muna og ýtir undir frekari þróun í skólastarfi á Ís- landi,“ SESSELJA SIGURÐARDÓTTIR Í PISTLI Á FRELSI.IS, ÞAR SEM HÚN FAGNAR FYRIRÆTLUNUM GARÐABÆJAR UM EINKAREKINN GRUNNSKÓLA. „Sumir hafa orðið til að benda á það, að afstaða kaþólsku kirkjunnar kunni einnig að eiga sér aðrar ástæð- ur en trúar- legar. Að veita hjálparhönd K.E. skrifar Það er ánægjulegt þegar öryrkj-ar á sínum lágu bótum eiga góðar fjölskyldur sem með ánægju réttir þeim hjálparhönd. En ekki eru allir jafn heppnir. Ör- yrki einn sefur á hillu í iðnaðar- húsnæði. Áður en hálfur mánuður er liðinn er hann uppiskroppa með allt fé af því hann er heiðarlegur og vill ekki láta skuldir sínar falla á aðra. Öryrkinn á átta systkini sem öll hafa það gott hvað hús- næði og vinnu varðar. Flest eru með auka herbergi sem hann gæti vissulega þegið. En hver er raun- veruleikinn. Enginn býður honum húsaskjól, í mat eða spyr hvort hann vanhagi um eitthvað. Nei, hugsunin er sú að meðan það sjálft hefur það gott skipta aðrir ekki máli. Öryrkinn lenti tvisvar sinnum í slysi í húsnæðinu þar sem hann býr og í kjölfarið lagðist hann inn á sjúkrahús. Einu sinni með fjögur brotin rifbein, mikla tognun og mar um allan strokk- inn. Hann biður til Guðs á hverju kvöldi um aðstoð og lifir í voninni um að hún berist einn daginn. ■ JÓHANNES PÁLL PÁFI II Ungir íslenskir jafnaðarmenn sendu um helgina bréf til páfa þar sem þeir mótmæla yfir- lýstri andstöðu Páfagarðs við hjónaböndum samkynhneigðra. Allir nema Fréttablaðið

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.