Fréttablaðið - 06.08.2003, Síða 22
Ráðningarsamningi við mig vareinfaldlega sagt upp,“ segir
Þorsteinn J. Vilhjálmsson um þá
sögusögn að hann verði ekki með
Viltu vinna milljón í vetur: „Þeir
ætla að halda áfram með þáttinn
með nýjum stjórnanda en það sem
þeir buðu mér í staðinn var
hvorki fugl né fiskur og svolítið
eins og að bjóða atvinnumanni í
knattspyrnu að þvo búningana.“
Þorsteinn segir skálmöld ríkja
í þessu fyrirtæki og þegar sé búið
að segja upp fullt af fólki: „Og
hvers vegna ekki mér?“
Áhorfendur ættu að geta svar-
að þeirri spurningu og margir ef-
laust súrir yfir því að góðum
stjórnanda á þætti sem virkar vel
hætti bara. En Þorsteinn er
hvergi banginn og mjög þakklátur
fyrir þau ágætu tækifæri sem
hann hefur fengið hjá Stöð 2 og
gaman að vinna með öllu þessu
fólki, því sjónvarpsefni gerir
maðurinn ekki einn:
„Þetta er annars nýtilkomið og
ég fer upp eftir í dag og sæki dót-
ið mitt og kyssi samstarfsfólkið
bless,“ bætir Þorsteinn við, en
hann hefur ekki gert það upp við
sig hver næstu skref verða, en
margt hlýtur að bíða þessa ást-
sæla sjónvarpsmanns. ■
Hrósið 22 6. ágúst 2003 MIÐVIKUDAGUR
Ljósmyndarinn, Sigurgeir Sig-urjónsson, er orðinn einn af
metsöluhöfundum Íslands því
senn líður að því að hann selji
150.000. eintakið af bókum sínum.
Nýjasta bók hans, Lost in
Iceland, eða Íslandssýn eins og
hún heitir á íslensku, hefur meðal
annars selst í um 6.000 eintökum.
Sú bók er gefin út á fjórum tungu-
málum.
Sigurgeir segist ekki hafa átt
von á allri þessari sölu í gegnum
árin og segir að viðtökur við Lost
in Iceland hafi komið öllum
skemmtilega á óvart. „Þetta er
samstilltur hópur sem stendur að
þessu. Það er valið fólk í hverju
rúmi, bæði í sambandi við hönnun
og texta. Það er lögð dálítil vinna í
að finna góð nöfn og konsept. Lost
in Iceland var hugsað þannig,“ seg-
ir Sigurgeir. „Það er dálítill leikur
að nafni og það mætti prjóna miklu
meira utan um þetta. Norðmenn
voru hrifnir að þessu og keyptu
konseptið. Þeir eru núna að fara að
gera Lost in Norway.“
Sigurjón er búinn að mynda Ís-
land í fimmtán ár og hefur alls
búið til átta ljósmyndabækur. Um
þessar mundir er hann að vinna að
bók sem ber vinnuheitið Svipur
þjóða í samvinnu við Unni Jökuls-
dóttur, rithöfund. „Það er allt öðru-
vísi bók. Meira um portrett og
mannlýsingar, blandaðar lands-
lagi. Hún kemur út næsta vor og er
geysispennandi verkefni.“ ■
Bækur
■ Sigurgeir Sigurjónsson segir að
viðtökur við Lost in Iceland hafi
komið öllum skemmtilega á óvart.
Sjónvarp
■ Þorsteinn J. Vilhjálmsson er að hætta
á Stöð 2. Þetta er nýtilkomið svo hann
veit ekki hvað hann gerir í framtíðinni en
í dag fer hann upp á Stöð 2 og nær í
dótið sitt og kyssir samstarfsfólkið bless.
Næg verkefni hljóta samt að bíða þessa
hæfileikaríka fjölmiðlamanns.
Hrósið fær íslenski hesturinn fyr-
ir að vera með eigið heimsmeist-
aramót.
Einn af metsöluhöfundum Íslands
Gallabuxur 3990
Bolir 1990
Peysur 2490
Margir litir og snið
SMART Í SKÓLANN
ÞORSTEINN J. VILHJÁLMSSON
Búið að segja upp ráðningarsamningi við Þorstein J. Verður ekki með Viltu vinna milljón í vetur.
Þorsteini J. sagt upp
SIGURGEIR
Er orðinn einn af metsöluhöfundum Íslands.
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
METSÖLULISTI FERÐAMANNABÓKA Á
ERLENDUM MÁLUM Í VERSLUNUM
PENNANS, 15.-31. JÚLÍ
Sigurgeir Sigurjónsson (Forlagið)
LOST IN ICELAND (Á ENSKU)
(þjóðsögur á frönsku) (AB)
CONTES POPULAIRES
(þjóðsögur á þýsku) (AB)
SAGEN UND MÄRCHEN
Sigurgeir Sigurjónsson (Forlagið)
LOST IN ICELAND (Á FRÖNSKU)
(ný útgáfa) (Forlagið)
AMAZING ICELAND
(úr Íslend.sögum á ensku) (Penguin)
SAGAS OF THE ICELANDERS
Sigurgeir Sigurjónsson (Forlagið)
ICELAND: THE WARM... (Á ENSKU)
(þjóðsögur á ensku) (AB)
FOLK AND FAIRY TALES
Úr Völuspá á þýsku (Gudrun)
GÖTTER DER VIKINGER
Sigurgeir Sigurjónsson (Forlagið)
WHERE NATURE SHINES (Á ENSKU)
HELGA GÍSLADÓTTIR
Hefur hafið störf á hársnyrtistofunni
Capilli / Bláu Húsin v/Faxafen
Suðurlandsbraut 50 sími; 588-0060