Fréttablaðið - 06.08.2003, Side 13
13MIÐVIKUDAGUR 6. ágúst 2003
FÓTBOLTI „Við erum flest sammála
um að það væri gaman að fá af-
gerandi miðjumann,“ segir Karl
H. Hillers, formaður Chelsea-
klúbbsins á Íslandi. „Ef Veron
kemur ekki til Chelsea vildi ég
gjarnan fá Emerson. Ég held að
Chelsea hafi gert góð kaup í Glen
Johnson og að verðið fyrir Ger-
emi og Wayne Bridge sé ásættan-
legt. Damien Duff er allt önnur
stærðargráða. Hann hefur sjálfur
sagt að verðið sé rugl.“
Chelseaklúbburinn áformar
ferðir á þrjá heimaleiki í vetur,
gegn Manchester United, 30. nóv-
ember, Arsenal, 1. febrúar og
Leeds, 15. maí. „Klúbburinn hefur
alltaf staðið fyrir einni aðalferð á
hverjum vetri. Þá afhendum við
leikmanni tímabilsins á undan
viðurkenningu, rétt fyrir leik á
Stamford Bridge. Þetta er mjög
skemmtileg athöfn fyrir þá sem
taka þátt í henni.“
Leikdaga í eistaradeildinni ber
upp á sömu viku og leiki Chelsea
gegn United og Arsenal. Ef allt
gengur félaginu í hag ná stuðn-
ingsmennirnir einnig heimaleik í
meistaradeildinni. Áhugasamir
ættu að fylgjast með á heimasíðu
klúbbsins, www.chelsea.is. ■
Juan Sebastian Veron:
Málin skýrast
í dag
FÓTBOLTI Roman Abramovich hefur
gert tilboð í marga leikmenn á
þeim stutta tíma sem hann hefur
verið við stjórnvölinn hjá Chelsea.
Liðið mun í dag fá svar við fimmt-
án milljón punda boði í Juan
Sebastian Veron, leikmanni
Manchester United. Miklar vanga-
veltur hafa verið uppi um framtíð
Argentínumannsins. Umboðsmað-
ur hans segir hann tilbúinn að fara
en Alex Ferguson, knattspyrnu-
stjóri United, hefur lýst því yfir að
Veron verði áfram í herbúðum
Englandsmeistaranna.
Margir eru á óskalista olíujöf-
ursins, þar á meðal lykilleikmenn
hjá Evrópumeisturum Real Ma-
drid. Hæsta boð sem Chelsea er
sagt hafa átt er 75 milljón punda
boð í Raúl, framherja Madrid.
Raúl hafnaði boðinu strax enda
ólíklegt að hann muni nokkur tím-
ann yfirgefa Bernabeu-leikvang-
inn. ■
LEIKIR CHELSEA Í ÁGÚST
13.8. MSK Zilina eða Maccabi Tel-Aviv ú
17.8. Liverpool h
23.8. Leicester h
26.8. MSK Zilina eða Maccabi Tel-Aviv h
30.8. Blackburn Rovers h
Maccabi Tel-Aviv leikur heimaleiki sína í meist-
aradeildinni í Búdapest í Ungverjalandi.
Maccabi leikur gegn MSK Zilina í kvöld en
Tékkarnir unnu fyrri leikinn 1:0 í síðustu viku.
NÝIR LEIKMENN CHELSEA:
Damien Duff 17 milljónir punda
Geremi 7 milljónir punda
Glen Johnson 6 milljónir punda
Wayne Bridge 7 milljónir punda
Marco Ambrosio frjáls sala
Jurgen Macho frjáls sala
ÓSKALISTI ABRAMOVICH:
MARKVÖRÐUR:
Nigel Martyn Leeds
VARNARMENN:
Alessandro Nesta AC Milan
Edgar Davids Juventus
MIÐJUMENN:
Patrick Vieira Arsenal
Steven Gerrard Liverpool
Jay Jay Okocha Bolton
Joe Cole West Ham
Scott Parker Charlton
Jermain Jenas Newcastle
Juan Sebastin Veron Manchester United
Kieron Dyer Newcastle
Emerson Roma
Claude Makalele Real Madrid
Mark van Bommel PSV Eindhoven
SÓKNARMENN:
Christian Vieri Inter Milan
Patrick Kluivert Barcelona
Andiy Shevchenko AC Milan
Rivaldo AC Milan
Thierry Henry Arsenal
Wayne Rooney Everton
Fernando Torres Atletico Madrid
Raul Real Madrid
Samuel Eto’s Real Mallorca
KARL H. HILLERS
Karl H. Hillers, formaður Chelseaklúbbsins á
Ísland, telur liðið vanta afgerandi miðju-
mann.
FÓTBOLTI David Beckham skoraði
fyrsta mark sitt fyrir Real Madrid
þegar félagið vann FC Tokyo 3:0 í
gær. „Þetta var aðeins vináttuleik-
ur en það var frábært að skora
fyrsta markið fyrir Real Madrid,“
sagði Beckham eftir leikinn.
Beckham skoraði beint úr
aukaspyrnu á 38. mínútu, Javier
Portillo bætti við mark sex mínút-
um síðar og Ronaldo setti þriðja
markið undir lokin.
Beckham lék á miðjunni gegn
FC Tokyo því Zinedine Zidane var
hvíldur vegna meiðsla í læri. „Mér
hefur alltaf þótt gaman að leika á
miðjunni,“ sagði Beckham eftir
leikinn, „þar verður maður mun
virkari þátttakandi í leiknum.“ ■
Real Madrid:
Beckham skoraði
beint úr aukaspyrnu
DAVID BECKHAM
David Beckham fagnar fyrsta marki sínu
fyrir Real Madrid.
JUAN
SEBASTIAN
VERON
Chelsea
mun í dag fá
svar við 15
milljón
punda boði í
leikmanninn.
Chelsea
Vantar afgerandi
miðjumann
Varkárir Mamma Dularfullir Listrænir Lesblindir
Gáfa›ir Unglingar Óvarkárir „ekki henda neinu, setjum fletta bara inn í bílskúr“
Í frí Fullor›nir Tæknivæddir Fyrir alla Venjulegir
Leyndardómsfullir Pabbi Skrautlegir Ekki tilbúnir Vísitölufjölskyldan
Vel skipulag›ir Har›hentir Spennufíklar fieir sem forgangsra›a Afi
93.000
eintök á mánudögum