Fréttablaðið - 26.08.2003, Page 1

Fréttablaðið - 26.08.2003, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500 Tónlist 26 Leikhús 26 Myndlist 26 Íþróttir 23 Sjónvarp 28 ÞRIÐJUDAGUR 26. ágúst 2003 – 202. tölublað – 3. árgangur INGIBJÖRG SÓLRÚN UNDAN FELDI Í DAG Samfylkingarmenn eru áhyggjufullir vegna hugsanlegs formannss- lags. Össur Skarphéðinsson er fastur fyrir en Ingibjörg Sólrún Gísladóttir gefur ekki upp hvað hún hyggst fyrir. Sjá síðu 2. ÞRÝST Á SAMEININGU Bankarnir þrýsta á um sameiningu SíF og SH. Skýr skilaboð send um að ef sameiningin verði ekki með góðu muni bankarnir beita afli til að tryggja hana. Mótstaðan er meðal S-hópsins sem ræður 35% hlut. Sjá síðu 4. SPRENGJUÁRÁS Í BOMBAY Á fimmta tug manna fórst og að minnsta kosti 150 særðust í tveimur sprengjuárás- um í Bombay. Enginn hefur lýst ábyrgð á tilræðunum á hendur sér. Sjá síðu 6. BAUGUR Í BENSÍNSÖLU Undirbún- ingur að bensínsölu á vegum Baugs er í fullum gangi. Stefnt er að því að fyrsta bensínstöðin opni snemma á næsta ári. Þrettán lóðir eru í sigtinu og stefnt að því að bensínstöðvar Baugs verði þrjátíu tals- ins. Sjá síðu 8. ● grænn töfrasafi ▲ SÍÐUR 18-19 heilsa o.fl. Foreldrarnir eru lykillinn Sigurlín Jóna Baldursdóttir: MÓTMÆLI Á AUSTURVELLI Um- hverfissinnar hyggjast mótmæla náttúru- spjöllum á hálendinu á Austurvelli klukkan 18. Spjótum verður beint að framkvæmum við Kárahnjúka. Sjá nánar: DAGURINN Í DAG FLAKIÐ HÍFT UPP Á BORGARFJARÐARBRÚ Flutningabíllinn fór út af brúnni og lenti í ósnum. Talið er að ökumaðurinn hafi misst stjórn á bílnum þegar sprakk á einum hjólbarða. Hægur vindur +15+14 +15+14 VEÐRIÐ Í DAG VIÐRAR VEL Á SKÓLABÖRN Fínt veður fyrir skólakrakkana. Víðast hægur vindur og hlýtt en möguleiki á smá drop- um. Sjá síðu 6. aðstoðarmaður forsætisráðherra Illugi Gunnarsson: Afmælisbarn í fjarbúð aðeins 14 ára gamall Freddy Adu: Eftirsóttur unglingur rukkar 400 þúsund Michael Jackson: Býður aðdáend- um í Neverland ▲ SÍÐA 14 ▲ SÍÐA 25 ▲ SÍÐA 27 BANASLYS Maður um þrítugt lést samstundis þegar flutningabíll með dráttarvagni sem hann ók fór í gegnum vegrið Borgarfjarðar- brúar og hafnaði í ósnum. Flutn- ingabíllinn var á suðurleið og kominn að suðurenda brúarinnar þegar hjólbarði á vinstri hlið dráttarbílsins sprakk. Við það fór flutningabíllinn yfir á rangan vegarhelming og í gegnum vegrið brúarinnar. Að sögn Theódórs Þórðarson- ar, yfirlögregluþjóns í Borgar- nesi, var tilkynnt um slysið til neyðarlínu og lögreglu klukkan 10:20 í gærmorgun. Ljóst var hvað hafði gerst og komu kafarar frá slökkviliði höfuðborgarsvæð- isins með þyrlu Landhelgisgæsl- unnar á staðinn. Björgunarsveitir frá Borgarnesi, Akranesi og Borgarfirði voru kallaðar á stað- inn ásamt tveimur sveitum frá höfuðborgarsvæðinu. Alls tóku á þriðja tug björgun- arsveitarmanna með þrjá slöngu- báta þátt í aðgerðum. Slöngubát- ar voru við brúna á meðan bíl- stjórahúsið var híft upp. Maður- inn fannst í húsi bílsins, sem híft var upp um klukkan eitt. Kafarar héldu áfram leit í lóninu á meðan gengið var úr skugga um að ekki hefðu verið fleiri farþegar í bíln- um. ■ Umferðarslys: Banaslys við Borgarfjarðarbrú Sjónvarp: Sigmundur á Skjá 2 FJÖLMIÐLAR Sigmundur Ernir Rún- arsson, fyrrum ritstjóri DV, er að ganga frá samningi um vikulega sjónvarpsþætti sem sýndir verða á nýrri sjónvarpsstöð SkjásEins sem hefur útsendingar í haust. Stöðin hefur hlotið nafnið Skjár 2 og verð- ur áskriftarstöð eins og Stöð 2: „Ég er að vísu ekki búinn að skrifa undir samning en það eru miklar líkur á að svona verði þetta,“ segir Sigmundur Ernir. Sjá nánar bls. 30. Berjalönd: Köngulær í berjamó NÁTTÚRAN Mikið hefur borið á köngulóm í berjalöndum á landinu þetta árið. Þóra Hrafnsdóttir, líf- fræðingur hjá Náttúrufræðistofn- un, segir enga ástæðu til að óttast köngulærnar því þó 80 tegundir þeirra hafi tekið sér bólfestu hér á landi sé engin þeirra eitruð. Sjá nánar bls. 31.FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T SAMRÁÐ Bogi Nilsson ríkissaksókn- ari og embætti Ríkislögreglustjóra hafa óskað þess að Samkeppnisstofnun afhendi nú þegar gögn í Olíumálinu. Ekki hefur verið orðið við kröfunni. „Samkeppnisstofn- un hefur skorað sér undan því að svara skriflegu erindi ríkissaksóknara til Samkeppnisstofn- unar,“ segir Jón H. Snorrason, - yfirmaður efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra. Jón segir að ríkissaksóknari fari fram á að Samkeppnisstofnun geri grein fyrir því hvort í Olíu- málinu séu svo alvarleg brot á samkeppnislögum að viðurlög Samkeppnisstofnunar séu ekki næg heldur verði einnig að reyna á refsiábyrgð stjórnenda olíufé- laganna. „Í ljósi þess er það niðurstaða okkar og ríkissaksóknara að efna- hagsbrotadeild Ríkislögreglu- stjóra fái öll gögn málsins frá Samkeppnisstofnun og taki þau til athugunar. Hvort um sé að ræða tilvik sem séu alvarleg brot, í hvaða mæli þau eru og taka í framhaldi ákvörðun um hvort eigi að taka þau tilvik eða jafnvel mál- ið allt til sakamálarannsóknar.“ Jón segist ekki eiga von á öðru en að Samkeppnisstofnun láti efna- hagsbrotadeildina hafa eintak af öllum gögnum þessa máls. Gögnin eru umfangsmikil, enda hefur Samkeppnisstofnun verið um tutt- ugu mánuði að vinna með þau. „Við eigum eftir að fara yfir málið í heild sinni til þess að geta tekið afstöðu til þess hverju Sam- keppnisstofnun getur lokið og hverju ekki og hvort Samkeppnis- stofnun getur yfirleitt fjallað um málið vegna alvarleika þess. Ef tilefni er til munum við hefja sakamálarannsókn.“ Jón segist ekki geta svarað því hversu langan tíma efnahags- brotadeildin þurfi til að ákveða hvort rannsókn verði hafin eða ekki. „Ófyrirséð er hversu langan tíma það mun taka okkur að fara í gegnum málið með svipuðum hætti og Samkeppnisstofnun hef- ur gert. Mjög góða yfirsýn þarf til að geta tekið ákvörðun.“ hrs@frettabladid.is Lögregla hyggst kanna refsiábyrgð stjórnenda Ríkissaksóknari fer fram á að efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra fái afrit af öllum gögnum Olíumálsins. Athuga þarf hvort um er að ræða alvarleg brot, í hvað mæli þau eru og taka í fram- haldi ákvörðun um hvort taka eigi þau brot til sakamálarannsóknar. ■ Við eigum eftir að fara yfir málið í heild sinni til þess að geta tekið af- stöðu til þess hverju Sam- keppnisstofnun getur lokið og hverju ekki. Kviknaði í farsíma: Brenndist í andliti AMSTERDAM, AP Hollensk kona brenndist í andliti þegar eldur kviknaði í farsímanum hennar. Konan hafði missti símann í gólfið og tekið hann aftur upp til þess að hringja. Þegar hún bar sím- ann upp að eyranu kviknaði skyndi- lega í honum. Símtækið var frá finnska far- símaframleiðandanum Nokia. Tals- menn fyrirtækisins sögðu í samtali við fjölmiðla að kviknað hefði í raf- hlöðum símans ■.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.