Fréttablaðið - 26.08.2003, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 26.08.2003, Blaðsíða 19
Rétt fyrir utan Reykjavík, ígróðrarstöðinni Lambhaga við Vesturlandsveg, er framleitt og selt lífrænt ræktað hveitigras. Grasið má nota til að búa til nokkurs konar grænan töfrasafa sem er góður fyr- ir líkama og heilsu en til þess að búa til drykkinn þarf góða berjapressu. Safinn, sem er drukkinn óþynntur úr pressunni, er fullur af næringar- efnum, vítamínum og steinefnum og er einstaklega ríkur af blað- grænu og ensímum sem losa lík- amann við uppsöfnuð eiturefni í frumum. Blaðgrænan hefur nátt- úrulega bakteríueyðandi virkni sem eyðir slæmri líkamslykt, svo sem andremmu og svitalykt. „Ég var beðinn um að rækta þetta fyrir fólk sem hafði ýmsa krankleika og þetta er mjög hollt,“ segir Hafberg Þórisson, garðyrkju- maður á Lambhaga. Hann segir safann reynast þeim vel sem þjást af magaóþægindum, liðagigt og fleiru. Drykkurinn er langt frá því að vera eins sætur og sólberjasafi því hann er frekar bragðvondur. „Það er heldur ekkert ægileg sætt og gott að taka inn lýsi en við ger- um það nú samt.“ Hveitigrasið í töfrasafann græna fæst eftir pönt- unum í Lambhaga en aðeins er notað 10-12 daga gamalt gras sem afgreitt er skorið eða óskorið eftir óskum neytandans. Hveitigrasið frá Lambhaga fæst einnig í Heilsuhúsinu. ■ Ræktað á Lambhaga: Grænn töfrasafi fyrir heilsuna LÍFRÆNT RÆKTAÐ HVEITIGRAS FRÁ LAMBHAGA Gott fyrir heilsuna. AUKAMÁNUÐUR Í HRESS Í lík- amsræktarstöðinni Hress í Hafn- arfirði fylgir aukamánuður líkamsræktarkortum sem keypt eru í ágúst. Þriggja mánaða kort kostar 15.990. Sex mánuðir kosta 22.990 og árskort 29.990. KK-TILBOÐ Í Sporthúsinu, Bað- húsinu og Þrekhúsinu er nú í gangi KK-tilboð sem felur í sér ársbindingu. Mánuðurinn kostar þá 2.990 og er greitt með Visa eða Euro. Þeir sem tryggja sér tilboðið fyrir 1. október geta síð- an átt von á því að vera dregnir út og unnið afnot af Renault Megane II frá B&L í eitt ár, utan- landsferð í boði ÍT-travel eða eitt- hvað annað skemmtilegt. ■ 19ÞRIÐJUDAGUR 26. ágúst 2003 llinn ■ Tilboð Áhrif streitu: Minnið versnar Aukning af streituhormónum íheilanum getur haft þær af- leiðingar að skammtímaminni versnar til muna, segir sænski læknirinn Christina Doctare í samtali við norska blaðið Aften- posten. „Maður er í verra ástandi til þess að greina á milli þess sem er mikilvægt og þess sem er ómerkilegt. Maður verður hrein- lega heimskari af streitu,“ segir hún. Kröfur atvinnulífsins og kröf- ur fólks til sjálfs sín eru á meðal orsaka þess að svo margir líða af heilastreitu, segir læknirinn. ■ Bækur: Bókin um bakið Bókin um bakið er komin út hjáLandlæknisembættinu í vef- útgáfu. Hún hefur að geyma ráð- leggingar um það hvernig best er að bregðast við og hafa stjórn á bakverkjum. Bókin er samin af hópi breskra sérfræðinga. Á vefsetri Land- læknisembættisins, www.land- laeknir.is, komu nýlega út leið- beiningar um bráða bakverki og var þar í meginatriðum stuðst við bresku leiðbeiningarnar. Þýðandi bókarinnar er Magnús Ólason yf- irlæknir. Prentaðri útgáfu af bók- inni verður dreift ókeypis á heilsugæslustöðvum og víðar. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.