Fréttablaðið - 26.08.2003, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 26.08.2003, Blaðsíða 18
Við ákváðum að setja upp námskeiðfyrir krakka sem eru of þungir,“ segir Sigurlín Jóna Baldursdóttir einkaþjálfari, sem í félagi við Jóhann Inga Stefánsson, sálfræðing og nær- ingarfræðing, kennir á námskeiðinu Krakkar sem þora í Sporthúsinu. „Það hafði verið eftirspurn eftir átaksnám- skeiði fyrir börn og foreldrar hringt í okkur,“ segir Sigurlín, sem hefur verið með börn í einkaþjálfun. „Við höfum bæði mjög gaman af börnum og því fórum við af stað með þetta. Að sögn Sigurlínar verður hópnum aldursskipt, tíu til tólf ára eru saman í hópi og þrett- án til sextán ára saman. Hámarksfjöldi í hópi verður tíu börn. Sigurlín segir algjört grundvallarat- riði að ná góðu sambandi við foreldra. „Það þýðir ekkert að segja krökkunum að breyta um mataræði ef mataræði á heimilinu er ekki tekið í gegn. Það verður ekki komið í veg fyrir sífellt nart á krökkum ef foreldrarnir taka ekki á því.“ Að sögn Sigurlínar er ekki lögð áhersla á að krakkarnir léttist. „Við viljum að þau læri að hreyfa sig og vilj- um hafa þetta jákvætt og uppbyggi- legt. Kílóin koma svo til með að hverfa þegar lífsstíllinn breytist.“ Námskeiðið er átta vikur og kostar 22.900. ■ heilsa o.fl. Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um hei lbr igðan l í fsst í l Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: matur@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T Eftirspurn eftir átaksnámskeiði fyrir börn: Foreldrarnir eru lyki SIGURLÍN JÓNA OG JÓHANN Kenna á jákvæðu og uppbyggilegu námskeiði í Sporthúsinu. Það er mikilvægt að standa á fætur í vinnunni að minnnsta kosti á klukkutíma frest. Gott er að nota þann tíma til að teygja . Þessi æfing teygir vel á hálsvöðvum og niður í axlir. Leikfimi í vinnunni

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.