Fréttablaðið - 26.08.2003, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 26.08.2003, Blaðsíða 24
24 26. ágúst 2003 ÞRIÐJUDAGUR WILLIAMS-SYSTUR Serena Williams getur ekki tekið þátt í Opna bandaríska meistaramótinu í tennis, sem hefst á mánudag, vegna meiðsla. Hún mun því fylgjast með systur sinni, Serenu, af hliðarlínunni. Serena hefur tekið þátt í Opna bandaríska mótinu frá 1997. Tennis FÓTBOLTI FH vann ÍBV 2-1 í loka- leik 15. umferðar Landsbanka- deildar karla. Heimir Guðjóns- son og Emil Hallfreðsson skor- uðu mörk FH en Steingrímur Jó- hannesson mark Eyjamanna. Með sigrinum komst FH í 3. sæti deildarinnar en ÍBV er í 7. sæti. 16. umferð Landsbankadeild- ar hefst á laugardag með leik ÍBV og Þróttar í Eyjum. Á sunnudag leika Valur og KA að Hlíarenda og Fram og FH á Laugardalsvelli. Fylkir og ÍA leika í Árbænum á mánudag og Grindavík fær KR í heimsókn. ■ Markmiðið að klára þrautina Jón Arnar Magnússon keppir í tugþraut á heimsmeistaramótinu í París í dag og á morgun. Hann á sjöunda besta árangurinn í heiminum í ár. FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR „Markmið Jóns er fyrst og fremst að klára þraut- ina,“ sagði Guðmundur Karlsson, landsliðsþjálfari í frjálsum íþrótt- um. „Auðvitað eru menn að gæla við að vera í baráttu sex efstu manna en allt þarf að ganga upp til þess að svo verði.“ Keppni í tugþraut á heims- meistaramótinu í París hefst í dag. Jón Arnar Magnússon verður meðal keppenda eins og á síðustu fjórum mótum. Jón Arnar á sjö- unda besta árangurinn í heimin- um í ár. Hann fékk 8.222 stig í keppninni í Götzis í Austurríki um mánaðamótin maí-júní. Íslands- met Jóns Arnars er hins vegar 8.573 stig og það setti hann í Götz- is fyrir fimm árum. Keppnin hefst klukkan átta að íslenskum tíma á 100 metra hlaupi. Einnig verður keppt í langstökki og kúluvarpi fyrir hádegi og hástökki og 400 metra hlaupi síðdegis. „Þetta er galopið. Ef hann stendur sig vel í sínum bestu greinum, langstökki og kúluvarpi, og skilar góðum árangri í hinum á hann möguleika. Þrautin er bara þannig að það má lítið bregða út af, þannig að ég óska þess bara að hann klári þrautina. Hann á næst- besta langstökk tugþrautarmanna í ár og er meðal þriggja bestu kúluvarparanna í hópnum.“ Guð- mundur vonar líka að Jón Arnar nái sér á strik í 400 metra hlaupi, sem hefur verið ein af hans betri greinum. „Hann ætti að vera meðal fjög- urra efstu eftir þrjár greinar ef allt gengur að óskum“, segir Guð- mundur. Fyrstu þrjár greinar dagsins verða 100 metra hlaup, en þar á Jón Arnar ágætan árangur, og góðu greinarnar tvær, lang- stökk og kúluvarp. Það ætti því að vera ljóst um hádegisbilið í dag hvert stefnir í tugþrautinni. Þórey Edda Elísdóttir keppti í úrslitum stangarstökksins í gær en náði ekki að stökkva yfir byrj- unarhæð sína. Þórey felldi 4,35 í þrígang, hæð sem hún stökk í fyrstu tilraun í undankeppninni á laugardag. „Þórey tók áhættu,“ sagði Guðmundur. „Hún var búin að ákveða að byrja á 4,35 ef hún myndi finna sig vel í upphitun, sem hún og gerði. Það var ljóst að ef hún ætlaði að vera meðal átta efstu yrði hún að taka áhættu því þetta eru mjög jafnir stökkvarar. Það gekk bara ekki upp. Svona eru íþróttirnar og það er ekkert að segja við þessu.“ ■ Enska knattspyrnan: Davis ekki til Everton FÓTBOLTI Everton er hætt við að kaupa miðjumanninn Sean Davis frá Fulham. Samningaviðræður milli Davis og Everton voru langt komnar en lækinsskoðun í gær sýndi að hann verður frá keppni í mánuð vegna hné- meiðsla. Fjórir miðvallarleikmenn Ev- erton eru meiddir: Thomas Gravesen, Lee Carsley, Scot Gemmill og Steve Watson, og talið er að Everton muni leggja ofurkapp á að fá miðjumanninn Barry Ferguson til félagsins. Blackburn hefur einnig áhuga á leikmanninum. ■ Kynntu þér verðið á www.raf.is Teitur Þórðarson: Ég get tekið gagnrýni FÓTBOLTI „Ef við viljum fá jafna deildakeppni á næsta ári þarf Rosenborg að ráða Teit Þórðar- son,“ sagði Ivar Hoff, stjórnandi þáttarins Fot- ballXtra á TV2 sjónvarpsstöð- inni í Noregi. Teitur var ekki sáttur við ummælin en sagði í viðtali við Verdens Gang að hann tæki Hoff ekki a l v a r l e g a . „Hoff hefur aldrei tekist eitt eða neitt. Það er kannski þess vegna sem hann hreytir stöðugt ónotum í fólk. Ég get tekið gagnrýni og tek á mig minn hluta ábyrgðarinnar fyrir því að við erum á röngum enda töflunnar.“ Lyn hefur tapað sex leikjum í röð og er í þriðja neðsta sæti deildarinnar þegar átta umferðir eru eftir. „Það versta er að við sköpum okkur varla marktæki- færi lengur,“ sagði Teitur við Verdens Gang eftir 0-2 tap fyrir botnliði Ålesund um helgina. ■ PETIT ÆTLAR AÐ BERJAST Emanuel Petit, franski landsliðsmaðurinn hjá Chelsea, segist ætla að berjast fyrir sæti sínu hjá Lundúnaliðinu þrátt fyrir ítrekaðan orðróm um að hann sé á leið til Tottenham. Petit hefur verið að jafna sig af meiðsl- um og talið er að hann eigi erfitt með að festa sig í sessi eftir leik- mannakaup Chelsea að undan- förnu. EMERSON TIL ÚLFANNA Brasilíski miðvallarleikmaðurinn Emerson er genginn í raðir Úlfanna. Emerson var áður á mála hjá Midd- lesbrough en lék síðast undir merkjum Atlet- ico Madrid. Hann mun gangast undir læknisskoðun og verður líklega klár í slaginn þegar Úlfarnir mæta Manchester United á miðvikudag. CRESPO SKRIFAR UNDIR Talið er að Hernan Crespo muni skrifa undir samning við Chelsea í dag, eftir leikinn gegn MSK Zilina í for- keppni Meistaradeildar Evrópu. Rússneski miðvallarleikmaðurinn Alexei Smertin hefur þegar skrif- að undir samning við Lundúnaliðið. Hann kemur frá Bordeaux í Frakk- landi og er kaupverðið 5,5 milljón- ir punda. ■ Fótbolti Staðan í Landsbankadeild karla eftir 15. umferð L U J T Mörk Stig KR 15 9 3 3 25:17 30 Fylkir 15 8 2 5 22:19 26 FH 15 7 3 5 26:23 24 ÍA 15 6 5 4 23:19 23 Grindavík 15 7 1 7 21:25 22 Þróttur 15 7 0 8 26:24 21 ÍBV 15 6 1 8 21:23 19 KA 15 5 2 8 24:23 17 Fram 15 5 2 8 20:28 17 Valur 15 5 1 9 18:25 16 FH 2:1 ÍBV Landsbankadeild karla: FH í þriðja sætið TEITUR ÞÓRÐARSON Lyn hefur tapað sex leikjum í röð og er í þriðja neðsta sæti deildarinnar þegar átta umferðir eru eftir. BARÁTTUSIGUR Í KAPLAKRIKA FH-ingar komust upp í þriðja sæti Lands- bankadeildarinnar eftir 2-1 sigur á ÍBV. JÓN ARNAR MAGNÚSSON Fyrri hluti tugþrautarkeppni heimsmeistaramótsins fer fram í dag. BESTI ÁRANGUR Í ÁR 8.807 Roman Sebrle Tékklandi 8.784 Tom Pappas Bandaríkjunum 8.482 Bryan Clay Bandaríkjunum 8.281 Erki Nool Eistlandi 8.275 Paul Terek Bandaríkjunum 8.253 Dmitri Karpov Kasakstan 8.222 Jón A. Magnúss. Íslandi Heimsmet Roman Sebrle er 9026 stig, sett í Götzis í Austurríki, 27. maí 2001. TUGÞRAUT KARLA Þriðjudagur 26. ágúst 100 metra hlaup 08:00 Langstökk 09:00 Kúluvarp 10:45 Hástökk 16:00 400 metra hlaup 19:00 Miðvikudagur 27. ágúst 110 m grindahlaup 08:00 Kringlukast 08:55 Stangarstökk 12:00 Spjótkast 15:35 1.500 metra hlaup 20:15

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.