Fréttablaðið - 26.08.2003, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 26.08.2003, Blaðsíða 14
14 26. ágúst 2003 ÞRIÐJUDAGUR ■ Tilkynningar ■ Andlát ■ Jarðarfarir Einn grimmasti bardagi hundraðára stríðsins var háður á þess- um degi í Normandí. Herir Játvarðar Englandskonungs rudd- ust um sléttur Normandí og mættu frönskum herjum, undir Filippusi sjötta, og það var þar sem heimur- inn fékk fyrir alvöru að kynnast hinum blóðuga langboga. Nokkrum vikum fyrr hafði Játvarður siglt til Frakklands með 14.000 menn og marserað um sveitir og héruð. Þegar Filippus frétti þetta safnaði hann til sín 12.000 hermönnum og 26. ágúst mætti hann Englendingum. Það voru bogamenn sem leiddu árásina en frönsku bogamennirnir voru 4.000 á móti 10.000 bogamönnum Englendinga, sem var því hægur sigurinn hvað bogana varðar. Þá ruddust fram 8.000 franskir ridd- arar og í atlögu eftir atlögu voru Frakkarnir stráfelldir af ensku bogamönnunum. Um kvöldið lágu 4.000 Frakkar í valnum og lið þeirra sundraðist og neyddist til að flýja. Bróðir Filippusar féll meira að segja og þótti þessi bardagi marka upphafið að nýju heimsfyr- irkomulagi. Mannfall Breta var innan við hundrað manns. ■ ÞETTA GERÐIST 55 fyrir Krists burð: Rómverjar ráðast inn í Bretland undir stjórn Júlíusar Sesars. 1791 John Fitch fær einkarétt á gufu- bátnum. 1883 Eldfjallið Krakátoa gýs og drepur 36.000 manns. 1964 Lyndon B. Johnson útnefndur forseti af Demókrataflokknum. 1969 Honky Tonk Women með Rolling Stones er á toppi listanna. 1978 Ítalinn og kardínálinn Albino Luci- ani útnefndur páfi og kallaður Jóhannes Páll fyrsti. 34 dögum síðar deyr hann. 1982 NASA sendir Telesat-F út í geim. Þjóðhátíðardagur Namibíu er í dag. ??? Hver? Ég er jákvæður maður á góðum aldri sem hefur gaman af að vinna með skemmtilegu fólki . ??? Hvar? Á skrifstofunni í IKEA og stutt í útsýnið á Esjuna, Akrafjallið og Skarðsheiðina. ??? Hvaðan? Fæddur og uppalinn í Reykjavík – mest í Þingholtunum. ??? Hvað? I KEA-vörulistinn er á leiðinni og verður dreift inn á 103 þúsund íslensk heimili. ??? Hvernig? Bæklingnum verður dreift með Íslands- pósti og tekur það þrjá daga. ??? Hvers vegna? Þetta er mikilvægasta markaðstæki IKEA. ??? Hvenær? Dreifingin hefst á morgun og tekur þrjá daga. Það má segja að tíminn líði,“segir Illugi Gunnarsson, að- stoðarmaður forsætisráðherra, sem er 36 ára í dag. „Ég verð í vinnunni og tek því rólega í kvöld enda er konan ekki heima. Hún er einmitt að hefja sinn fyrsta vinnudag sem kennari við Menntaskólann á Ísafirði á af- mælisdaginn minn,“ segir Illugi, sem fyrir bragðið er kominn í fjarbúð. „Ætli ég reyni ekki að vera með annan fótinn fyrir vest- an eða hún þá hérna hjá mér fyr- ir sunnan. Við eigum ekki börn þannig að þetta verður ekkert flókið.“ Eiginkona Illuga er Brynhild- ur Einarsdóttir, sem á ættir sínar að rekja vestur á firði, en þau Ill- ugi kynntust á Flateyri þegar Ill- ugi starfaði þar í frystihúsinu á námsárum sínum. Sjálfur er Ill- ugi Siglfirðingur: „Þar voru haldin kók- og pylsu- afmæli á Siglufirði þegar ég var ungur en alltaf þótti mér heldur slæmt að eiga afmæli áður en skólinn byrjaði því það gátu orðið afföll í gjöfunum þegar félag- arnir voru kannski ekki heima. Þó betra en að eiga afmæli á milli jóla og nýárs,“ segir Illugi, sem á sér engar sérstakar óskir um af- mælisgjafir en ætlar kannski að elda sér eitthvað gott að borða í kvöld. Segist vera ágætur kokkur og hafa gaman af þó eldamennska sín sé ekkert til að státa af. Frekari hátíðahöld bíða betri tíma og merkari tímamóta: „Árin bætast við eitt af öðru og ég er ekki einn af þeim sem héldu að þeir vissu allt og gætu um tvítugt. Og finnst það ekki enn enda vona ég að sá tími komi aldrei. Það yrði ferlegur dagur ef það gerðist,“ segir afmælis- barn dagsins. ■ Fólk fær í hnén upp til hópa.Konur eru hrifnæmar og jafn- vel karlar klökkna,“ segir Hannes Sigurðsson listfræðingur um sýn- inguna Meistarar formsins, sem þúsundir gesta hafa skoðað á Listasafninu á Akureyri. „Aðsókn hefur verið gríðar- lega góð, en það sem mestu skipt- ir er að ég finn hvað hún fer vel í fólk.“ Sýningin Meistarar formsins er yfirlitssýning yfir höggmynda- list tuttugustu aldar, þar sem sjá má verk eftir bæði íslenska og er- lenda listamenn. Hún er unnin í samvinnu við Ríkislistasafnið í Berlín. Þeir sem ekki hafa séð sýning- una á Akureyri þurfa þó ekki að örvænta, því hún er að koma suð- ur yfir heiðar, í það minnsta hluti hennar. „Við deilum þessu með Reyk- víkingum í gegnum Listasafn Sig- urjóns Ólafssonar,“ segir Hannes. „En það verður bara brot af því sem var hér til sýnis.“ Safnið á Akureyri er mun stærra en Sigurjónssafnið á Laug- arnestanga, þar sem sýningin verður opnuð með viðhöfn 30. ágúst næstkomandi. Þess vegna verða þar einungis til sýnis valin verk af sýningunni á Akureyri. Hannes er þessa dagana að undirbúa næstu sýningu á Akur- eyri og nefnist hún „Þjóð í mótun – Ísland og Íslendingar fyrri alda“. Á henni verða verk frá Þjóðminjasafni Íslands, sem hef- ur verið lokað almenningi í fimm ár. Sú sýning verður einnig opnuð 30. ágúst, þegar Akureyringar halda Menningarvöku, sem er þeirra Menningarnótt. „Þetta er tíu ára afmælissýn- ing litla ljóta andarungans sem er ekki orðinn að svani,“ segir Hannes. Hann hefur rekið Lista- safnið á Akureyri undanfarin ár með hverri stórsýningunni á fætur annarri fyrir álíka mikið fé og ein skíðalyfta uppi í fjalli kostar. „Á þessa sýningu höfum við valið öll bestu listaverkin sem er að finna á Þjóðminjasafninu, með áherslu á portrettmyndir. Það verður gríðarlega mikið lagt í þessa sýningu, sérsmíðað- ir veggir og stöplar undir hvert verk. Þetta er í fyrsta sinn sem þessi verk sjást norðan heiða og í fyrsta sinn sem Þjóðminjasafn sýnir í nútímalistasafni.“ ■ MACAULAY CULKIN Litli guttinn og besti vinur Michaels Jacksons er 23 í dag. Hann hefur leikið í myndum eins og Home Alone myndun- um, Getting Even with Dad, The Good Son, My Girl, Uncle Buck, Only the Lonely og Rikka ríka. 26.ágúst 13.30 Guðríður Ástráðsdóttir, Dista, Vesturgötu 7, verður jarðsungin frá Kristskirkju, Landakoti. 13.30 Margrét Lilja Eggertsdóttir, Selja- hlíð, áður Drápuhlíð 13, verður jarðsungin fá Fossvogskirkju. 13.30 Friðrik J. Eyfjörð, Lönguhlíð 3, verður jarðsunginn frá Dómkirkj- unni. 13.30 Jóhanna María Gestsdóttir, Melabraut 26, verður jarðsungin frá Seltjarnarneskirkju. 14.00 Jón Axelsson, kaupmaður, Nón- vörðu 11, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju. Þorsteinn Thorarensen bókaútgefandi er 76 ára. Helgi Hróbjartsson kristniboði er 66 ára. Ævar Kjartansson útvarpsmaður er 53 ára. Steinunn Sigurðardóttir rithöfundur er 53 ára. Sigurþór Sigurðsson, Grettisgötu 46, lést mánudaginn 18. ágúst. Lilja Kristjánsdóttir, Skógarbæ, lést mánudaginn 18. ágúst. ■ Afmæli ■ Dagurinn 26. ágúst ENGLENDINGAR OG FRAKKAR Á þessum degi unnu Englendingar sigur á Frökkum í bardaga við Crécy í Normandí. 26. ágúst 1346 HUNDRAÐ ÁRA STRÍÐIÐ ■ Ein harðasta orrusta stríðsins var háð þennan dag í Normandí og markaði hún að mörgu leyti upphafið að heims- veldi Breta. Englendinga sigra Frakka ILLUGI GUNNARSSON Ætlar að elda sér eitthvað sjálfur í kvöld. Hátíðahöld bíða betri tíma og merkari tímamóta. Afmælisbarn í fjarbúð Afmæli ILLUGI GUNNARSSON ■ aðstoðarmaður forsætisráðherra er 36 ára í dag. Hann verður í vinnunni í dag og tekur því rólega í kvöld enda eiginkonan að hefja kennslu í Mennta- skólanum á Ísfirði og hann því kominn í fjarbúð. Tímamót HANNES SIGURÐSSON ■ listfræðingur flytur hluta sýningarinnar Meistarar formsins, sem sýnd var á Akur- eyri, til Reykjavíkur og geta íbúar höfuð- borgarinnar því notið einnar vinsælustu sýningar undanfarinna ára. Jafnvel karlar klökkna HANNES SIGURÐSSON Hannes er þessa dagana að undirbúa næstu sýningu á Akureyri auk þess sem sýningin Meistarar formsins er að flytja til höfuðborgarinnar. ■ Persónan JÓHANNES JÓHANNESSON Framkvæmdastjóri IKEA segir vörulista fyr- irtækisins mikilvægasta markaðstæki fyrir- tækisins. Fréttablaðið býður lesendum að senda inn tilkynningar um dánar- fregnir, jarðarfarir, afmæli eða aðra stórviðburði. Tekið er á móti tilkynningum á tölvupóstfangið: tilkynningar@frettabladid.is. Athugið að upplýsingar þurfa að vera ítarlegar og helst tæmandi. ■ Fyrsta gervihjartað VÍSINDI Fyrsta gervihjartað sem knúið var rafhlöðu var sett í mann á þessum degi fyrir 9 árum í Bretlandi. Maðurinn var 62 ára og átti aðeins örfáa mánuði eftir ólifaða þegar læknar ákváðu að prófa hjartað á honum. Blóðinu var þannig dælt út í líkamann með rafmagnspumpu. Í dag er hjartað notað sem tímabundin lausn þar til annað hjarta finnst frá líffæragjafa og hafa yfir 200 manns nýtt sér þessa tækni enn sem komið er. ■ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.