Fréttablaðið - 26.08.2003, Side 2
2 26. ágúst 2003 ÞRIÐJUDAGUR
Já, hann er inni í myndinni
eins og margir aðrir.
Arnar Gunnlaugsson, knattspyrnumaður úr KR,
lýsti því yfir í sjónvarpsviðtali eftir leik KR og Fylkis
að hann hygðist komast í landsliðið fyrir leikina
gegn Þjóðverjum. Logi Ólafsson er landsliðsþjálf-
ari ásamt Ásgeiri Sigurvinssyni.
Spurningdagsins
Logi, er Arnar inni í myndinni?
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari höfðaði
mál gegn manni sem hefur bæði
íslenskan og egypskan ríkisborg-
ara rétt. Hann er sagður hafa
brotið á rétti móður til umsjár
þegar hann tók flugseðla og
vegabréf af dóttur þeirra þegar
hún fór með honum í ferðalag til
Egyptalands.
19. ágúst síðastliðinn fór lög-
maður ákærða fram á að málinu
yrði vísað frá á þeirri forsendu
að ákæruvaldið hefði ekki lög-
sögu í málinu til að höfða refsi-
mál. Dómurinn hafnaði frávísun-
arkröfunni á þeim forsendum að
fjalla þyrfti efnislega um málið
fyrir dómi.
Lögmaður ákærða segir meint
brot hafa verið framið í Egypta-
landi en þar telst faðirinn hafa
forsjá dótturinnar og því hafi
hann ekki brotið gegn egypskum
lögum.
Forsaga málsins er að faðirinn
hafði innritað dóttur þeirra í
breskan skóla í heimabæ sínum.
Að sögn lögmanns föðurins sendi
móðirin einkunnir dótturinnar að
beiðni föðurins til Egyptalands.
Síðar kom móðirin til landsins og
flúði með dótturina á fölsuðu
vegabréfi til Íslands. Vill faðir-
inn meina að flóttinn hafi komið
sér í opna skjöldu og að hann hafi
ekki vitað hvað orðið hafði um
dótturina fyrr en nokkrum dög-
um síðar. ■
Eimskipafélagið:
Straumur
bætir við sig
VIÐSKIPTI Fjárfestingarfélagið
Straumur hefur keypt hluti til
viðbótar í Eimskipafélagi Ís-
lands.
Með kaupunum er Straumur
kominn með yfir 15,8 prósenta
hlut í félaginu. Fyrir átti Straum-
ur ríflega 13,8 prósenta hlut í
Eimskipafélaginu. Straumur er
stærsti hluthafi Eimskipafélags-
ins. Næststærsti hluthafinn í
Eimskipafélaginu er Sjóvá-Al-
mennar með tæplega 11 prósent
hlut.
Íslandsbanki og Landsbanki
Íslands eru stærstu eigendur
Straums. ■
FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Ráðuneytið hyggst rannsaka frekar ásakan-
ir um vanrækslu Hafnarfjarðarbæjar á góð-
um stjórnsýsluháttum.
Leikskólinn Tjarnarás:
Ráðuneyti
vísar kæru frá
STJÓRNSÝSLA Félagsmálaráðuneyt-
ið hefur vísað frá kæru Íslensku
menntasamtakanna vegna meintr-
ar ólöglegrar riftunar af hálfu
Hafnarfjarðarbæjar á samningi
um rekstur leikskólans Tjarnar-
áss.
Á það er bent í úrskurði félags-
málaráðuneytisins að í rekstrar-
samningnum um Tjarnarskóla sé
kveðið á um að óleysanleg ágrein-
ingsmál séu borin undir Héraðs-
dóms Reykjaness.
Ráðuneytið hyggst hins vegar
rannsaka frekar ásakanir Ís-
lensku menntasamtakanna um
vanrækslu Hafnarfjarðarbæjar á
góðum stjórnsýsluháttum. ■
Leitinni líklega hætt:
Eldislaxinn
horfinn
NÁTTÚRAN Leit að eldislaxinum
sem slapp úr Norðfjarðarhöfn í
síðustu viku gengur afar illa. Síð-
ustu eldislaxarnir sem fengust í
net leitarbáta Síldarvinnslunnar
fundust á laugardag. Þegar veiði-
menn vitjuðu netanna í Mjóafirði í
gær fundust aðeins þrjár síldar,
en enginn var laxinn.
„Þetta er einn ömurlegasti
veiðiskapur sem ég hef lent í. Ein-
hverjir fræðingar voru með kenn-
ingar um að laxinn hafi farið suð-
ur fyrir Norðfjörðinn. Þeir segja
að hann gangi alltaf sólarsinnis í
kvíunum,“ segir Óli Ólafsson, sjó-
maður í Neskaupstað, sem leiðir
leitina að týnda eldislaxinum.
Um hundrað af 3.000 löxunum
hafa fundist. Líklegt er að leit verði
hætt í dag ef enginn lax finnst í net-
um þriðja daginn í röð. ■
BANDARÍSK HERÞOTA
Herþotur gerðu árás á vígi talíbana í
Afganistan.
Árás á vígi talíbana:
Allt að 50
drepnir
AFGANISTAN, AP Allt að 50 talíbanar
féllu þegar bandarískar herþotur
gerðu loftárás á vígi þeirra í fjall-
lendi í suðausturhluta Afganist-
ans, skammt frá landamærum
Pakistans.
Yfirvöld í Zabul-héraði, þar
sem árásin átti sér stað, segja að
afganskir hermenn hafi fundið að
minnsta kosti 50 lík í búðum talí-
banana en talsmaður bandaríska
hersins heldur því fram að aðeins
fjórtán vígamenn hafi farist. Tals-
maður talíbana hefur staðfest að
árásin hafi átt sér stað en heldur
því fram að uppreisnarmennirnir
hafi komist undan og fórnarlömb-
in hafi verið óbreyttir borgarar. ■
Rallkappi í framboði:
Kýldi
pólitískan
andstæðing
NOREGUR Norski rallkappinn Mart-
in Schanche, sem er í framboði til
sveitastjórnar í Frogn, kýldi póli-
tískan andstæðing sinn fyrir
framan hátt í 150 manns.
Atvikið átti sér stað í skóla í
Drammen þar sem fram fóru
kappræður fulltrúa sjö flokka.
Hart hafði verið vegið að
Schanche og ákvað hann að draga
sig út úr kappræðunum. Þegar
Torger Micaelsen, frambjóðandi
Verkamannaflokksins, kallaði
Schanche huglausan var Schanche
nóg boðið og svaraði hann með því
að slá Micaelsen í andlitið.
Schanche, sem er 57 ára, sneri
sér að stjórnmálum árið 2001 þeg-
ar ferli hans sem rallökumanns
lauk. Hann er nú í framboði fyrir
Framfaraflokkinn. ■
Samdráttur Flugleiða:
Reksturinn
í járnum
SAMGÖNGUR Farþegum í milli-
landaflugi Flugleiða fækkaði milli
ára í júlí úr 160.269 í 148.454, sem
samsvarar 7,4% fækkun milli ára.
Á fyrstu 7 mánuðum ársins hefur
því orðið um 10% fækkun farþega
milli ára. Farþegum til og frá
landinu hélt áfram að fækka milli
ára í júlí, úr 102.507 farþegum í
95.710.
Í hálffimmfréttum Kaupþings
Búnaðarbanka segir að þessar töl-
ur gefi ekki tilefni til þess að ætla
að hagnaður verði af félaginu í ár,
eins og áætlanir segi til um. ■
Braut á rétti móður til umsjár:
Dómurinn hafnaði kröfu um frávísun
HÉRAÐSDÓMUR REYKJAVÍKUR
Faðirinn sótti um skólavist fyrir dóttur sína
í breskum skóla í Egyptalandi.
STJÓRNMÁL Mikil ólga og óvissa er
innan Samfylkingarinnar vegna
framboðshugleiðinga Ingibjargar
Sólrúnar Gísladóttur, forsætisráð-
herraefnis flokksins, til for-
mennsku. Stuðningsmenn Ingi-
bjargar Sólrúnar
hafa sumir lagt hart
að henni að taka
slaginn en sjálf gef-
ur hún ekkert uppi
um áform sín en
boðar yfirlýsingu
um málið í dag.
Heimildir Frétta-
blaðsins herma að
allt eins sé líklegt að
hún stefni á fram-
boð að tveimur
árum liðnum en taki
námsleyfi þangað til. En þetta er
aðeins nefnt sem möguleiki og eng-
inn virðist vita hvað borgarstjór-
inn fyrrverandi ætlast fyrir.
Stuðningsmennirnir létu Gallup
gera skoðanakönnun í júní og júlí
þar sem fram kemur að 87 prósent
aðspurðra vildu að hún byði sig
fram til formanns gegn Össur
Skarphéðinssyni. Katrín Theodórs-
dóttir lögfræðingur er talsmaður
þeirra sem stóðu fyrir könnuninni.
Hún segir að Ingibjörg Sólrún hafi
ekki verið með í ráðum varðandi
könnunina, sem stuðningsmenn
hennar hafi ætlað að nota sem
vinnugagn og til að þrýsta á hana
að gefa kost á sér. Hún segir að
Ingibjörgu Sólrúnu hafi verið
kynntar niðurstöðurnar í lok júlí
en nú, mánuði síðar, hafi einhver
lekið niðurstöðunum til fjölmiðla
án sinnar vitundar.
Einn helsti stuðningsmaður
Ingibjargar Sólrúnar, Margrét S.
Björnsdóttir forstöðumaður, er
meðal aðstandenda könnunarinnar.
Hún segist vera á þeirri skoðun að
kjósa eigi á milli formannsefna í
Samfylkingunni rétt eins og ann-
arra embætta. Margrét segist ekki
hafa hugmynd um það hvaða leið
Ingibjörg Sólrún velji. „Vandinn er
í hnotskurn sá að það er meiri eft-
irspurn eftir Ingibjörgu Sólrúnu
en framboð,“ segir Margrét.
Sjálf hefur hún ekkert látið uppi
um áform sín síðan daginn eftir al-
þingiskosningarnar í maí þegar
hún lýsti því í fjölmiðlum að hún
væri síður en svo á leið í formanns-
slag.
„Ég kom inn til þess að starfa
við hliðina á Össuri Skarphéðins-
syni og öðrum í forystusveit Sam-
fylkingarinnar. Ég held að for-
mannsslagur yrði þessum flokki
ekki til framdráttar, þannig að ég
stefni ekki á neitt slíkt,“ sagði
Ingibjörg Sólrún í Fréttablaðinu
fyrir rúmum þremur mánuðum.
Nokkrum vikum síðar vildi Ingi-
björg Sólrún aðspurð ekki gefa
upp hvort hún væri enn sömu
skoðunar en sagðist ætla að nota
sumarið til að hugsa sinn gang.
Össur Skarphéðinsson, formað-
ur Samfylkingarinnar, sagðist í
samtali við Fréttablaðið vera í
framboði til formennsku eins og
fram hefði komið í vetur þegar
þau Ingibjörg Sólrún skiptu með
sér verkum í vetur. Hann vildi
ekkert tjá sig að öðru leyti.
rt@frettabladid.is
„Ég held
að for-
manns-
slagur yrði
þessum
flokki ekki
til fram-
dráttar.
INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR
Þess er beðið að hún taki af skarið.
Ingibjörg Sólrún
undan feldi í dag
Samfylkingarmenn áhyggjufullir vegna hugsanlegs formannsslags.
Össur fastur fyrir en Ingibjörg Sólrún gefur ekkert uppi þrátt fyrir fyrri
yfirlýsingar um að hún ætlaði ekki í formannsslag.
RÁN Vopnað rán var framið í sölu-
turninum við Kópavogsbraut á
sunnudagskvöld. Tilkynnt var um
ránið til lögreglu klukkan 20:42.
Ræninginn kom inn í söluturninn
vopnaður hnífi með vasaklút fyrir
andlitinu og heimtaði peninga úr
afgreiðslukassanum af af-
greiðslustúlkunni, sem var ein á
vakt. Hún lét hann hafa alla pen-
inga sem í kassanum voru, á milli
50 og 60 þúsund krónur. Myndir
náðust af manninum á öryggis-
myndavélar. Að sögn Friðriks
Smára Björgvinssonar, yfirlög-
regluþjóns í Kópavogi, voru
myndirnar skoðaðar og skýrðar
hjá tækjadeild lögreglunnar í
Reykjavík í gær. Hann vonaðist til
þess að myndirnar leiddu til þess
að ræninginn næðist.
Þetta er í annað skiptið á stutt-
um tíma sem framið er vopnað
rán í söluturninum. 18. júní rudd-
ust tveir ungir menn, báðir vopn-
aðir hnífum, inn í söluturninn og
höfðu um 35 þúsund krónur á
brott með sér. Þeir eru enn
ófundnir. ■
BIÐSKÝLIÐ KÓPAVOGSBRAUT
Ræninginn var vopnaður hnífi og með vasaklút fyrir andlitnu.
Biðskýlið Kópavogsbraut:
Annað vopnaða ránið í sumar
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON
Fastur fyrir á formannsstóli.
Borgarfjarðarbrú:
Ætla að ná
upp bílnum
SLYS Flutningabílsins sem lenti út
af Borgarfjarðarbrú í gær er enn í
ósnum. „Ætlunin er að ná gámnum
og restinni af bílnum upp í dag,“
segir Árni Ásgeirsson hjá tjóna-
deild Tryggingamiðstöðvarinnar.
Árni segir að unnið sé að aðgerð-
aráætlun um hvernig best sé að
standa að framkvæmdinni en tak-
markað er hversu mikinn þunga má
leggja á brúna. Aðalhugsunin við að
ná flakinu upp er vegna umhverfis-
og sjónmengunar en lítil verðmæti
eru talin vera í ósnum. Þörungamjöl
er í gámnum. ■