Fréttablaðið - 26.08.2003, Page 13
Fyrirtækið ORF-líftækni hefurinnleitt erfðabreytt bygg á Ís-
landi í því augnamiði að framleiða
prótín í fræjum þess til nota í
lyfjagerð. Fyrirtækið tilgreinir
tvær meginástæður fyrir því að
rækta megi erfða-
breytt bygg af ör-
yggi hér á landi. Í
fyrsta lagi að bygg-
ið sé sjálffrjóvg-
andi og að frjókorn-
in lifi einungis í
eina klukkustund á
akrinum, og þar af
leiðandi verði víxl-
frjóvgun við ó-
erfðabreytt bygg í
lágmarki. Í öðru
lagi að veðurfars-
skilyrði í landinu
séu þess eðlis að
þau hjálpi til við að
takmarka frjó-
kornadreifingu frá
erfðabreytta bygg-
inu til skyldra teg-
unda í ræktun eða
villtri náttúru. Full-
yrðingar forráða-
manna ORF-líf-
tækni girða hins-
vegar ekki fyrir hættur sem fæðu-
keðju manna og dýra stafar af
erfðabreyttum plöntur til iðnaðar-
og lyfjaframleiðslu.
Frjó- og fræmengun líkleg
Frjókorn berast ekki aðeins
með vindi, heldur líka með skor-
dýrum, fuglum, öðrum villidýrum,
búfé og örverum í jarðvegi. Þá er
líklegt að hlýnun loftslags á Ís-
landi leiði af sér fleiri og fjöl-
breyttari skordýr sem dreifi frjó-
kornum, og fjölbreyttari tegundir
villtra plantna, sem sumar kunna
að vera skyldar byggi.
Erfðabreytt og óerfðabreytt
byggfræ geta blandast saman við
uppskeru, úrvinnslu og markaðs-
setningu. Fræ dreifast ekki aðeins
með vindi, fuglum og öðrum dýr-
um, heldur líka með mönnum (t.d.
í fatnaði og farartækjum þeirra
sem vinna á ökrum, í geymslum og
vinnsluhúsum) og með vélum,
tækjum og flutningavögnum sem
notuð eru til uppskeru, vinnslu og
dreifingar á erfðabreyttu fræi.
Fræ geta blandast hjá fyrirtækj-
um sem geyma og selja bæði
erfðabreytt og óerfðabreytt fræ,
eða hjá bændum sem óafvitandi
víxla þeim í notkun eða í viðskipt-
um við aðra bændur.
Fæðukeðjan í hættu
Vísindamenn viðurkenna að
erfðatæknin sé of ónákvæm til
að hún geti tryggt að plantan
geymi prótíngenið ávallt í
ákveðnum hluta hennar. Prótín
kann að vera sértækt fyrir fræ-
ið, þ.e. erfðabreytt með það fyr-
ir augum að það komi aðeins
fram í fræinu, en engin trygging
er fyrir því að aðrir hlutar plönt-
unnar beri ekki líka erfðavísinn.
Þetta gefur mikilvægar vísbend-
ingar um hvernig haga beri með-
ferð allrar uppskeru erfða-
breytts byggs. Um leið og fræj-
unum hefur verið safnað verður
í raun að eyða öllu því sem eftir
er af plöntunni með öruggum
hætti, ef koma á í veg fyrir að
erfðabreytt efni mengi fæðu-
keðju manna eða dýra.
Vísindamenn hafa sérstakar
áhyggjur af afurðum erfða-
breyttra plantna sem notaðar
eru í lyf þar sem þær geti safn-
ast fyrir í lífkeðjunni. Bandarísk
samtök vísindamanna, sem láta
sig sérstaklega varða siðfræði-
þætti vísindastarfs, (Union of
Concerned Scientists) orða þetta
svo, að „afurðir erfðabreyttra
„lyfjaplantna“ kunna að hafa
eðlisefnafræðilega eiginleika
sem valda því að þær hlaðist upp
í umhverfinu eða safnist fyrir í
lífverum, sem eykur verulega
hættu á að þær mengi vistkerfi
og komist með því inn í fæðu-
keðju manna og dýra.“
Heilsufari neytenda ógnað?
Meiri háttar mengunarvanda-
mál hafa þegar komið upp í sam-
bandi við framleiðslu erfða-
breyttra „lyfjaplantna“, en það al-
varlegasta varð í Bandaríkjunum
á liðnu ári þegar 18 milljónir lítra
af soja sem ætlað var til manneld-
is blandaðist erfðabreyttum
„lyfjamaís“. Mikill fjöldi kvartana
neytenda um ofnæmisviðbrögð
leiddi til þess að innkalla varð alla
matvöruna og gott betur, og er
talið að kostnaður hafi numið ein-
um milljarði dollara. Bandarísk
stjórnvöld voru knúin til að herða
umsjón með framleiðslu erfða-
breyttra „lyfjaplantna“ og viður-
kenna nú að frekari öryggisað-
gerða sé þörf. Sú krafa verður æ
háværari meðal vísindamanna að
reglugerðir kveði á um að meng-
unarmörk erfðabreyttra lyfja-
plantna í matvælum séu við núll-
punktinn, og að besta leiðin til
þess sé að erfðabreyttar „lyfja-
plöntur“ verði eingöngu ræktaðar
innandyra og að ekki séu ræktaðar
sömu tegundir og þær sem notað-
ar eru til fæðuframleiðslu – til
dæmis bygg. ■
13ÞRIÐJUDAGUR 26. ágúst 2003
■
Sú krafa verður
æ háværari
meðal vísinda-
manna að
reglugerðir
kveði á um að
mengunarmörk
erfðabreyttra
lyfjaplantna í
matvælum séu
við núllpunkt-
inn, og að
besta leiðin til
þess sé að
erfðabreyttar
„lyfjaplöntur“
verði eingöngu
ræktaðar inn-
andyra og að
ekki séu rækt-
aðar sömu teg-
undir og þær
sem notaðar
eru til fæðu-
framleiðslu - til
dæmis bygg.
DANSAÐU HANDFRJÁLS
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
21
88
6
0
8/
20
02
Handfrjáls búnaður Samlituð vindskeið Hágæða hljómtæki Lúxus innrétting
COROLLA - MOBILE Vertu í góðu sambandi. Komdu strax. Prófaðu nýjan Corolla Mobile með handfrjálsum búnaði, Sedan,
Hatchback eða Wagon. Corolla Mobile er hlaðinn nýjungum, innréttingin er ríkuleg og tónlistin dunar í hágæða hljómtækjum með 6 hátölurum. Corolla
Mobile er glæsilegur bíll að utan sem innan. Við bjóðum þér upp.... í reynsluakstur. www.toyota.is
Umræðan
SANDRA B. JÓNSDÓTTIR
■ skrifar um erfðabreytt matvæli.
Áhættusöm ræktun
á erfðabreyttu byggi