Fréttablaðið - 26.08.2003, Page 30
Hrósið 30 26. ágúst 2003 ÞRIÐJUDAGUR
■ Óskalagið mitt
Ég veit ekki til þess að það sénein umræða um frekara tó-
baksbann á þingi eða meðal al-
þingismanna,“ segir Jónína Bjart-
marz, formaður heilbrigðisnefnd-
ar Alþingis, um hugmyndir for-
manns Tóbaksvarnarnefndar um
að banna alfarið tóbaksreykingar
á veitingastöðum. Áður en lengra
er haldið vill Jónína sjá hvernig
fyrri tóbaksvarnarlögum hefur
verið framfylgt og hver reynslan
af þeim hefur í raun verið. Þor-
stein Njálsson, læknir og formað-
ur Tóbaksvarnarnefndar, hefur
lýst því yfir að nefndin muni á
næstunni snúa sér að því að fá
stuðning við hugmyndir um algert
tóbaksbann á veitingahúsum en
talsmenn Samtaka ferðaþjónust-
unnar eru tvístígandi yfir þeim
yfirlýsingum:
„Við teljum að best sé að láta
þessi mál þróast í takt við óskir
gesta á veitingahúsunum sjálfum.
Það er ljóst að margir veitinga-
menn hafa þegar gengið lengra í
tóbaksbanni en gildandi lög segja
til um,“ segir Erna Hauksdóttir,
framkvæmdastjóri Samtaka
ferðaþjónustunnar. „Það fer bráð-
um að verða spurning um hvar
fólk eigi yfirleitt að reykja. Sjálfri
finnst mér heldur dapurlegt að sjá
fólk reykjandi fyrir utan
skemmtistaði vegna tóbaksbanns
sem hugsanlega er í gildi innan-
dyra. Mér skilst að í New York séu
yfirvöld að íhuga að taka skref
aftur á bak í tóbaksvörnum og
leyfa tóbaksreykingar aftur á
veitingahúsum þar sem matsala
fer ekki fram. Menn vilja ekki
horfa upp á veitingahúsagesti
reykjandi úti á götu. Svo einfalt er
það,“ segir Erna. ■
Tóbak
■ Umræða um algert bann við tóbaks-
reykingum á veitingahúsum er ekki til
umræðu innan veggja Alþingishússins.
Formaður Tóbaksvarnarnefndar blæs þó
til sóknar og vill skerpa enn frekar á
gildnandi lögum um tóbaksvarnir.
...fær Davíð Oddsson fyrir að
koma Sjálfstæðisflokknum í 40
prósenta fylgi aftur og þrátt fyrir
allt.
Ekkert tóbak á Alþingi
SIGMUNDUR ERNIR
Klukkustundarlangir sjónvarpsþættir á
Skjá 2 í vetur.
Sigmundur
á Skjá 2
SJÓNVARP „Þetta verða vikulegir
fréttatengdir þættir. Klukkutími
í senn,“ segir Sigmundur Ernir
Rúnarsson, fyrrum ritstjóri DV,
sem hyggur nú á endurkomu sína
í sjónvarp. Ef að líkum lætur
birtist hann aftur á skjánum á
nýrri sjónvarpsstöð Skjás Eins
sem hlotið hefur nafnið Skjár 2
og hefur útsendingar í haust.
Mun Sigmundur Ernir verða í
byrjunarliði stöðvarinnar, sem
eins og Stöð 2 mun selja áskrift
að dagskrá sinni. „Ég er að vísu
ekki búinn að skrifa undir samn-
ing en það eru miklar líkur á að
svona verði þetta,“ segir Sig-
mundur Ernir, sem um árabil
hefur verið með ástsælustu sjón-
varpsmönnum landsins, lengst af
á Stöð 2. Þar hætti hann störfum
fyrir tveimur árum þegar Karl
Garðarsson var ráðinn frétta-
stjóri stöðvarinnar en Sigmundur
sóttist einnig eftir þeirri stöðu. Í
framhaldinu gerðist Sigmundur
ritstjóri DV þar til fyrir
skemmstu að hann lét af störfum.
Hefur hann fengist við skriftir
síðan og er bókar að vænta áður
en langt um líður. ■
■ Leiðrétting
Vegna stöðugra frétta af hneykslismálum skal
tekið fram að viðkomandi eru flestir á tánum
og sumir á hnjánum.
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Fjögurra stiga.
Breiðholtslaug.
Skoda Superb Elegance.
Brjósta-
gjafa-
fatnaður
Auðbrekku 2, s: 564 1451
Móðurást
Ferðamennirnir eru ofsalegaspenntir fyrir þessu allan árs-
ins hring. Mér er sagt að vatnið
þarna sé hollara en í Bláa lóninu
fyrir sunnan því hér er það ósalt
og þurrkar húðina því síður,“ seg-
ir Ingibjörg Þorleifsdóttir, hótel-
stýra í Reykjahlíð í Mývatnssveit
og eigandi veitingahússins Sanzi-
bar á staðnum, um bláa lónið í
Bjarnarflagi sem í raun er affalls-
vatn úr borholunum sem þar eru
allt í kring. Engin búningsaðstaða
hefur verið við lónið en það hefur
ekki stöðvað ferðamennina í því
að tína af sér spjarir á staðnum og
skella sér út í. Ingibjörg segir að
til standi að færa lónið tvo kíló-
metra til suðurs og byggja þar
fullkoma búningsaðstöðu fyrr
gesti enda sé staðsetning lónsins
eins og er heldur varasöm. Hverir
séu víða í botni og þeir geti reynst
hættulegir. Svæðið sé þó merkt og
þess gætt að fólk fari sér ekki á
voða:
„Það er von okkar allra að nýja
lónið og búningsaðstaðan verði til-
búin strax næsta vor,“ segir Ingi-
björg í Reykjahlíð en gestir bláa
lónsins í Bjarnaflagi í sumar hafa
skipt tugum þúsunda. ■
Ég er bæði í lögreglukór ogkirkjukór þannig að úr vöndu
er að velja,“ segir Geir Jón Þóris-
son yfirlögregluþjónn um óska-
lagið sitt. „En ég held ég nefni
Yndislega eyjan mín. Það er nokk-
urs konar þjóðsöngur Vestmanna-
eyinga og sungið við hátíðleg
tækifæri eins og á þjóðhátíð og oft
í jarðarförum.“ ■
Lárétt: 1 greiðir, 7 skamma, 8 steinlím, 9
frjálsan, 11 skóli, 12 sigaðir, 15 ónefndur,
16 hreyfing, 17 reyndar.
Lóðrétt: 1 dýrahljóð, 2 pot, 3 óhreint, 4
gróður, 5 hækka í tign, 6 trosnar, 10 ætt-
ingjana, 13 málmur, 14 hreyfast, 15 núm-
er.
JÓNÍNA BJARTMARZ
Formaður heilbrigðisnefndar Alþingis vill
sjá hvernig gildandi tóbaksvarnarlögum
hefur verið framfylgt áður en lengra er
haldið á því sviði.
1
7
8
9 10
12 13
15 16
14
17
2 3 4 5
11
6
Lausn. Lárétt: 1 borgar, 7 atyrða, 8 kalk, 9
lausan, 11 fg, 12 attir, 15 nn, 16 ið, 17
raunar.
Lóðrétt:1 baul, 2 ot, 3 rykugt, 4 gras, 5
aðla, 6 raknar, 10 afana, 13 tin, 14 iða,
15 nr.
Í BJARNARFLAGI
Bláa lónið í Mývatnssveit er yfirleitt þéttskipað ferðamönnum sem setja ekki skort á bún-
ingsaðstöðu fyrir sig.
Mývatn
BLÁA LÓNIÐ
■ í Bjarnarflagi í Mývatnssveit nýtur mik-
illa vinsælda ferðamanna. Það þykir hafa
það fram yfir Bláa lónið í Svartsengi að
vera ósaltað. Nú á að færa það 2 kíló-
metra til suðurs og byggja almennilega
baðaðstöðu fyrir gesti.
Bláa lónið – ósaltað
M
YN
D
/H
EI
A