Fréttablaðið - 26.08.2003, Qupperneq 31
31ÞRIÐJUDAGUR 26. ágúst 2003
BÍLAR
Lögreglan í Reykjavík varar bílaeigendur
við: Innbrotum fjölgar.
Brotnar
bílrúður
INNBROT Lögreglan í Reykjavík
hefur áhyggjur af auknum inn-
brotum í bifreiðar á höfuðborgar-
svæðinu. Um síðustu helgi var
brotist inn í 17 bifreiðar í borginni
og í öllum tilvikum einhverju
stolið úr þeim. Innbrotafaraldur-
inn einskorðast ekki nú, eins og
oft áður, við ákveðin hverfi í borg-
inni heldur dreifist um allt. Hvet-
ur lögreglan bílaeigendur til að
skilja aldrei eftir verðmæti í bif-
reiðum sínum yfir nótt því það
eitt bjóði hættunni heim. Jafnvel
geti verið betra að skilja bílana
eftir opna þannig að ekki verði
tjón á rúðum þegar þjófarnir
brjóta sér þar leið inn. ■
Köngulær eru bara eðlilegurhluti af náttúrunni og engin
ástæða til að óttast þær,“ segir
Þóra Hrafnsdóttir, líffræðingur á
Náttúrufræðistofnun, en brögð
hafa verið að því að börn hafi ver-
ið hrædd við að fara í berjamó
vegna köngulóa sem þar hafa sést
í auknum mæli. Kenna sérfræð-
ingar um hlýindum í sumar enda
höfðu náttúrufræðingar ýmsir
spáð pöddusumri, sem gengið hef-
ur eftir. „Maðurinn má ekki alltaf
halda að hann sé einn í heiminum
og haga sér eins og guð. Köngu-
lærnar verða líka að vera til og
stundum finnst manni eins og
vanti dálitla indíánaheimspeki í
okkur mannfólkið,“ segir Þóra.
Um 80 tegundir af köngulóm
lifa hér á landi og er engin þeirra
eitruð. Því ber ekki að óttast þær í
berjamó: „Fólki er alveg óhætt að
leggjast út í móa og því síður er
hætta á að köngulærnar eyðileggi
berjasprettuna. Köngulóin er rán-
dýr og borðar ekki einu sinni ber.
Það gera fuglarnir hins vegar,“
segir Þóra, sem veit þó eins vel og
aðrir að köngulær geta verið eitr-
aðar. En þær búa í útlöndum:
„Svarta ekkjan er líklega fræg-
ust þeirra. Hún spýtir eitri við bit
og getur verið banvæn. Þó svo
hlýni enn frekar í veðri hér á
landi tel ég hverfandi líkur á að
hún taki sér hér bólfestu. Til þess
þarf veturinn líka að vera hlýr,“
segir Þóra og minnir á gamlan
húsgang þar sem segir: „Könguló,
könguló, vísaðu mér á berjamó“,
sem undirstrikar eingöngu að
köngulær og ber á lyngi hafa lengi
átt samleið hér á landi og ástæðu-
laust að kippa sér upp við það. ■
Bjartur hefur tryggt sér út-gáfuréttinn á The Da Vinci
Code eftir Dan Brown, sem er
aðalsakamálasagan í dag og
margföld
metsölubók.
Sagan kemur
út samtímis
á Íslandi og í
Danmörku
og er það lið-
ur í nýrri út-
rás Bjarts en
það forlag er
nú rekið í
tveim lönd-
um. Það er Snæbjörn Arngríms-
son sem er heilinn á bak við
þessa tilraun og vonir standa til
að um metár verði að ræða hjá
Bjarti í ár því forlagið er líka
með nýja Harry Potter bók.
Náttúran
ÞÓRA HRAFNSDÓTTIR
■ hjá Náttúrufræðistofnun hvetur fólk til
að hafa ekki áhyggjur af köngulóm í
berjalandi. Þó 80 tegundir þeirra lifi hér
á landi er engin þeirra eitruð.
■ Bækur
KÖNGULÓ
„Könguló, könguló, vísaðu mér á berjamó.“
Köngulær eru af mismunandi gerðum.
Þessi mynd er tekin erlendis.
Könguló í berjamó
ÚTI:
Sterkir neonlitir.
Hermannabuxur.
Mjó belti.
Stóra beltissylgjan.
Sokkabuxur.
Sandalar.
Stórir pinnahælar.
Glennulegir skartgripir sem eiga sér ekki
persónulega sögu.
Aðskornir bolir sem sýna of mikið.
Rauð sólgleraugu.
Toppur sem sýnir magann.
G-strengur sem fer yfir mjaðmarbeinið.
INNI:
Heillitir eins og kóngablár eða dökk-
rauður.
Gallabuxur eru númer 1, 2 og 3.
Ein keðja í beltinu á svona lausum
gallabuxum.
Beltið verður að vera þykkt og gróft.
Að bretta upp með einu stóru broti á
gallabuxunum.
Pinnahælarnir verða að vera mjög lágir.
Gróf mótorhjólastígvél.
Bolirnir eiga að hanga út á aðra öxlina
og sýna hana.
Klassísk, pen en kassalaga sólgleraugu.
Svitaband á úlnlið er mjög heitt.
Gamli afabolurinn.
Leggings.
Tíska
LAUFEY EYÞÓRSDÓTTIR
■ vinnur hjá versluninni 17 og þar er allt
brjálað þessa dagana. Allir að byrja í skóla
og nýju vörurnar að fljúga upp úr kössum.
En þá er líka vissara fyrir fólk að vita hvað
má og hvað má ekki. Fréttablaðið spurði
Laufey hvað megi og hvað ekki!
LAUFEY EYÞÓRSDÓTTIR
Starfsmaður 17 er á fullu þessa dagana við að
afgreiða stelpur og stráka um nýja larfa. Ekki
veitir af, það er að koma vetur og margt að
varast í þessum efnum sem öðrum.
Hvað má hvað má ekki?