Fréttablaðið - 19.09.2003, Blaðsíða 33
33FÖSTUDAGUR 19. september 2003
Þar sem Ís lendingum finnst skemmtilegast að djamma
sími: 511-13-13 / www.nasa. is
við ætlum að skemmta þér í vetur
l a u g a r d a g i n n 2 0 . s e p t .
Dadd i d i skó & H lynur
2,25%
Draugamynd heldur börnum frá skóla
Lögreglan í Tiruchi á Indlandihefur þurft að glíma við
frekar undarlegt mál síðustu
daga. Þannig er mál með vexti
að ljósmynd sem sýnir draug á
bak við einn skólapilt hefur
valdið það mikilli hræðslu á
meðal nemenda eins skóla borg-
arinnar að þeir þora ekki að
mæta í tíma.
Lögreglan fullyrðir að um
tölvuteiknaða fölsun sé að ræða
en draugurinn, sem sést svífa
um fótalaus í lausu lofti, er frek-
ar gervilegur.
Pilturinn var á meðal gesta
sem komu til borgarinnar frá
Bangalore og var myndin tekin
þegar hópurinn heimsótti vin-
sælan stað fyrir lautarferðir í
nágrenni skólans. Dagblaðið
Thanthi greindi frá því að hon-
um hafi brugðið svo mikið við að
sjá myndina að hann hafi fallið í
dá. Sagan hrinti af stað mikilli
skelfingu á meðal bæjarins og
skipuðu foreldrar börnum sín-
um að halda sig fjarri lautar-
staðnum. Ekki er vitað hvort
drengurinn er enn í dái.
Sagan magnaðist svo á meðal
bæjarbúanna, sem halda því nú
fram að draugurinn elti unga
pilta á röndum. Hann átti svo að
setja drengi í álög með þeim
afleiðingum að þeir féllu í
dauðadá eins og kom fyrir unga
ferðamanninn frá Bangalore.
Þetta varð til þess að foreldr-
ar nokkurra barna hættu að
senda börn sín í skólann.
Lögreglan hefur því hafið
auglýsingaherferð til þess að af-
hjúpa ljósmyndina sem falsaða.
Ekki er vitað hver stríðnis-
púkinn er eða hvort það geti
hugsanlega verið að lögreglan
hafi rangt fyrir sér
Sofið með ljósin kveikt. ■
Skrýtnafréttin
DRAUGAMYNDIN
Raunverulegur draugur, eða hvað?
NEW YORK-TÍSKA
Þessi jakki er úr málmi og ull og var á
meðal þess sem Anna Sui hannaði fyrir
næsta vor en sýning hennar vakti mikla at-
hygli á tískuvikunni í New York á miðviku-
daginn.
Endurvekja gömlu
sveifluna
TÓNLEIKAR Þeir kölluðu sig Rottu-
gengið, The Rat Pack, sveiflu-
sjarmörarnir Frank Sinatra,
Sammy Davis og Dean Martin.
Í kvöld ætla þeir Páll Rósin-
krans, Geir Ólafsson og Harold
Burr að setja sig í sveiflustelling-
arnar á Broadway og töfra fram
lög í anda þessara gömlu snillinga.
„Við ætlum að endurvekja Las
Vegas-stemninguna eins og hún
gerðist best,“ segir Geir Ólafsson.
Þeir eru með tuttugu manna
stórsveit með sér undir stjórn
Ólafs Gauks. Kynnir er enginn
annar en Hemmi Gunn.
Svo hafa þeir fengið til liðs við
sig unga söngkonu, Bryndísi Ás-
mundsdóttir, sem jafnframt er ný-
útskrifaður leikari. Hún tekur
með þeim nokkur lög. ■
SJÓNVARP Gamanþáttaröðin 8
Simple Rules for Dating My
Teenage Daughter hefur notið
mikilla vinsælda í Bandaríkjun-
um. Verðlaunaleikarinn John
Ritter lék föðurhlutverkið í þátt-
unum en hann missti meðvitund í
tökum á fimmtudaginn og lést úr
hjartaáfalli skömmu síðar. Sjón-
varpsstöðin ABC hefur ákveðið
að halda áfram með seríuna og
sýna í haust þrjá þætti sem voru
teknir fyrir dauða Ritters. Höf-
undar þáttaseríunnar hafa ekki
ákveðið með hvaða hætti faðir
óstýrilátu unglinsstúlkunnar á að
láta lífið í þáttunum. John Ritter
var tilnefndur til margfaldra
Emmy- og Golden Globe-verð-
launa en hann hlaut hvor verð-
launin einu sinni um ævina. Út-
för hans fór fram á mánudaginn
og margir aðdáendur hafa lagt
blóm og ljósmyndir við minnis-
merki hans í Hollywood. ■
Þættirnir halda áfram
LEIKARINN JOHN RITTER
Gamanserían sem John Ritter lék stórt
hlutverk í heldur áfram þrátt fyrir dauða
hans.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI