Fréttablaðið - 09.10.2003, Page 2
2 9. október 2003 FIMMTUDAGUR
„Jung wurde Ich Njal gegeben.“
Arthúr Björgvin Bollason er á förum til Þýska-
lands. Hann langar að þýða Njálu á þýsku.
Spurningdagsins
Möguleikar Hannesar
á málsókn eru hæpnir
Lögmaður Rithöfundasambandsins skilaði greinargerð vegna Bréfa-
málsins. Talsmaður fjölskyldu Laxness segir allt tal um málsókn vera út
í hött þar sem Hannes hafi aldrei beðið um leyfi.
BÓKMENNTIR Stjórn Rithöfunda-
sambands Íslands fundaði í gær
um þá ósk Hannesar Hólmsteins
Gissurarsonar að fá aðstoð sam-
bandsins vegna þess að hann fái
ekki aðgang að
bréfasafni Hall-
dórs Kiljans
Laxness og megi
heldur ekki
vitna í þau gögn
í væntanlegri
ævisögu um
skáldið. Sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins
er lögmaður Rithöfundasam-
bandsins búinn að taka saman ít-
arlega álitsgerð vegna málsins
þar sem hann kemst að þeirri nið-
urstöðu að lokun bréfasafnsins
feli varla í sér möguleika á máls-
sókn. Aðalsteinn Ásberg Sigurðs-
son, formaður Rithöfundasam-
bandsins, vildi ekkert um málið
segja en vísaði á Hannes Hólm-
stein sem hafði fengið niðurstöð-
una afhenta.
„Ég hef kynnt mér úrskurð
Rithöfundasambandsins,“ sagði
Hannes. „Það er engin efnisleg af-
staða tekin varðandi mínar spurn-
ingar og þeim ekki svarað á neinn
hátt. „
„Allt tal um málssókn á hendur
okkur er út í hött. Hannes hefur
aldrei beðið um leyfi,“ segir Hall-
dór Þorgeirsson, talsmaður fjöl-
skyldu Halldórs Kiljans Laxness
um þann möguleika sem Hannes
Hólmsteinn Gissurarson hefur
reifað á því að hann muni krefjast
skaðabóta frá fjölskyldunni vegna
hindrunar á aðgangi að bréfasafni
Nóbelsskáldsins í Þjóðarbókhlöð-
unni. Aðeins örfáir einstaklingar
hafa leyfi fjölskyldunnar til að
skoða bréfasafnið. Þeirra á meðal
eru Halldór Guðmundsson, ævi-
sagnaritari skáldsins og Helga
Kress bókmenntafræðingur.
Halldór Þorgeirsson segir að
afstaða fjölskyldunnar til þess
hvort Hannes Hólmsteinn fái að
skoða bréfin eða nota efni þeirra í
væntanlegri bók muni ekki liggja
fyrir fyrr en eftir að beiðnin kem-
ur fram.
„Þá munum við taka okkur
tíma í að skoða málið,“ segir Hall-
dór.
Hannes Hólmsteinn segist ekki
sjá neina ástæðu til að biðja um
leyfi enda eigi bréfasafnið að vera
opið.
„Safnið var opið og hver sem
er gat farið í það og ég var í róleg-
heitum fyrir ári síðan að glugga í
það,“ segir Hannes Hólmsteinn.
rt@frettabladid.is
albert@frettabladid.is
Einkavæðingarnefnd:
Leitar að ráðgjafa
EINKAVÆÐING Framkvæmdanefnd
um einkavæðingu kom saman í
gær til að hefja undirbúning að
sölu Landssímans. Ólafur Davíðs-
son formaður Framkvæmda-
nefndar um einkavæðingu segir
að nefndin hafi ákveðið að hefja
undirbúning að sölu Símans.
Hann segir að það muni taka
nokkurn tíma en fundir verði
haldnir vikulega í nefndinni.
Fyrstu skrefin verða að aug-
lýsa eftir ráðgjafa vegna sölunnar
og útboðsins. Í samráði við ráð-
gjafann verður gerð útboðslýsing
og ákveðið hvort og þá hversu
mikið verði selt til almennings og
hve mikið til kjölfestufjárfestis.
Einkavæðingarnefnd á eftir að
ganga frá öllum þessum atriðum.
Fréttablaðið greindi frá því í
gær að margir hefðu áhuga á að
kaupa Símann og hefðu látið þann
áhuga í ljós við einkavæðingar-
nefnd. Á meðal þeirra eru Íslands-
banki og Straumur, Kaupþing
Búnaðarbanki, eigendur Western
Wireless og Opin Kerfi.
Síminn er um 40 milljarða
króna virði ef miðað er við útboðs-
gengið frá því síðast var reynt að
selja hann en sé miðað við síðustu
viðskipti með bréf í Kauphöll Ís-
lands er fyrirtækið 42,5 milljarða
virði. Eftir á að koma í ljós hversu
mikið stórir fjárfestar eru reiðu-
búnir að borga fyrir hlut í Síman-
um. ■
Sameining grunnskóla Seltjarnarness ákveðin:
Markmiðið að efla skólastarfið
SAMEININGARMÁL Meirihluti bæjar-
stjórnar Seltjarnarness sam-
þykkti að sameina Mýrarhúsa- og
Valhúsaskóla og tekur sameining-
in gildi á næsta ári. Einn skóla-
stjóri verður yfir báðum skólun-
um í stað tveggja áður. Var sam-
þykktin þvert á óskir margra
starfsmanna skólanna tveggja og
einnig var talsvert um óánægju
foreldra með þennan ráðahag.
„Markmið okkar með þessu er
að gera allt skólastarf á Seltjarn-
arnesi enn betra en það er í dag,“
sagði Jónmundur Guðmarsson,
bæjarstjóri. „Þarna er ekki um
fjárhagslegan ávinning að ræða
heldur fyrst og fremst að efla
skólana og gera þá samkeppnis-
hæfari en nú er. Það er hins vegar
eðlilegt að fólk hafi mismunandi
skoðanir á málum sem þessum og
því kemur ekkert á óvart að marg-
ir séu okkur ekki sammála.“
„Ég hef engar forsendur til að
meta stöðuna,“ sagði Sigfús Grét-
arsson, skólastjóri Valhúsaskóla,
þegar ljóst var að sameining hafði
verið samþykkt. „Ég átti alveg
von á þessari niðurstöðu þannig
að þetta kemur ekki mikið á
óvart.“ ■
Framkvæmdu nauðsyn-
legar úrbætur:
Mötuneyti
ekki lokað
KÁRAHNJÚKAR Ekki kom til þess að
starfsfólk Heilbrigðiseftirlits
Austurlands lokaði mötuneyti
Impregilo við Axará. Var for-
svarsmönnum verktakafyrirtæk-
isins gert ljóst í síðustu viku að
slíkt yrði gert ef ekki yrðu gerðar
miklar úrbætur hið fyrsta.
„Þeir fengu lokafrest til að
klára ýmislegt varðandi aðstöð-
una við Axará,“ sagði Helga
Hreinsdóttir, framkvæmdastjóri
hjá Heilbrigðiseftirliti Austur-
lands. „Við gerðum athugasemdir
við mötuneyti, vatnsveitu, svefn-
skála og meðferð sorps í síðustu
viku og kröfðumst aðgerða. Það
hefur greinilega skilað sér vegna
þess að það hefur nánast tekist að
færa allt til betri vegar.“ ■
EDIKSÝRA LAK Þegar hefja átti
uppskipun úr Dettifossi, skipi
Eimskipafélags Íslands, í gær
kom í ljós að ediksýra hafði lekið
úr tanki. Talið er að eitt til tvö
tonn af efninu hafi lekið á meðan
skipið sigldi milli Bandaríkjanna
og Íslands. Slökkvilið var kallað á
staðinn og hreinsaði lest skipsins.
ÁREKSTUR Á AKUREYRI Árekst-
ur tveggja bíla varð á gatna-
mótum Hlíðarbrautar og Aust-
ursíðu á Akureyri í gær. Annar
ökumaðurinn hlaut minniháttar
meiðsl. Bílarnir voru báðir mik-
ið skemmdir og var annar þeir-
ra fluttur af vettvangi með
dráttarbíl.
ÓLAFUR DAVÍÐSSON
Einkavæðingarnefnd undir forystu hans
undirbýr sölu Símans.
GLJÚFRASTEINN
Bréfasafn Nóbelsskáldsins hefur valdið deilum.
„Allt tal um
málssókn á
hendur okkur
er út í hött.
FUNDUR BÆJARSTJÓRNAR
Þrátt fyrir mótmæli var sameining skólanna tveggja á Seltjarnarnesi samþykkt.
Náttúruverndaráætlun:
Fjórtán
svæði verði
friðlýst
STJÓRNMÁL Siv Friðleifsdóttir, um-
hverfisráðherra, hefur kynnt drög
að náttúruverndaráætlun fyrir
árin 2004 til 2008.
„Í náttúruverndaráætluninni er
lögð áhersla á að festa í sessi nýja
aðferðafræði við svæðisbundna
náttúruvernd, sem á rætur að
rekja til breyttrar hugmyndafræði
í málaflokknum. Í stuttu máli felst
hún í því að skilgreina og skrásetja
náttúruminjar sem þarfnast
verndar og tryggja lágmarks-
vernd þeirra í neti friðlýstra
svæða,“ segir í fréttatilkynningu
frá ráðuneytinu.
Í ætluninni er lagt til að fjórtán
svæði verði friðlýst á því tímabili
sem áætlunin nær til. Fjallað verð-
ur um drögin á umhverfisþingi
sem hefst 14. þessa mánaðar. ■
■ Spilliefnaleki ■ Lögreglufréttir
GEIMSKOT KÍNVERJA
Forsíður kínverskra dagblaða greindu í gær
frá fyrirhuguðu geimskoti.
Geimferðir Kínverja:
Á leið út
í geim
PEKÍNG, AP Kínverjar skjóta mönn-
uðu geimfari á loft miðvikudaginn
15. október eftir því sem þarlend-
ir fjölmiðlar fullyrða. Þetta er
fyrsta mannaða geimfarið sem
Kína sendir út í geim. Kínverjar
verða þar með þriðja þjóðin sem
sendir mannað geimfar á loft en
áður hafa Bandaríkjamenn og
Rússar sent menn út í geiminn.
Geimflaug Kínverja er af gerð-
inni Shenzhou og byggist að hluta
til á þeirri tækni sem notuð var
við smíði Soyuz flauga Rússa.
Nafnið Shenzhou þýðir „hið
helga far“. Einn maður verður
sendur með geimflauginni en ekki
liggur fyrir hver það verður.
Flugmenn úr kínverska hernum
hafa verið í strangri þjálfun og
eru nú 14 eftir af upphaflega
hópnum. Geimskotið verður í
styttra lagi en ætlunin er að flaug-
in verði á braut umhverfis jörðu í
eina og hálfa klukkustund.
Geimskotið verður sýnt beint í
sjónvarpi um allt land. ■
MIKIL AUKNING
Þeim fjölgar stöðugt sem nota tölvuna til
að sinna almennum bankaviðskiptum. Um
leið fækkar þeim sem þurfa í banka til að
greiða reikninga.
40% bankaviðskipta
í tölvu:
Fækkar í
útibúunum
BANKAR Um eða yfir 40% allra
venjulegra bankaviðskipta ein-
staklinga fara í gegnum heima-
banka. „Þetta helst í hendur við
fækkun starfsfólks í útibúum
banka,“ segir Friðbert Trausta-
son, formaður Sambands ís-
lenskra bankamanna. Hann segir
þessa þróun hafa orðið að mestu á
síðustu þremur til fjórum árum.
„Það er hins vegar lítil breyt-
ing á heildarfjölda starfsmanna
banka og fjármálfyrirtækja, því á
sama tíma hafa verið að byggjast
upp öflugar verðbréfadeildir hjá
fjármálafyrirtækjunum.“ Frið-
bert segir að þessi þróun hafi gert
það að verkum að menntunarstig
bankamanna hafi hækkað. Þriðj-
ungur félagsmanna sé nú með há-
skólamenntun. „Upplýsingatæk-
inin hefur haft mikil áhrif á þessa
þróun. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
Arthúr Björgvin, hvernig þýðir þú
„Ung var ég gefin Njáli“ á þýsku?
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Atlantshafsbandalagið:
Ráðamenn
í stríðsleik
COLORADO, AP Ráðamenn Nato
æfðu viðbrögð við neyðarástandi
sem væri við það að fara úr bönd-
unum í flugbækistöð í Colorado í
Bandaríkjunum í gær. Æfingin á
að búa þá undir að taka ákvarðan-
ir undir pressu.
Robertson lávarður, var í for-
sæti á æfingunni sem gekk út á að
herlið væri sent til ímyndaðrar
eyju þar sem óbreyttum borgur-
um stæði ógn af hryðjuverka-
mönnum. Málin vandast hins veg-
ar fyrir ráðamennina þegar í ljós
kemur að hryðjuverkamennirnir
búa yfir kjarnorkuvopnum sem
þeir hóta að skjóta að Evrópu. ■