Fréttablaðið - 09.10.2003, Blaðsíða 38
Hrósið 38 9. október 2003 FIMMTUDAGUR
Háskólabíó fékk góðan gest umdaginn. Þar mætti á sýningu
Friðfinnur Sigurðsson, bóndi í
Fagranesi í Aðaldal í Þingeyjar-
sýslu, en hann hafði þá ekki farið
í kvikmyndahús í 33 ár:
„Ég fór stundum í bíó heima í
sveitinni en hef ekki farið í kvik-
myndahús í Reykjavík frá því að
Ríkissjónvarpið hóf útsendingar
fyrir norðan, 1970,“ segir Frið-
finnur sem sá Stormviðri eftir
Sólveigu Anspach. Hann skemmti
sér ágætlega:
„Kannski var efnisþráðurinn
ekki merkilegur en landslagið var
fallegt og ég hafði gaman af að sjá
það. Sérstaklega frá Vestmanna-
eyjum,“ segir Friðfinnur sem
sleppti því að fá sér popp og kók
eins og flestir. Segist ekki nota
svoleiðis nasl. Þá fannst honum
hléið fljótt að líða.
Friðfinnur á kúabú í Fagranesi
og er með 30 kýr. Ástæða þess að
hann fór loks í bíó nú eftir 33 ár
var að honum var boðið. Hann er
alls ekki viss um að hann fari aft-
ur: „Þetta er ósköp svipað og í
sjónvarpinu. Bara stærra,“ segir
hann. ■
Bíó
FRIÐFINNUR SIGURÐSSON
■ Bóndi í Fagranesi í Aðaldal fór í Há-
skólabíó um daginn. Hann hafði þá ekki
farið í bíó frá því Ríkissjónvarpið hóf út-
sendingar fyrir norðan.
...fær samgöngunefnd Reykjavík-
urborgar fyrir að lækka stöðu-
mælasektir um 37 prósent.
Í fyrsta sinn í bíó í 33 ár
Sonur Ladda
í 70 mínútum
SJÓNVARP Þórhallur Þórhallsson hef-
ur verið ráðinn til að leysa af í sjón-
varpsþættinum 70
mínútur á Popp
Tíví á meðan um-
sjónarmennirnir
fara í upptökur á
Svínasúpunni sem
Stöð 2 er að láta
gera. Þórhallur er
sonur Ladda sem
um árabil hefur
verið einn vinsæl-
asti skemmtikraftur landsins:
„Laddi yngri er fyndnari en
Laddi eldri ef eitthvað er,“ segir
Sveppi í 70 mínútum sem bindur
miklar vonir við Þórhall en auk þess
hafa tveir aðrir verið ráðnir til að
leysa af í þær fjórar vikur sem upp-
tökur á Svínasúpunni standa yfir:
„Auk Ladda yngri eru það Skúli Örn
flugkennari og Þröstur sem vann í
félagsmiðstöð. Allt þrælfyndnir ná-
ungar,“ segir Sveppi. ■
Kringlunni
skór
X18 dagar í kringlunni
10% afsláttur af öllum X18 skóm um helgina
6.290.- 6.290.-4.490.- 4.990.-
st.36-46st.36-41 st.36-41 st.36-41
Við erum opnir fyrir öllum hug-myndum sem blásið geta lífi í
miðbæinn,“ segir Björgólfur Guð-
mundsson, stjórnarformaður
Landsbankans og hæstráðandi í
Eimskipafélaginu, um hugmyndir
þess efnis að Kvennaskólinn fái
inni í gamla Eimskipafélagshúsinu
við Pósthússtræti. Kvennaskólinn
er sem kunnugt er í húsnæðisvand-
ræðum og dreifir starfsemi sinni
þegar víða um miðbæinn. Eim-
skipafélagshúsið myndi fullnægja
öllum þörfum skólans og staðsetn-
ingin er ákjósanleg.
Vitað er að fyrri stjórnendur
Eimskipafélagsins hugðust flytja
höfuðstöðvar fyrirtækisins inn í
Sundahöfn en af því varð ekki áður
en nýir menn tóku
þar við stjórn-
taumum. Ljóst er
að Björgólfur
Guðmundsson er
hrifinn af hug-
myndinni um
Kvennaskóla í
Eimskipafélags-
húsinu enda
myndi það koma
heim og saman við óskir hans um
aukið líf í miðbænum. Er hann þeg-
ar farinn að skoða hugmyndir um
að breyta hluta af Landsbankahús-
inu í Hafnarstræti í íbúðir sem
myndu mæta verulegri eftirspurn
sem í gangi er. Eða eins og einn í
nánasta samstarfshópi hans orðaði
það: „Menn fúlsa ekki við því þegar
Kvennaskólinn býður upp í dans.“
Ingibjörgu Guðmundsdóttur,
skólameistara í Kvennaskólanum,
líst vel á: „Þetta væri frábært. Ég
er til í allt,“ segir hún en bætir við
að gamall draumur hennar um
framtíðarhúsnæði Kvennaskólans
sé í Hljómskálagarðinum: „Ég hef
alltaf átt mér draum um fjölnota
skólahús á horni Hringbrautar og
Sóleyjargötu þegar búið verður að
flytja Hringbrautina. Þar værum
við í nábýli við fyrirhugað þekking-
arþorp í Vatnsmýrinni og rétt hjá
Háskólanum.“ ■
LADDI YNGRI
Fetar í fótspor
föður síns.
FRIÐFINNUR SIGURÐSSON
Mest gaman af landslaginu í Stormviðri.
KVENNASKÓLINN
Skólahald dreift vítt og breitt um
miðbæinn.
Hugmynd
BJÖRGÓLFUR GUÐMUNDSSON
■ tekur vel í hugmyndir sem upp hafa
komið um að Kvennaskólinn fái inni í
Eimskipafélagshúsinu við Pósthússtræti.
Kvennaskólinn
í Eimskipafélagshúsið
EIMSKIPAFÉLAGSHÚSIÐ
Myndi fullnægja þörfum Kvennaskólans
til framtíðar.
BJÖRGÓLFUR
GUÐMUNDSSON
Vill líf í miðbæinn.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
LD
A
LÓ
A