Fréttablaðið - 09.10.2003, Side 8

Fréttablaðið - 09.10.2003, Side 8
8 9. október 2003 FIMMTUDAGUR Hjálp! „Vil ég biðja forseta um að þagga niður í hinum ákafa þingmanni sem grípur hér fram í fyrir mér.“ Hjálmar Árnason, undir skömmum Ástu Ragn- heiðar Jóhannesdóttur. Alþingi 8. september. Fá ekki að stela glæpnum „Við vinnum að þessu, en það verður ekki í anda þessa frum- varps Samfylkingarinnar.“ Guðmundur Halldórsson, spurður hvort hann styddi frumvarp um lækkun matarskatts. DV 8. september. Fleiri loforð... Það er allt svikið. Svei mér þá. Magnús Þór Hafsteinsson um kosningaloforð stjórnarflokkanna. Alþingi 8. september. Orðrétt Hækkanir í Kauphöllinni: Pharmaco hækkaði langmest VIÐSKIPTI Pharmaco hækkaði mest allra félaga í úrvalsvísitölu Kaup- hallar Íslands fyrstu níu mánuði ársins. Félagið hækkaði um 93% á tímabilinu. Það er ríflega tvöfalt meira en Kaupþing Búnaðarbanki og Landsbankinn sem koma næst. Ríkisbankarnir fyrrverandi hækk- uðu um 43% hvor um sig fyrstu níu mánuði ársins. Næst á eftir koma félög sem voru í miðju breytinga á eignarhaldi síðasta mánuð tímabils- ins. Þetta eru Sjóvá-Almennar og Fjárfestingarfélagið Straumur sem hækkuðu um 40%. Úrvalsvísitalan hækkaði um 34% fyrstu níu mánuði ársins. Fram kemur í mánaðarriti Greiningar Íslandsbanka að velta í Kauphöllinni hafi verið 55% meiri fyrstu níu mánuði ársins en fyrir sama tímabil í fyrra. Íslandsbanki segir hæpið að draga þá ályktun af því að markaðurinn sé orðinn virk- ari. Stór hluti þessarar aukningar skýrist af afskráningu fyrirtækja og þeim miklu breytingum á eignar- haldi sem urðu í september. ■ Unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu Hæstiréttur ógilti nauðsamninga Móa hf. Stjórnarformaður Hamars ehf. segir að með því að stöðva samninginn hafi verið staðinn vörður um heiðarlega viðskiptahætti. VIÐSKIPTI Kristinn Gylfi Jónsson, stjórnarformaður fuglabúsins Móa hf., segir að unnið sé að fjár- hagslegri endurskipulagningu fé- lagsins með það að markmiði að halda starfsemi þess áfram. H æ s t i r é t t u r hafnaði fyrr í vikunni nauða- samningum sem lagðir voru fyrir kröfuhafa í sum- ar. Tveir kröfu- hafanna, Reykjagarður hf. og Hamar ehf., vísuðu staðfestingu héraðsdóms Reykjavíkur á frum- varpi til nauðasamnings til Hæstaréttar og fengu þar ógild- ingu á samningnum. Kári Páls- son, stjórnarformaður Hamars ehf., er ánægður með úrskurð Hæstaréttar. Hann segir eðli nauðasamninga vera að hags- muna allra aðila sé gætt. Svo hafi ekki verið í þessu tilviki. Hann segir að því hafi ekki annað kom- ið til greina af hálfu forsvars- manna Hamars en að láta reyna á gildi samningsins fyrir dómstól- um. „Við tókum þá ákvörðun að við myndum aldrei samþykkja neina gjöf til þeirra vegna þess að þeir voru næstum búnir að ganga af okkur dauðum. Það eru alveg hreinar línur að við sam- þykkjum ekki að aðilar geti kom- ist upp með að ganga svona fram gegn okkur og gegn öðrum aðil- um,“ segir Kári. Hann segir að fjölmargir hafi haft samband við sig í kjölfar dóms Hæstaréttar og lýst ánægju með að forsvarsmenn Hamars hafi látið reyna á nauða- samninginn fyrir dómstólum. „Það er fjöldi fólks búinn að hringja í Hamar í dag, menn úr viðskiptalífinu, til að lýsa ánægju með það að við skyldum standa upp á móti þessari þróun í við- skiptalífinu,“ segir Kári en hann hefur sakað forsvarsmenn Móa um ósiðlega viðskiptahætti. Kristinn Gylfi Jónsson segir miður að nauðasamningurinn hafi verið ógiltur en segir að ýmsar leiðir séu nú í skoðun til þess að halda rekstri Móa hf. áfram. „Við bara skoðum hvaða möguleikar eru aðrir. Við höfum unnið af heilindum og samkvæmt lögum að fjárhagslegri endur- skipulagningu Móa hf. og við ætl- um að berjast til þrautar fyrir framtíð félagsins,“ segir hann. thkjart@frettabladid.is Ódagsett uppsagnarbréf: Allar reglur brotnar ATVINNUMÁL „Með þessu er verið að brjóta allar reglur á viðkomandi starfsmanni,“ sagði Ingvar Sverris- son, lögfræðingur ASÍ, um þá kröfu að skrifað sé undir ódagsett upp- sagnarbréf um leið og skrifað er undir ráðningarsamning. Það virð- ist raunin með marga af þeim Port- úgölum sem starfa hjá Impregilo. „Þessar starfsmannaleigur eru al- gengar víða í Evrópu og það er ekki venjan að skrifað sé undir uppsagn- arbréf á sama tíma og viðkomandi er ráðinn. Uppsagnarbréfið er svo dregið úr pússi um leið og einhver vandræði verða og menn látnir fjúka á sinn eigin kostnað.“ ■ EFTIRLIT Ísraelskur hermaður skoðar persónuskilríki palestínskra kvenna við eftirlitsstöð í útjaðri borgarinnar Hebron. Hermönnum fjölgað: Óttast sjálfs- morðsárásir ,ÍSRAEL Ísraelsk stjórnvöld áforma að senda þúsundir hermanna til Vesturbakkans og Gaza-strandar- innar vegna ábendinga sem borist hafa um að herskáir Palestínu- menn séu að skipuleggja fleiri sjálfsmorðsárásir. Shaul Mofaz, varnarmálaráð- herra Ísrael, hefur gefið hernum heimild til að kalla út 1.600 manna varalið og fyrirskipað hert eftirlit við landamærin á Vesturbakkan- um og Gaza, að sögn breska ríkis- útvarpsins, BBC. Hann hefur ein- nig gefið út tilskipun um að ferða- frelsi Palestínumanna skuli tak- markað enn frekar. ■ KÁRAHNJÚKAR „Miðað við hversu stórt þetta verkefni er og hversu langt við erum frá byggð, þá er mesta furða hvað allt gengur hér vel,“ sagði Enzo Rinaldi, yfirmað- ur eins mötuneytis Impregilo við Kárahnjúka. Hann segir að starfs- menn á svæðinu taki að meðaltali 45 mínútna matarhlé. „Ég held að öll þessi umræða sem skapast hefur í fjölmiðlum vegna Kárahnjúka sé tilkomin vegna þess að Íslendingar eru alls ekki vanir því að starfa að svona risaverkefni eins og er verið að vinna hér. Hér eru fleiri hundruð manns í mat á hverjum degi og auðvitað þarf að skipuleggja vel hvernig taka skal á móti slíkum hópum svo allt gangi vel.“ Enzo segir að í öllum mötu- neytum Impregilo sé sérþjálfað starfsfólk sem hefur starfað við þessar aðstæður áður. „Fyrir okk- ur sem höfum starfað að stórverk- efnum víða um heim er ekkert sem kemur á óvart hér. En það er ekkert skrýtið að Íslendingum bregði aðeins við. Við erum að starfa langt frá byggð, langt uppi í fjöllum og auðvitað kemur alltaf eitthvað upp á við slíkar aðstæð- ur. Annað væri óeðlilegt. Þetta er ekki fimm stjörnu hótel.“ ■ AÐALBÚÐIR IMPREGILO Þar eru tvö mötuneyti og á hverjum degi þarf að bera á borð morgunmat, hádegismat og kvöldmat fyrir fleiri hundruð manns. HÆKKANIR OG AUKIN VELTA Kauphöll Íslands getur vel við unað. Úr- valsvísitalan hækkaði um 34% fyrstu níu mánuði ársins og veltuaukning með hluta- bréf nam 55%. HÆKKANIR FYRIRTÆKJA Í ÚR- VALSVÍSITÖLU KAUPHALLAR 1. Pharmaco 93% 2. Kaupþing Búnaðarbanki 43% 3. Landsbankinn 43% 4. Sjóvá-Almennar 40% 5. Fjárfestingarfélagið Straumur 39% „Þeir voru næstum búnir að ganga af okkur dauð- um. Yfirmaður eins mötuneytis Impregilo: Ekki skrýtið að Íslendingum bregði FUGLABÚ LEITAR ÚRRÆÐA Forsvarsmenn Móa hf. vinna nú að fjárhagslegri endurskipulagningu.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.