Fréttablaðið - 09.10.2003, Qupperneq 14
14 9. október 2003 FIMMTUDAGUR
■ Reykjavík
SLÖKKVISTARF Í HÁLOFTUM
Yfirvöld í Aþenu í Grikklandi, þar með talið
slökkvilið borgarinnar, búa sig af kappi
undir Ólympíuleikana á næsta ári. Endur-
nýja þarf tæki og hefur slökkviliðið fengið
735 ný tæki, þeirra á meðal tvo körfubíla
sem ná tæpa 90 metra upp í loft.
KVIKMYNDAGERÐ Sveinbjörn I.
Baldvinsson, annar tveggja ráð-
gjafa hjá Kvikmyndamiðstöð Ís-
lands, telur styrki til eftirvinnslu
kvikmynda vera varasama.
„Eftirvinnslustyrkir eru í mín-
um huga afar varasamir yfir höf-
uð, því hætt er við að þeir verki
sem nokkurs konar „tapstyrkir“
og veiti kvikmyndagerðarmönn-
um sem endilega vilja taka veru-
lega fjárhagslega áhættu falska
von um björgun eftir á,“ segir í
umsögn Sveinbjarnar til Kvik-
myndamiðstöðvarinnar.
Umsögn Sveinbjarnar var send
Einari Þór Gunnlaugssyni hjá
Passport kvikmyndum eftir að
Einar Þór hafði fengið mennta-
málaráðuneytið í lið með sér til að
fá skýringu á því hvers vegna
Kvikmyndamiðstöðin hafnaði um-
sókn um eftirvinnslustyrk fyrir
myndina Þriðja nafnið.
„Það sem ber til tíðinda fyrir
alla íslenska kvikmyndagerð er að
mælt er gegn því - sem um er getið
í nýrri reglugerð frá mars síðast-
liðnum - að styrkir til eftirvinnslu
séu yfirleitt veittir til íslenskra
kvikmynda. Ekki er einu orði
minnst á umsókn fyrirtækisins og
mælt með að farið verði á svig við
nýja reglugerð,“ segir Einar. ■
DEILUR Friðrik Á. Hermannsson,
lögmaður Vélstjórafélags Íslands
, sakar Sturlu Böðvarsson sam-
gönguráðherra um valdníðslu í
grein á heimasíðu félagsins.
Hann segir að svo virðist sem
ráðherrann hafi í hótunum við alla
vélstjóramenntaða menn á Íslandi
þegar hann gefi í skyn að verði
Helga Laxdal for-
manni Vélstjórafé-
lags Íslands ekki
vikið úr starfi, hafi
íslenskir vélstjórar
verra af. Þannig
túlkar Friðrik pis-
til sem ráðherrann
skrifaði á heima-
síðu sína þann 19. september þar
sem hann sagði Helga varla trú-
verðugan talsmann vélstjóra.
Þar sagði Sturla um Helga: „Öll
hans viðbrögð og allar hans um-
sagnir um málefni vélstjóra og
siglingamál verða skoðuð í því
ljósi að skortur á málefnalegri
umræðu og
v a n d a ð r i
vinnubrögðum
gera hann vart
að trúverðug-
um talsmanni.
Á það verður
að reyna á
næstunni.“
F r i ð r i k
veltir fyrir sér
hvort Sturla
hafi með yfir-
lýsingum sín-
um gert sig
vanhæfan í
málum sem
varða vél-
stjóra með því segja að mál þeirra
verði skoðuð í sérstöku ljósi. Frið-
rik segir: „Mögulega þarf ráð-
herrann að víkja úr stóli sínum í
hvert sinn er málefni vélstjóra
verða til umfjöllunar í ráðuneyt-
inu enda munu allar hans framtíð-
arákvarðanir í málum er lúta að
vélstjórum lit-
aðar af þeirri
hugsun að ráð-
herrann hafi
eitt sinn hótað
þvi að misnota
vald sitt er
málefni vél-
stjóra væru til
umfjö l lunar
en slíkt hátt-
erni ber heitið
valdníðsla í
f r æ ð i r i t u m
um stjórn-
sýslurétt.“
D e i l u r
Helga og
Sturlu eru til komnar vegna reglu-
gerðar sem sett var í sumar og
kveður á um að hægt sé að skrá
niður afl véla í skipum.
Sturla gagnrýndi Helga harka-
lega vegna framgöngu hans í sam-
bandi við reglugerðina.
„Ég skildi gagnrýni Helga Lax-
dal mæta vel á meðan hún var á
málefnalegum forsendum,“ sagði
Sturla en telur að gagnrýnin sé
ekki lengur málefnaleg og skilur
ekki andstöðu Helga. Ólíklegt sé
að öryggismál sjómanna valdi
Helga áhyggjum þar sem reglu-
gerðin breyti engu um þau og ekki
geti andstaðan verið vegna þess
að Siglingastofnun gangi erinda
útvegsmanna. „...ef eitthvað er
hefur Siglingastofnun verið gagn-
rýnd í gegnum tíðina fyrir að
standa fast á sinni afstöðu gagn-
vart útgerðinni í fleiri málum en
færri, þannig að það getur ekki
verið ástæðan. Getur verið að öll
lætin séu vegna þess að formaður-
inn telur sig þurfa að styrkja
stöðu sína innan Vélstjórafélags-
ins um þessar mundir?“ Helgi
sagði það af og frá þar sem hann
væri einn í formannskjöri til
næstu fjögurra ára og ætlaði svo
að hætta.
kgb@frettabladid.is
■
Ég skildi gagn-
rýni Helga Lax-
dal mæta vel á
meðan hún var
á málefnaleg-
um forsendum.
WASHINGTON, AP Lögfræðingar
Hvíta hússins munu taka sér tvær
vikur í að fara yfir svör tvö þús-
und starfsmanna, sem spurðir
voru út í meintan leka sem olli því
að hulunni var svipt af Valerie
Plame, njósnara CIA, í bandarísk-
um fjölmiðlum.
Joseph C. Wilson, fyrrum
sendiherra og eiginmaður Plame,
segir að Hvíta húsið standi á bak
við málið. Háttsettir menn innan
Hvíta hússins hafi verið ósáttir
við það þegar hann hafi upplýst að
ekkert væri til í því að Írak hefði
reynt að kaupa úraníum í Afríku,
eins og Georg W. Bush banda-
ríkjaforseti hefði sagt.
Scott McClellan, talsmaður
Hvíta hússins, segir að þegar búið
verði að fara yfir svörin verði þau
send til dómsmálaráðuneytisins,
sem fer með rannsókn málsins.
Þrír embættismenn hafa verið
sakaðir um að hafa lekið nafni
Plame til fjölmiðla, þeir Karl
Rove, pólitískur ráðgjafi forset-
ans, I. Lewis Libby, starfsmanna-
stjóri varaforsetans og Elliott
Abrams, hjá þjóðaröryggisráðinu.
McClellan segir þá á engan hátt
viðriðna málið. ■
Uppreisnarmenn:
Myrtu tvo
borgarstjóra
KÓLUMBÍA, AP Tveir borgarstjórar í
Cauca-fylki í Kólumbíu voru myrtir
af uppreisnarmönnum sem höfðu
boðað þá á fund sinn.
Fjórir borgarstjórar voru kallað-
ir í leynilegar bækistöðvar FARC,
byltingarsveita Kólumbíu, til að út-
skýra tengsl sín við herskáa hægri-
menn. Að sögn vitna var einn mann-
anna myrtur þegar hann reyndi að
flýja af vettvangi. Hinir þrír
komust undan í bíl en einn þeirra
fannst látinn skömmu síðar.
Yfir 35.000 manns hafa fallið í
átökum skæruliða og stjórnarher-
manna í Kólumbíu á undanförnum
tíu árum og á síðustu þremur árum
hafa að minnsta kosti 30 borgar-
stjórar og 60 bæjarfulltrúar verið
myrtir. ■
Kambódía:
Unglingur
nauðgaði
kornabarni
KAMBÓDÍA, AP Bin Vannak, átján
ára kambódískur unglingur, var
dæmdur í 10 ára fangelsi fyrir að
nauðga kornabarni. Vannak viður-
kenndi að hafa ráðist á 14 mánaða
gamalt stúlkubarn á heimili þess
og svívirt það. Stúlkan var
stórslösuð eftir drenginn. For-
eldrar stúlkunnar höfðu skilið
hana eftir eina í umsjá drengsins.
Auk tíu ára fangavistar var
Vannak dæmdur til að greiða 250
dollara sekt eða sem nemur 19.000
krónum. ■
Rannsókn á meintum leka á nafni njósnara:
Tvö þúsund
krafðir um svör
JOSEPH C. WILSON
Fyrrum sendiherra og eiginmaður Valerie Plame, segir að starfsmaður Hvíta hússins hafi
svipt hulunni af Plame.
EINAR ÞÓR GUNNLAUGSSON
Einar Þór Gunnlaugsson kvikmyndagerðar-
maður segir stefnu Kvikmyndamiðstöðvar
Íslands mótast mikið af „þrýstingi sérhags-
munaaðila sem hafi verið „áskrifendur“ að
styrkjum Kvikmyndasjóðs Íslands og kunni
að „fara á hausinn“ ef reglulegar styrkveit-
ingar falla niður.“
Ráðgjafi hjá Kvikmyndamiðstöð Íslands:
Styrkir til eftirvinnslu
eru varasöm falsvon
Sakar samgönguráð-
herra um valdníðslu
Lögfræðingur Vélstjórafélagsins blandar sér í deilu Helga Laxdal og Sturlu Böðvarssonar.
Segir Sturlu hafa í hótunum við alla vélstjóra á Íslandi. Segir Sturlu verða vanhæfan í málum
sem varða vélstjóra.
HELGI LAXDAL
Lögmaður Vélstjórafé-
lagsins tekur undir
gagnrýni hans á sam-
gönguráðherra.
STURLA
BÖÐVARSSON
Vélstjórar eru ósáttir
við störf samgöngu-
ráðherrans.
TENNISHÖLL Í FOSSVOGI Einka-
hlutafélagið Tennisvinir hafa sótt
um að fá að reisa tennishús við
núverandi útitennisvelli Tennis-
klúbbs Víkings í Fossvogsdal.
GERVIGRASVÖLLUM FJÖLGAR
Fylkir í Árbæ hefur sótt um leyfi
til að gera gervigrasvöll og
tækni- og áhaldabyggingu syðst á
lóð sinn. Umhverfis völlinn á að
vera fimm metra há girðing og
sex átján metra ljósamöstur.
Fram og KR ætla einnig að bygg-
ja upp gervigrasvelli.
Sjálfstæðismenn:
Hús víki af
skólalóð
SKIPULAG Sjálfstæðismenn í skipu-
lags- og byggingarnefnd vilja að
gamalt hús á lóð Vesturbæjar-
skóla verði rifið.
Húsið stendur á horni Vestur-
vallagötu og Sólvallagötu. Hluti
þess er í dag nýttur undir dagvist
fyrir börn eftir að kennslu lýkur.
Sjálfstæðismenn vilja húsið
burt svo hægt sé að nýta lóðina
sem útivistarsvæði fyrir skólann
og hverfið: „Full þörf er á því að
stækka skólalóðina og bæta að-
stöðu nemenda til útivistar,“ bók-
uðu þeir á síðasta fundi skipulags-
nefndar sem frestaði afgreiðslu
málsins. ■
GAMLA HÚSIÐ
Húsið sem lagt er til að hverfi af skólalóð.