Fréttablaðið - 09.10.2003, Side 16
16 9. október 2003 FIMMTUDAGUR
GULLMOLI
Apynjan í dýragarði einum í Wuppertal
getur með sanni kallað afkvæmi sitt gull-
mola. Litur ungans er allsérstæður, gullin,
en foreldrarnir báðir gráir að lit.
Tilhlökkun í Smáíbúðahverfinu:
Ný bygging reist
við Breiðagerðisskóla
SKIPULAGSMÁL Taka á nýja við-
byggingu við Breiðagerðisskóla í
Smáíbúðahverfinu í notkun haust-
ið 2005.
Í viðbyggingunni, sem verður
tvær hæðir og 1831 fermeter að
flatarmáli, verða kennslustofur
fyrir sérgreinar, almennar
kennslustofur og tómstundarými.
Til að mæta húsnæðisþörfinni í
dag eru nokkrar færanlegar
kennslustofur í skúrum á skóla-
lóðinni.
„Það er virkilegt tilhlökkunar-
efni að fá þessa nýju byggingu,“
segir Ingibjörg Sigurgeirsdóttir
aðstoðarskólastjóri, sem gegnir
starfi skólastjóra í tímabundinni
fjarveru hans.
Nemendur í Breiðagerðisskóla
er nú tæplega 370 talsins. Eins og
aðrir grunnskólar var skólinn
áður tvísetinn en er nú einsetinn
eins og lög gera ráð fyrir. Það út-
heimtir meira pláss. Þess má geta
að þegar nemendafjöldinn í
Breiðagerðisskóla var mestur
fyrir um fjórum árartugum var
skólinn þrísetinn. Þá sóttu um
1400 börn nám í skólanum. ■
LOS ANGELES, AP Kvikmyndaleikar-
inn og líkamsræktarfrömuður-
inn Arnold Schwarzenegger bar
sigur úr býtum í ríkisstjóra-
kosningunum í Kaliforníu.
Kosingarnar voru tvískiptar.
Í fyrsta lagi hvort krefjast ætti
afsagnar Grays Davis ríkis-
stjóra og í öðru lagi hver hinna
frambjóðendanna 131 ætti að
taka við af honum.
Þetta er í fyrsta sinn í sögu
Kaliforníu sem umdeildu lagaá-
kvæði um endurkosningar er
beitt og aðeins einu sinni áður
hefur því verið beitt í Banda-
ríkjunum. Það var árið 1921
þegar Lynn Frazer ríkisstjóri
Norður Dakóta var settur af.
Gray Davis, fráfarandi ríkis-
stjóri, var felldur með nokkuð
afgerandi meirihluta. 54,3%
sögðu já en 45,7% voru á móti
því að hann þyrfti að segja af
sér embætti.
131 frambjóðandi sóttist eftir
embættinu, leikir og lærðir.
Schwarzenegger er sennilega
þeirra þekktastur og fengu rík-
isstjórakosningarnar ótrúlega
athygli um allan heim vegna
framboðs hans.
Kjörsókn var með eindæmum
góð. Um 65% skráðra kjósenda
greiddu atkvæði en það er
mesta kosningaþátttaka í rúma
tvo áratugi og ríflega 15 pró-
sentustigum meira en í ríkis-
stjórakosningunum í fyrra.
Arnold Schwarzenegger fékk
47,9% atkvæða, demókratinn
Cruz Bustamente 32,3% at-
kvæða, repúblikaninn Tom
McClintock fékk 13,2% atkvæða
og grænfriðungurinn Peter
Camejo hlaut 2,8%. Aðrir fengu
samtals 3,8% atkvæða.
„Ég mun ekki bregðast ykkur,
ég mun ekki valda ykkur von-
brigðum,“ sagði
Schwarzenegger þegar hann
fagnaði sigri í nótt. ÑHann sagði
Kalífornía hafa gefið sér allt, og
bestu gjöfina hefði hann fengið
frá kjósendum Kaliforníu.
„Ég veit að saman getum við
endurreist Kaliforníu, mikil-
fenglegasta ríkið í stórkostlegu
landi,“ sagði Schwarzenegger.
Gray Davis viðurkenndi ósig-
ur sinn í nótt og vitist nokkuð
brugðið.
„Í kvöld ákváðu kjósendur að
tími væri kominn til að annar
gegndi embættinu og ég sætti
mig við þá ákvörðun,“ sagði
Davis.
Ég hvet á íbúa Kaliforníu að
snúa nú bökum saman í þágu
Kaliforníu,“ sagði Davis og hét
því að tryggja að valdaskiptin
færu vel fram.
Schwarzenegger tekur við
embætti ríkisstjóra þegar úrslit
kosninganna hafa verið staðfest
en þó ekki síðar en 16. nóvem-
ber. Hann mun síðan sitja út
kjörtímabil Davis, eða næstu
þrjú ár. Þá er honum heimilt að
bjóða sig fram á ný.
Cruz M. Bustamante verður
áfram vararíkisstjóri.
A n d s t æ ð i n g a r
Schwarzeneggers bíða nú glott-
andi á hliðarlínunni, vitandi að
það verður ekki auðvelt fyrir
hann að stjórna Kalíforníu. Rík-
ið á í gífurlegum fjárhagsörðug-
leikum. Fjárlagahalli þessa árs
nemur 8 milljörðum dollara eða
610 milljörðum króna, atvinnu-
leysi er viðvarandi og skóla-
kerfið í rúst. Schwarzenegger
verður lögum samkvæmt að leg-
gja fram fjárhagsáætlun fyrir
Kaliforníu fyrir 10. janúar næst-
komandi. Hann hefur því naum-
an tíma til að efna loforð sín.
Sæluríkið Kalífornía er hið
fjölmennasta í Bandaríkjunum
og aðeins fimm lönd í heiminum
hafa stærra efnahagskerfi.
Demókratar hafa meirihluta á
ríkisþinginu en Schwarzenegger
er repúblikani.
Ungir fíkniefnaneytendur:
Neysla
kannabis
eykst mikið
FÍKNIEFNI Á Sjúkrahúsinu Vogi eru
nú 75% einstaklinga 24 ára og
yngri, stórneytendur kanabisefna.
Frá 1993-2003 hefur þetta hlutfall
vaxið úr u.þ.b. 25% í 75 %. Yfir
40% þeirra sem eru 24 ára og
yngri á Vogi, eru amfetamínfíklar
og 10% sprauta sig reglulega.
Fjöldi þessara einstaklinga er
slíkur að augljóst er að vímuefna-
neysla unglinga og ungmenna á
Íslandi er aðal heilsufarsvandi
þessa aldurshóps, segir á heima-
síðu SÁÁ. ■
HÚSLEIT
Lögreglan í Bilbao handtók nokkra meinta
meðlimi ETA og gerði húsleit á heimilum
þeirra.
Liðsmenn ETA
handteknir:
Ráðist á
innviði
samtakanna
MADRÍD, AP Spænska lögreglan
handtók 28 meinta meðlimi ETA,
aðskilnaðarhreyfingar Baska í
Navarre-héraði og Baskalandi. Á
sama tíma voru fimm liðsmenn
samtakanna teknir höndum í suð-
vesturhluta Frakklands.
Handtökurnar eru liður í að-
gerð sem miðar að því að brjóta
niður innviði samtakanna. Flestir
mannanna eru á þrítugsaldri. „Í
mörgum tilfellum er um að ræða
menn sem nýlega hafa gengið til
liðs við ETA svo margir þeirra eru
mjög ungir“ sagði talsmaður
spænska innanríkisráðuneytisins.
Fjöldahandtökur á þessu ári
hafi veikt starfsemi ETA veru-
lega, að sögn spænskra stjórn-
valda. ■
FRAMKVÆMDIR VIÐ
BREIÐAGERÐISSKÓLA
Taka á nýja viðbyggingu við Breiðagerðis-
skóla í notkun eftir tvö ár. Húsnæðismál
skólans eru í dag að hluta til leyst með
færanlegum kennslustofum á skólalóðinni.
Fréttaskýring
ÞRÖSTUR EMILSSON
■ skrifar um ríkisstjórakosningarnar
í Kaliforníu.
VARARÍKISSTJÓRINN
Cruz Bustamante var einn þeirra sem
sóttust eftir stólnum. Hann varð annar
en gegnir eftir sem áður embætti
vararíksistjóra.
SIGURINN Í HÖFN
Schwarzenegger og konu hans Maríu Shriver var ákaft fagnað þegar úrslit voru ljós í fyrrinótt. Schwarzenegger tekur við embætti innan fimm vikna eða fyrir 16. nóvember.
Hasarmyndahetjan
kom sá og sigraði
Arnold Schwarzenegger er ótvíræður sigurvegari ríkisstjórakosninganna í Kaliforníu.
Kosningaþátttaka var um eða yfir 65% og hefur ekki verið meiri í rúm 20 ár.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T