Fréttablaðið - 09.10.2003, Blaðsíða 24
Helgarslaufur
fyrir hópa, klúbba og félög af öllum stærðum.
Hafðu samband við
Bergþóru eða Kristjönu
í síma 570 30 75
hopadeild@flugfelag.is
ferðir o.fl.
Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um al l t sem viðkemur ferðalögum
Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: ferðir@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is. Þjónustuauglýsingar: Gula línan, sími 580 8090 – netfang: auglysingar@gulalinan.is.
Úrvalsfólk á ferðinni:
Frábær félagsskapur
Fimm til sex þúsund Íslending-ar eru félagar í klúbbnum Úr-
valsfólk hjá ferðaskrifstofunni
Úrval Útsýn. Að sögn Lilju Jóns-
dóttur, sem skipuleggur ferðir
klúbbsins, þarf einungis að upp-
fylla tvö skilyrði til að fá inn-
göngu. Fólk þarf að vera orðið
sextíu ára og hafa gleðina að leið-
arljósi. Slagorð klúbbsins er
„Ferðalög og frábær félagsskap-
ur“ enda er áhersla lögð á skipu-
lagða dagskrá þar sem fólk getur
stundað félagsstarf í góðum hópi.
„Helsti áfangastaður okkar á
veturna eru Kanaríeyjar en á
vorin og haustin förum við í ferð-
ir á alla okkar sólarlandastaði.
Við förum líka í sérferðir til
borga eins og Edinborgar og
Dyflinnar. Við sendum alltaf
farastjóra og skemmtanastjóra
sem setur upp dagskrána. Yfir-
leitt byrjar dagurinn á leikfimi
og svo er dansað, sungið, farið í
félagsvist, bingó, gönguferðir
eða hjólaferðir. Dagskráin er
aldrei fullsett fyrirfram því við
reynum líka að taka mið af ósk-
um hópsins.“
Enginn er þó bundinn af dag-
skránni. „Fólk er í sínu fríi. En
undantekningarlaust er allt fullt í
skipulögðu dagskrána. Fólk kann
líka vel að meta að hjúkrunar-
fræðingur fer með í lengri ferðir
þannig að ef eitthvað smálegt
kemur upp á þarf ekki að standa í
því að finna læknisþjónustu.
Skemmtanastjórarnir okkar eru
vel þekktir og laða fólk að. Þar
má nefna Sigvalda Þorgilsson
danskennara, Hjördísi Geirsdótt-
ur sjúkraliða, snyrtifræðing og
söngkonu, Sigríði Hannesdóttur
leikkonu og Ásdísi Árnadóttur
ferðafræðing.“
Lilja segir að alltaf bætist
jafnt og þétt í hópinn. „Við förum
til Kanaríeyja 28. október og á
fimmta hundrað manns fara í þá
ferð. Við förum svo aftur 30. nóv-
ember. Benidorm er nýr vetrará-
fangastaður hjá okkur og við
erum núna með stóran hóp þar.
22. október verður fjórtán daga
ferð þangað þar sem boðið er upp
á fjögurra stjörnu hótel með
hálfu fæði. Fyrir utan ferðirnar
höldum við stórdansleiki á Hótel
Sögu tvisvar á ári og þar er alltaf
fullt hús. Sjálf er ég ekki búin að
ná þessum aldri en mér finnst al-
veg frábært að vera með þessu
fólki. Krafturinn í því er mikill
og það sýnir hvað fólk er lengi
ungt í dag,“ segir Lilja. ■
■ Út í heim
Íslendingar sem verða á ferðinnií Kaupmannahöfn á morgun
geta kíkt á nýtt menningarhús Ís-
lands, Grænlands og Færeyja á
morgun. Húsið heitir Norður-
bryggja og er á sögulegum slóð-
um pakkhúsanna á Kristjánshöfn,
við Grønlands Handelsplads.
„Við ætlum að þjófstarta á
menningarnóttinni,“ segir Anna
María Bogadóttir, verkefnastjóri.
Húsið verður opnað formlega í lok
nóvember.
Nánari upplýsingar um menn-
ingarnótt í Kaupmannahöfn er
hægt að sjá á www.kulturnatt-
en.dk. ■
DAGSKRÁ NORÐURBRYGGJU Á
MENNINGARNÓTT 2003
Kl. 18.30 - kl. 00.00:
Töfrandi heimur norðursins endur-
skapaður með kraftmiklum náttúru-
myndum, seiðandi ljósadýrð og
framandi tónum.
Kl. 19.00 og 23.00:
Heillandi tónar sjá til þess að framliðnir
fari á stjá.
Kl. 20.00 og 21.30:
Gjörningur í glerbrúri. Tvær leikkonur
flytja magnað verk Williams Heinesens,
Syndafallið.
Kl. 19.15, 20.15, 21.15, 22.15:
Fróðleg og skemmtileg leiðsögn um
svæðið. Hver ferð tekur um hálftíma.
Kaupmannahöfn:
Íslenskt menningar-
hús þjófstartar
LILJA JÓNSDÓTTIR
Skipuleggur ferðir Úrvalsfólks
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
GENGIÐ YFIR HELLISHEIÐI
Ferðafélag Íslands gengur á sunnudag gömlu leiðina yfirHellisheiði frá Kolviðarhóli að Lyklafelli. Þjóðsagan segir
að maður að nafni Ólafur, bryti í Skálholti, hafi einu sinni
orðið fyrir reiði ráðskonunnar og hún stefnt honum burt af
staðnum. Ólafur á þá að hafa hlaupið suður og tekið með
sér alla lykla staðarins sem hann kastaði í fell það sem síð-
an er kallað Lyklafell. Áætlaður göngutími er um fjórar
klukkustundir. Verð kr. 1600/1800. Brottför kl. 10 frá BSÍ
með viðkomu í Mörkinni 6. ■
FÓLK SÆKIR Í FÉLAGSSKAPINN
En hagar sínu fríi að vild.
TVEIR FYRIR EINN TIL BRUSSEL
Úrval Útsýn býður örfá sæti í
helgarferð til Brussel 17. -
20.október á „Tveir fyrir einn“
verði. Gist er á Hótel Grand
Mercur Royal Crown og er verð
fyrir tvíbýli 28.900 kr. og einbýli
39.900. Innifalið er flug, flug-
vallaskattar, gisting með morgun-
verði og íslensk fararstjórn.
VIÐ LEIFSSTÖÐ
Upplýsingar
í síma 421 2800