Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.10.2003, Qupperneq 40

Fréttablaðið - 09.10.2003, Qupperneq 40
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Bakþankar ÞRÁINS BERTELSSONAR Frægt fólk í framboð Fimmtudagskvöld 9. október i l . Skeifunni • Akureyri • Egilsstöðum Jæja, þá er Arnaldur sonur Svarta-Eggerts orðinn ríkisstjóri í Kali- fornu og stýrir þar sjötta stærsta hagkerfi í veröldinni. Hann fetar í fótspor Rónalds ríka sem endaði í Hvíta húsinu og loks í Höfða að semja um heimsfriðinn við Mikka Gorbatsjoff sællar minningar. FRÆGÐARFÓLK á Íslandi á tví- mælalaust að fara að fögru fordæmi Arnalds og axla þjóðfélagslega ábyrgð í staðinn fyrir að intervjúa hvert annað skellihlæjandi í spjall- þáttum eða lýsa uppáhaldsmatnum sínum fyrir slúðurdálkahöfundum. Við höfum nóg af frægu fólki hérna til að manna mikilvægar stöður í samfélaginu, og það er ekki eftir neinu að bíða. BJÖRK er frægust allra Íslendinga og mundi henta vel í forsetaembætt- ið. Kristján Jóhannsson væri fínn til að taka við formennsku í Sjálfstæð- isflokknum og Bubbi Morthens færi létt með að taka við Samfylkingunni. Frjálslyndi flokkurinn ætti endilega að reyna að krækja í Jónínu Ben og Vinstrigrænir mundu slá sér upp ef þeir fengju Diddú til að taka við for- mennskunni. Linda Pé býr í útlönd- um hvort sem er og væri því upp- lögð sem utanríkisráðherra og for- maður Framsóknarflokksins. ÓMAR RAGNARSSON væri til- valinn formaður Landsvirkjunar. Björgólfur Guðmundsson gæti bætt á sig Seðlabankanum og þjóðhags- lega yrðu samlegðaráhrifin til mik- illar blessunar. Hannes Hólmsteinn gæti orðið þjóðskjalavörður og Þór- arinn V. Þórarinsson skógræktar- stjóri. Frikki Sóf færi í Landgræðsl- una. Spaugstofan tæki við Ríkisút- varpinu og Smekkleysa mundi poppa upp Lögbirtingablaðið og Alþingis- tíðindi. Lalli Johns kæmi til greina sem fangelsismálastjóri og Vala Matt sem sáttasemjari ríkisins. Baugsfeðgar gætu orðið hæstarétt- ardómarar og Jón Sullenberger rík- isendurskoðandi. AUÐVITAÐ koma margir fleiri til greina í hin háu embætti, en þessi upptalning sýnir að við eigum nóg af frægu fólki til að hrista almennilega upp í samfélaginu. En stjórnmál eru alltof þýðingarmikil til þess að óhætt sé að leyfa stjórnmálamönnum að einoka þau. Hasta la vista, baby! eins og Arnaldur segir. ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.