Fréttablaðið - 17.10.2003, Blaðsíða 1
BAKÚ, AP Til óeirða kom á götum
Bakú, höfuðborgar Aserbaídsjan,
í gær eftir að niðurstöður forseta-
kosninganna í landinu voru kunn-
gjörðar. Öryggis- og samvinnu-
stofnun Evrópu, ÖSE, fordæmir
kosningarnar og segir að alþjóða-
reglur hafi verið þverbrotnar.
Átta buðu sig fram og er Ilham
Aliev, sonur fyrrum forseta lands-
ins, sagður hafa sigrað með yfir-
burðum. Hann hlaut nærri 80% at-
kvæða. Næstur á eftir Aliev kom
Isa Gambar með 12% atkvæða.
Stjórnarandstaðan neitar að
fallast á niðurstöðuna og segir úr-
slitin fals eitt. Þúsundir stjórnar-
andstæðinga þustu út á götur höf-
uðborgarinnar þegar úrslitin lágu
fyrir og brutu allt og brömluðu
sem fyrir þeim varð. Lögregla
barði með gúmmíkylfum á mót-
mælendum og beitti hundum gegn
þeim. Að minnsta kosti tveir lét-
ust í óeirðunum.
Þrír Íslendingar voru í hópi um
600 alþjóðlegra eftirlitsmanna
sem fylgdust með kosningunum á
vegum Öryggis- og samvinnu-
stofnunar Evrópu, ÖSE.
Stofnunin tekur undir gagnrýni
stjórnarandstæðinga og segir
margt athugavert við kosningarn-
ar.
„Reglur um lýðræðislegar
kosningar voru þverbrotnar,“
sagði Peter Eicher, yfirmaður
kosningaeftirlits ÖSE.
Hann bætti við að atkvæði
hefðu verið fölsuð og utanaðkom-
andi aðilar hefðu haft ólögmæt af-
skipti af atkvæðagreiðslunni og
talningu atvkæða. ■
● hk mætir stepan
Árni Stefánsson:
▲
SÍÐA 38
Þokkalegir
möguleikar
● frumsýning í kvöld
Helga Braga:
▲
SÍÐA 43
Hjálpartæki
ástalífsins
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 40
Leikhús 40
Myndlist 40
Íþróttir 36
Sjónvarp 44
FÖSTUDAGUR
UNDIR SMÁSJÁ
HERSINS John
Edwin Rehm III,
varnarliðsmaðurinn
sem hlaut fangelsis-
dóm í Héraðsdómi
Reykjavíkur fyrir hníf-
stungumálið í
Hafnarstræti fyrr á
þessu ári, er undir smásjá rannsóknarnefn-
dar bandaríska sjóhersins. Sjá síðu 2.
MESTUR KVÓTI TIL ÞINGEYRAR
Þingeyri fær mesta úthlutun byggðakvóta af
einstökum sveitarfélögum. Sandgerði fær
næst mest úthlutað. Sjá síðu 2.
ÚTVARPSSTJÓRI GAGNRÝNDUR
Ögmundur Jónasson alþingismaður segir
að verið sé að stýra Ríkisútvarpinu í hægri
farveg. Kristinn H. Gunnarsson segir
útvarpsstjóra hugsa um Sjálfstæðisflokkinn
en ekki þjóðina. Sjá síðu 4 og 8.
ÖRYGGISRÁÐIÐ SAMÞYKKIR
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti
einróma tillögu Bandaríkjanna um upp-
byggingu Íraks. Sameinuðu þjóðirnar fá
samkvæmt tillögunni víðtækara hlutverk í
því verkefni. Sjá síðu 6.
ljós í myrkri á grillinu • kjöt á netinu
▲
SÍÐA 22-23
matur o.fl.
Heldur upp á rjúpur
með rauðkáli
Sigmar B. Hauksson:
TVEIR HANDBOLTALEIKIR Tveir
leikir fara fram í Remax-deild karla í
handbolta í kvöld. Klukkan 19.15 mætast
Valur og Þór á Akureyri og klukkan 20
tekur Fram á móti Aftureldingu.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
VÍÐA ÞURRT AÐ KALLA Það verður
áfram milt. Sú gula gæti gægst fram. Fínn
dagur til að snúast fyrir helgina. Sjá síðu 6.
þitt
eintak
v iku legt t ímar i t um fó lk ið í l and inu
birta
17. OKTÓBER TIL 23. OKTÓBER 2003
ÚT B R E I DDAS TA T Í MAR I T L ANDS I NS – 96 .000 E I NT ÖK
NR . 32
Bubbi:Raunsæren ekkifeiminn
Sjónvarpsdagskrá
næstu7daga
Ævintýraleg
litagleði í París
Hættuleg
kynni í
Dansleikhúsi
Hvar er Lucy
í Dallas?
Flugmannsstarfið
skemmtilegast
Bubbi:
▲
fylgir Fréttablaðinu dag
Raunsær en
ekki væminn
birta
17. október 2003 – 254. tölublað – 3. árgangur
ÖSE fordæmir forsetakosningarnar í Aserbaídsjan:
Óeirðir á götum Bakú
Öryrkjalög brutu
gegn stjórnarskrá
DÓMSMÁL Lög sem Alþingi setti í
kjölfar öryrkjadómsins í janúar
2001 brutu gegn stjórnarskrár-
bundnum rétti öryrkja, samkvæmt
dómi Hæstaréttar í gær. Sjö dóm-
arar telja að afturvirkni laganna
hafi verið óheimil. Örorkulífeyris-
þegar hafi átt kröfu til óskertrar
tekjutryggingar eftir dóm Hæsta-
réttar í desember árið 2000. Kröfu-
réttindin njóta að mati Hæstaréttar
verndar eignarréttarákvæðis
stjórnarskrárinnar og mátti ekki
skerða með afturvirkri og íþyngj-
andi löggjöf.
Hæstiréttur fellst nú á úrskurð
Héraðsdóms um að kröfur öryrkja
vegna skerðingar á árunum 1994-
1996 væru fyrndar. Hins vegar
sneri Hæstiréttur héraðsdómi
hvað varðaði kröfur vegna áranna
1999 og 2000 og dæmdi öryrkjum í
vil.
Öryrkjabandalagið vildi kanna
hvort lögin sem sett voru í janúar
árið 2001 stæðust stjórnarskrá. Þau
voru sett eftir að Hæstiréttur hafði
dæmt í desember árið 2000 að
Tryggingastofnun hefði verið
óheimilt að skerða tekjutryggingu
öryrkja í hjúskap vegna tekna
maka þar sem með því væri brotið
á stjórnarskrárbundnum rétti fólks
til félagslegrar aðstoðar.
Dómurinn var mjög umtalaður
og setti ríkisstjórnin á fót nefnd
lögfræðinga til að ákvarða við-
brögð. Nefndin lagði til ný lög um
málið og urðu heiftarlegar umræð-
ur á Alþingi.
Niðurstaðan varð að öryrkjum
yrði greitt það sem vantaði upp á
fulla tekjutryggingu árin 1997 og
1998 en tekjutrygging árin 1999 og
2000 væri skert með nýjum hætti.
Það er sú skerðing sem Hæstirétt-
ur telur brjóta gegn eignarrétti í
stjórnarskrá.
Málið sem dæmt var í í gær
höfðaði Ingibjörg Gunnarsdóttir á
hendur Tryggingastofnun, sem var
dæmd til að greiða Ingibjörgu
507.380 krónur auk dráttarvaxta.
Fjölmargir búa við svipaðar að-
stæður og Ingibjörg en Trygginga-
stofnun og fjármálaráðuneytið
hefjast í dag handa við að fara yfir
hverjir eigi rétt á greiðslu. Varlega
áætlað gæti ríkið þurft að greiða á
bilinu 3-400 milljónir króna.
Hæstiréttur dæmdi að þótt
ákvæði laganna sem sett voru í jan-
úar 2001 um skerðingu tekjutrygg-
ingar vegna tekna maka séu bóta-
þegum hagfelldari en eldri ákvæði
feli þau engu að síður í sér lægri
bætur en þeir áttu rétt á sam-
kvæmt meginreglunni um óskertar
bætur og geti í því ljósi ekki verið
ívilnandi.
Davíð Oddsson forsætisráð-
herra gaf ekki kost á viðtali þar
sem hann þyrfti að lesa dóminn.
LÆRDÓMUR Í KIRKJUGARÐINUM Þessi greindarlegu börn úr 2. bekk í Vesturbæjarskóla voru önnum kafin við lærdóm í Suðurgötu-
kirkjugarði í gær þegar ljósmyndara bar að garði.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Hæstiréttur dæmdi að Alþingi hafi verið óheimilt að skerða örorkubætur aftur í tímann.
Fjöldi öryrkja á rétt á greiðslum frá Tryggingastofnun. Kröfur vegna áranna 1994-1996 fyrndar.
TILBÚNIR TIL ÁTAKA
Hermenn og lögregla lentu í átökum við
stjórnarandstæðinga sem segja kosninga-
úrslitin fals og neita að fallast á þau.
Nýtt kortatímabil
Kringlu
kast
Alla helgina!
Rætt um vígslu sam-
kynhneigðs biskups:
Leiðtogar
ósáttir
LONDON AP Leiðtogar biskupakirkj-
unnar hafa sett aukinn þrýsting á
biskupakirkjuna í New Hamp-
shire í Bandaríkjunum. Þar stend-
ur til að vígja samkynhneigðan
prest til biskups 2. nóvember.
„Ef vígsluathöfnin fer fram
verðum við að draga þá ályktun að
ákveðin hætta steðji að framtíð
kirkjunnar,“ segir í yfirlýsingu 37
leiðtoga biskupakirkjunnar.
Frank Griswold, leiðtogi
bandarísku biskupakirkjunnar,
segist ætla að vera í New Hamp-
shire 2. nóvember. Hann ýjaði þó
að því að málið væri ekki útrætt
þegar hann sagði: „ýmislegt getur
þó gerst þangað til“. ■
Opnum á morgun
Sony
bæklingur fylgir blaðinu
í dag.
Kynntu þér
opnunartilboðin.
Kringlunni
persónuleikapróf ● fréttir
Sjá nánar bls. 2
kgb@frettabladid.is
the@frettabladid.is