Fréttablaðið - 17.10.2003, Blaðsíða 2
2 17. október 2003 FÖSTUDAGUR
“Ef það er einn þá eru þeir
of margir.“
Útvarpsstjóri hefur áhyggjur af vinstri slagsíðu í
dagskrá Ríkisútvarpsins. Páll Magnússon er fulltrúi
Framsóknarflokksins í útvarpsráði.
Spurningdagsins
Páll, er allt fullt af kommúnistum í
Ríkisútvarpinu?
Grunar samsæri í
Hafnarstrætismáli
DÓMSMÁL Varnarliðsmanninum
John Edwin Rehm III, sem
dæmdur var fyrir tilraun til man-
ndráps í Hafnarstræti í sumar,
hefur verið tilkynnt af rannsók-
nardeild bandaríska sjóhersins
að hann hafi nú stöðu grunaðs
manns.
Hyggst rannsóknardeild hers-
ins rannsaka enn frekar þann
glæp sem Rehm
hlaut 18 mánaða
fangelsisdóm fyrir
í Héraðsdómi
Reykjavíkur fyrir
þremur vikum.
Til viðbótar er
Rehm sagður grun-
aður um samsæri, að hafa leynt
vopni, borið ljúgvitni, hindrað
réttvísina, gefið rangar upplýsin-
gar, logið eiðsvarinn og truflað
almannafriðinn.
Rehm var kynnt þessi staða sín
á þriðjudag. Hann hefur verið í
vörslu á svæði varnarliðsins síðan
dómur féll í máli hans.
Samkvæmt bandarísku stjórn-
arskránni er ekki heimilt að
sækja mann til saka tvisvar fyrir
sama glæpinn. Lögfróðir menn
sem til þekkja segja mögulegt að
þetta eigi ekki við þegar um
dómsniðurstöðu frá erlendu ríki
sé að ræða. Bandarísk lög og
venjur séu ákaflega teygjanleg.
Sérstaklega sé erfitt að meta
slíkt þegar um herrétt sé að
ræða. Margar sérstakar reglur
gildi við herrétt sem ekki séu í
gildi undir venjulegum kringum-
stæðum.
Að sama skapi er erfitt að meta
mögulegan dóm ef sjóherinn
ákveður að sækja Rehm til saka
og vinnur málið. Má þó búast við
að dómurinn gæti verið frá fimm
árum og upp í 30 ár.
Á hinn bóginn gæti verið að
sjóherinn sé að beita Rehm
þrýstingi vegna sterkra grun-
semda um að annar varnarliðs-
maður hafi verið viðriðinn árás-
ina í Hafnarstræti. Rehm væri að
hylma yfir með hinum meðseka,
sem þá væri sá maður sem fyrst
var hnepptur í gæsluvarðhald
vegna gruns um aðild að málinu.
Sá neitaði allri sök og var látinn
laus þegar Rehm gaf sig fram
daginn eftir voðaverkið.
Við réttarhöldin sagðist Rehm
hafa játað vegna þess að rangur
maður sæti í varðhaldi. Fram-
burður vitna og meinafræðings
benti þó eindregið til að árásar-
mennirnir hefðu verið tveir.
Samkvæmt upplýsingum frá
Friðþóri Eydal, upplýsingafull-
trúa varnarliðsins, eru engin
áform uppi um að ákæra Rehm á
þessari stundu.
Garðar Sverrisson, formaður Öryrkjabandalags Íslands:
Himinlifandi með dóminn
DÓMSMÁL „Eftir allt sem á undan
er gengið, fúkyrðaflaum forsæt-
isráðherra og múgæsingu þing-
meirihlutans, er ég auðvitað him-
inlifandi yfir þessum dómi. Í
fyrra skiptið voru stjórnvöld
dæmd með þremur atkvæðum
gegn tveimur. Nú eru hins vegar
allir sjö dómarar Hæstaréttar á
einu máli um að ríkisstjórnin hafi
brotið gegn sjálfri stjórnarskrá
lýðveldisins,“ sagði Garðar
Sverrisson, formaður Öryrkja-
bandalags Íslands.
Hann rifjaði upp gagnrýni
sem talsmenn öryrkja fengu frá
valdhöfum fyrir að halda því
fram að ríkisstjórnin væri að
taka fé ófrjálsri
hendi og brjóta gegn
stjórnarskránni.
„Hæstiréttur hef-
ur tekið af skarið
hvað þetta varðar.
Þrátt fyrir viðvaran-
ir af okkar hálfu, lög-
manna okkar og al-
þingismanna, brutu
stjórnvöld í tvígang
gegn stjórnarskrá.
Ríkisstjórnin fótum
tróð sjálfsögðustu
réttindi þeirra sem
afskiptastir eru í
samfélagi okkar,“
sagði Garðar.
Hann segist ekki
gera sér fyllilega grein
fyrir hvað dómurinn
muni kosta, enda sé
það algert aukaatriði.
„Þetta eru peningar
sem öryrkjarnir eiga
og til þess hafa bæði
þeir, ættingjar þeirra
og vinir greitt bæði
skatta og eyrnamerkt
tryggingagjald, gjald
sem ætlað er að standa
undir lífeyrisgreiðsl-
um almannatrygginga
og nemur nú um 20
milljörðum á ári
hverju.“ ■
Fjármálaráðherra:
Lögin rétt
frá setningu
þeirra
DÓMUR „Það má ráða af dómnum
að lögin séu rétt frá þeim tíma
sem þau voru sett,“ segir Geir H.
Haarde fjármálaráðherra.
„Hæstiréttur fellst á kröfu
stefnanda hvað varðar mismun
áranna 1999 og 2000 og við
verðum nú að fara yfir dóminn,“
segir hann. Geir segist ekki gera
sér grein fyrir því hvað dómurinn
komi til með að kosta ríkissjóð
mikið fé. Hann fagnar því að
Hæstiréttur hafi fallist á sjón-
armið ríkisins hvað varðar
fyrningu. Geir vildi ekki tjá sig
um hvort dómurinn þýddi að
ríkisstjórnin og Alþingi hefðu
brotið stjórnarskrá. ■
SJÁVARÚTVEGUR „Það er ómögulegt
að segja til um það,“ sagði Árni
Mathiesen sjávarútvegsráðherra
aðspurður um hvort úthlutun
byggðakvóta sem tilkynnt var um
í gær væri sú síðasta í röðinni.
Meðal þeirra hugmynda sem hafa
komið fram um upptöku línuíviln-
unar er sú að byggðakvótinn verði
lagður niður í núverandi mynd og
hann þess í stað nýttur í línuíviln-
un.
Þingeyri fær mesta úthlutun
byggðakvóta af einstökum sveit-
arfélögum. 119 tonn, um átta
prósent þeirra 1.500 tonna sem
var úthlutað í byggðakvóta, fara
til Þingeyrar. Sandgerði fær
næstmest úthlutað, tæpum 93
tonnum. Af þeim sveitarfélögum
sem fá kvóta úthlutað fá
Grímseyingar og Grenvíkingar
minnst, fjögur tonn hvorir um sig.
Það vekur athygli að Akureyri
fær úthlutað byggðakvóta, reynd-
ar ekki nema fimm og hálfu tonni.
Ástæðan er sú að einn af þátt-
unum sem ráða því hvernig
byggðakvóta er úthlutað er tekjur
íbúanna. Þær eru undir lands-
meðaltali á Akureyri. „Þetta
kemur svona út þegar búið er til
punktakerfi,“ segir sjávarútvegs-
ráðherra. „Auðvitað hefði maður
getað fiktað í því,“ segir hann en
ákveðið hafi verið að gera það
ekki. ■
ÁRNI MATHIESEN
Kannski síðasta úthlutun byggðakvóta,
kannski ekki.
1.500 tonna byggðakvóta úthlutað til 42 hafna:
Þingeyri og
Sandgerði fá mest
MESTA ÚTHLUTUN
Þingeyri 118,9 tonn
Sandgerði 92,6 tonn
Brjánslækur 76,0 tonn
Eskifjörður 70,5 tonn
Bolungarvík 66,4 tonn
MINNSTA ÚTHLUTUN
Grímsey 4,1 tonn
Grenivík 4,1 tonn
Akureyri 5,5 tonn
Bakkafjörður 9,7 tonn
Tálknafjörður 15,2 tonn
Varnarliðsmaðurinn sem hlaut fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur
fyrir hnífstungumálið í Hafnarstræti fyrr á þessu ári er undir smásjá
rannsóknarnefndar bandaríska sjóhersins.
DÓMSDAGUR
Rehm og verjendur hans við réttarhaldið
í Héraðsdómi Reykjavíkur.
■
Má þó búast
við að
dómurinn gæti
verið frá fimm
árum og upp í
30 ár.
albert@frettabladid.is
gar@frettabladid.is
Forstjóri TR:
Bíðum
fyrirmæla
DÓMSMÁL „Mér sýnist að þarna sé
Hæstiréttur að dæma að lög og
reglugerð sem sett voru standist
ekki stjórnarskrá,“ segir Karl
Steinar Guðnason, forstjóri
Tryggingastofnunar. „Við í Trygg-
ingastofnun erum greiðsluaðili,
höfum hvorki lagasetningar- né
reglugerðarvald.“
Karl Steinar sagði ljóst að
dómurinn gæti þýtt veruleg
útgjöld af hálfu ríkisins.
„Við munum að sjálfsögðu fara
eftir niðurstöðu dóms Hæsta-
réttar og bíðum fyrirmæla um
það hvernig haga skuli greiðsl-
um.“ ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Guðni Ágústsson:
Ummælin
þýða ekki
neitt
DÓMUR „Menn verða að taka þeim
úrslitum og deila ekki við dómar-
ann,“ segir Guðni Ágústsson, vara-
formaður Framsóknarflokksins,
um dóminn í öryrkjamálinu í gær.
Þegar hann er spurður hvort
hann hafi verið sammála því sem
formaður Framsóknarflokksins,
Halldór Ásgrímsson, sagði í um-
ræðum á Alþingi í janúar árið
2001 um að ef það kæmi fram að
ríkisstjórnin væri vísvitandi að
brjóta stjórnarskrá, ætti ekki
bara einn ráðherra, heldur ríkis-
stjórnin öll að segja af sér, svarar
hann:
„Það er margt sem sagt er í
pólitíkinni og ég tók ekkert sér-
staklega eftir þeim ummælum. Ég
sé ekki að þessi ummæli þýði neitt
í dag.“ ■
RAGNAR AÐALSTEINSSON
Lögmaður Öryrkjabandalagsins segir að
það beri að hafa í huga að dómurinn sé
að hluta til málamiðlunardómur. Hæsti-
réttur hafi ekki viljað lenda í útistöðum við
framkvæmdavaldið öðru sinni.
Ragnar Aðalsteinsson
lögmaður:
Viðvaranir
að engu
hafðar
DÓMSMÁL „Dómurinn er merkilegt
framlag til félagslegra mannrétt-
inda og hann er enn eitt nýtt skref
í þá átt að gera félagsleg mann-
réttindi jafnsett borgaralegum og
pólitískum mannréttindum, einn-
ig hér á landi,“ segir Ragnar Aðal-
steinsson, lögmaður Öryrkja-
bandalagsins.
„Það var búið að vara ríkis-
stjórnina og meirihluta þing-
manna við því í janúar 2001 að
lögin sem þá voru sett í tilefni af
dómi Hæstaréttar frá desember
2000 myndu brjóta í bága við
stjórnarskrána. En þau ráð voru
virt að vettugi og því fór sem fór.
Hún var brotin eins og í ljós kom í
gær. Ríkisstjórnin taldi réttara að
hafa ráðgjöf stuðningsmanna
sinna í fyrirrúmi,“ segir Ragnar.
„Það ber að hafa það í huga að
dómurinn er að hluta til málamiðl-
unardómur og ber það með sér að
Hæstiréttur hefur ekki viljað
lenda í útistöðum við fram-
kvæmdavaldið öðru sinni.“ ■
GARÐAR SVERRISSON
Garðar segir ríkisstjórnina
hafa fótum troðið sjálfsögð-
ustu réttindi þeirra sem af-
skiptastir væru í samfélaginu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T