Fréttablaðið - 17.10.2003, Side 8

Fréttablaðið - 17.10.2003, Side 8
8 17. október 2003 FÖSTUDAGUR Skeytingarleysi þriggja ríkja „Japan, Ísland og Noregur eru einu iðnríkin, sem hafa byrgt efnahagslíf sitt svo inni undan- gengna áratugi, að viðskipti við útlönd hafa vaxið engu örar en landsbúskapurinn að öðru leyti.“ Þorvaldur Gylfason í Fréttablaðinu 16. október. Þökkum Drottni „Þökkum Drottni fyrir liðin tutt- ugu og fimm ár og sérstaklega fyrir að hafa gefið okkur þann mann sem hefur einkennt þau öðrum fremur: Jóhannes Pál páfa II.“ Jóhannes Gijsen í DV 16. október. Ofstjórnarmenn „Hin dapurlega staðreynd er sú að núverandi valdhafar hafa fótum troðið alþingi...“ Sverrir Hermannsson í Morgunblaðinu 16. október. Orðrétt Fyrsta mannaða geimfar Kínverja lenti heilu og höldnu: Hetjan komin heim PEKING, AP Mannaða geimfarið Shenzhou 5, sem Kínverjar skutu á loft á miðvikudag, lenti heilu og höldnu í fyrrinótt á sléttum Innri-Mongólíu, um 300 kílómetra norðvestur af höfuðborginni Peking. Einn geimfari var í flaug- innu, Yang Liwei, 38 ára gam- all, og segir kínverska frétta- stofan Xinhua að hann sé heill á húfi. „Mér líður vel. Ég er stoltur fyrir hönd föðurlandsins,“ sagði Liwei þegar hann sté út úr geimfarinu. Þetta var fyrsta mannaða geimferð Kínverja en geimfarinu var skotið á loft frá Jiuquan í Norðaustur-Kína. Kínverjar urðu þar með þriðja þjóðin til að skjóta mönnuðu geimfari á loft. Yang Liwei fór 14 sinnum umhverfis jörðu í geimfarinu og gekk allt að óskum. Geim- ferðin tók 21 klukkustund og hafði Liwei næga næringu meðan á ferðinni stóð en 20 réttir voru á matseðli geim- farsins, einn fyrir hverja klukkustund. Undirbúningur ferðarinnar hefur staðið í 11 ár og kostað um 2,2 milljarða dala eða nálægt 170 milljörðum íslenskra króna. ■ Alþingi: Spurt um Sundabraut ALÞINGI Samgönguráðherra hefur verið beðinn um svör við fyrir- spurnum á Alþingi í sambandi við umferðarmannvirki í Reykjavík. Guðjóni Ólafur Jónsson, vara- þingmaður Framsóknarflokksins, spyr hvað líði undirbúningi að gerð Sundabrautar, gerð mislægra gatnamóta Miklubrautar og Kringlumýrarbrauta og færslu Hringbrautar. Ásta Ragnheiður Jóhannesdótt- ir, Samfylkingu, spyr hvað sé því til fyrirstöðu að báðar þær leiðir sem verið hafa til athugunar varðandi legu Sundabrautar fari í lögform- legt umhverfismat. ■ PEKÍNG, AP Kínversk stjórnvöld saka meðlimi hinna forboðnu samtaka Falun Gong um að hafa truflað útsendingu frá geimskoti Kínverja á dögunum. Kínverski kommúnistaflokkurinn hætti á síðustu stundu við að senda beint út frá því þegar fyrsta mannaða geimfari Kínverja var skotið á loft á miðvikudag. Í staðinn var ákveðið að senda upptöku frá at- burðinum út þegar ljóst var að geimskotið hefði heppnast. Út- sending frá geimskotinu og um- fjöllun því tengd átti að vera eina efnið í kínverska ríkissjónvarpinu á miðvikudag og fimmtudag. Talsmenn kínverska komm- únastaflokksins segja að Falun Gong hafi sent út sjónvarpsmerki sitt frá Taívan og vísvitandi trufl- að gervihnattaútsendingu kín- verska ríkissjónvarpsins frá þess- um merka viðburði í sögu Kína. „Þeir komu í veg fyrir að al- menningur fengi að sjá fréttir af geimskoti Shenzhou 5, hins helga fleys,“ sagði í fréttum Xinhua- fréttastofunar. Ekki fylgdi sögunni hvað það var sem Falun Gong sendi út gegnum dreifikerfi sitt. ■ Í FAÐMI FJÖLSKYLDUNNAR Fyrsti kínverski geimfarinn, Yang Liwei, lentur heilu og höldnu. Hann er hér ásamt konu sinni, Zhang Yumei, og átta ára gömlum syni. Kommúnistaflokkurinn æfur út í Falun Gong: Trufluðu útsend- ingu frá geimskoti ÆÐSTU RÁÐAMENN KÍNA Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, og aðrir háttsettir ráðamenn hugsa Falun Gong-sam- tökunum nú þegjandi þörfina. Stjórnvöld segja Falun Gong hafa truflað útsendingu frá fyrsta mannaða geimskotinu í sögu landsins. Eldur um borð í Nílarferju: Ellefu slasaðir KAÍRÓ, AP Eldur braust í gær út í farþegaferju sem siglir um Níl í Suður-Egyptalandi. Að minnsta kosti ellefu manns slösuðust og eins manns er saknað. Hinir slös- uðu eru ferðamenn frá Mexíkó, Ítalíu og Spáni. Ferjan var á leið frá Luxor til Aswan þegar eldurinn kom upp og voru 140 manns um borð, allt er- lendir ferðamenn. Upptök eldsins eru ókunn, að sögn lögreglu. ■ Ungir framsóknarmenn: Standi við loforðin STJÓRNMÁL Ungir framsóknar- menn á norðanverðum Vestfjörð- um skora á stjórnvöld að standa við loforð sín um að línuívilnun verði komið á í haust. Þetta kom fram í einni ályktana sem var samþykkt á aðalfundi þeirra í fyrrakvöld. Jafnframt var skorað á menntamálaráðherra að efla háskólanám á Vestfjörðum og upphafi hvalveiða á ný fagnað. Albertína Friðbjörg Elíasdótt- ir var kjörin nýr formaður fé- lagsins. ■ Lögreglumál: Reglur um myndasöfn ALÞINGI Guðjón Ólafur Jónsson, varaþingmaður Framsóknar- flokksins, hefur lagt fram fyrir- spurn á Alþingi til dómsmálaráð- herra um mynda- safn lögreglu. Hann spyr hvaða vinnureglur gildi um mynda- safn lögreglu varðandi myndir af einstaklingum, þar með talið h a n d t e k n u m og/eða grunuðum mönnum og mynd- ir frá opinberum fundum og öðrum samkomum. Guðjón Ólafur vill vita hjá hvaða lögregluembættum slík myndasöfn eru varðveitt og í hvaða tilgangi, hvað valdi því að mynd af mönnum sé varðveitt í myndasafni og af hvaða tilefni hún sé fjarlægð þaðan. Þá óskar hann eftir upplýsingum um það hvert lögregla sækir heimild til varðveislu slíkra myndasafna og hvenær og með hvaða hætti við- komandi sé tilkynnt að mynd af honum sé varðveitt í myndasafni lögreglu eða hafi verið fjarlægð þaðan. Að lokum spyr varaþingmaður- inn hvort dómsmálaráðherra telji ástæðu til að setja sérstök ákvæði í lög eða reglugerð um þessi efni. ■ GUÐJÓN ÓLAF- UR JÓNSSON Vill vita hvort lögregla geymi myndir af mönn- um. Markús uppnefnir danska útvarpið Í tölvupósti útvarpsstjóra líkir hann Danmarks Radio við kommúnistaríki og lýsir því að sú stofnun sé á hliðinni vegna vinstrivillu og nái ekki að rétta sig við. Gerir athugasemd við umfjöllum Spegilsins um Nóbelsskáldið og ríkisstjórnina árið 1955. FJÖLMIÐLAR Í tölvuskeyti Markúsar Arnar Antonssonar útvarpsstjóra til lykilstjórnenda hjá Ríkisútvarpinu, sem Fréttablaðið birti kafla úr í gær, lýsir hann meintri vinstrivillu danska útvarpsins og líkir stofn- uninni við kommúnistaríki: „Það er með ólíkindum að fylgjast með umræðum um Danmarks Radio, þar sem sú fleyta er sögð hafa gjörsam- lega lagst á hliðina og nái ekki að rétta sig við. Blöðin rifja upp ummæli starfsmanna, sem sögðu berum orðum að þeir ætluðu að hengja pólitíska andstæðinga sína í hæsta ljósastaur (m.a núverandi utanríkisráðherra) þegar byltingin hæfist. Annar hver toppmaður í stjórnkerfi (D)DR á að hafa verið handbendi austur-þýzku stjórnarin- nar o.s.fr. Christian Nissen útvarpsstjóri vísar því á bug að DR sé vinstrioríentíerað núna, en það hafi einu sinni verið það!! Ja, hvenær hefði það verið viðurkennt áður og forðum?...,“ spyr útvarpsstjóri. Þegar Markús Örn snýr út úr nafni danska útvarpsins með skammstöfuninni DDR er hann að vísa til hins horfna Þýska alþýðulýðveldis. Sjálfur sagði hann í samtali við Fréttablaðið að tölvuskeytið hafi verið á köflum skrifað í léttum dúr. Megininntak tölvupóstsins er um vinstrivillu þeirra sem standa að útvarpsþættinum Speglinum sem sendur er út á samtengdum Rásum. Meðal þess sem Markús Örn gerir athugasemdir við er umfjöllun Hjálmars Sveinssonar umsjónarmanns þegar hann rifj- aði upp heimkomu Halldórs Laxness Nóbelsskálds árið 1955 þegar íslensk þjóð fagnaði skáld- inu á hafnarbakkanum: „...En hann tók sérstaklega fram að ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks (eins og sú sem nú situr) hefði ekki látið sjá sig...,“ segir útvarpsstjóri um efnistök Spegilsins. Hann veltir upp þeim mögu- leika í niðurlagi bréfsins að nýr fréttaskýringaþáttur verði settur við hlið Spegilsins þar sem hægri- menn myndu sitja við stjórn- völinn. Útvarpsstjóri telur þó að leita verði að umsjónarmönnum utan RÚV. rt@frettabladid.is RÍKISÚTVARPIÐ Starfsmönnum er brugðið eftir að tölvupóstur útvarpsstjóra komst í hámæli.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.