Fréttablaðið - 17.10.2003, Síða 12
12 17. október 2003 FÖSTUDAGUR
TÓNLEIKAHÖLL DISNEYS
Ryðfrítt stál og framandi form einkenna
nýja tónlistarhöll Walt Disney í Los
Angeles. Arkitektinn er Frank Gehry og
kostar byggingin ríflega 21 milljarð króna.
Deilur hafa staðið um bygginu hallarinnar
síðastliðin 16 ár en nú sér fyrir endann á
þeim og verður hölllin vígð 23. þessa
mánaðar. Það verður Fílharmoníusveit Los
Angeles sem vígir Disney-höllina.
ÚTFLUTNINGUR „Það er fyrst og
fremst markaðurinn fyrir ýsu
sem við höfum áhyggjur af,“
sagði Friðleifur Friðleifsson,
deildarstjóri frystra sjávarafurða
hjá SÍF, en mikil lækkun hefur
orðið á verði á sjófrystum þorski
og ýsu á mörkuðum erlendis.
„Það stefnir í að ýsumarkaður-
inn verði mjög þungur út þetta ár
og fram á næsta ár. Það er of-
framboð á ýsu á mörkuðum og
kaupendur vita það en neyslan
virðist vera tiltölulega stöðug
þrátt fyrir verðfallið. Lægra verð
virðist hins vegar ekki skila sér
enn sem komið er alla leið til
neytenda. Við hefðum viljað sjá
söluaukningu miðað við aðstæð-
urnar en eftirspurnin er nánast
engin.“
Friðleifur segir að hjá SÍF leiti
menn nýrra leiða vegna lágs
verðs á hefðbundnum mörkuðum
og mögulega séu sóknarfæri inn á
markaði í austur-Evrópu. „Þar
höfum við ekki verið samkeppnis-
færir hingað til en þar gæti orðið
breyting á þar sem verðið er orð-
ið svo lágt. Við erum sterkir á
þeim slóðum og þar gæti legið ein
lausnin við að losna við hluta af
þeim birgðum sem til eru.“
Friðleifur segir að markaður
fyrir þorskinn sé áfram til staðar
og þrátt fyrir að verð sé lágt sé
það jafnframt vænleg fyrir mark-
aði á meginlandi Evrópu. ■
VIÐSKIPTI Kaupás, sem rekur meðal
annars Nóatúnsverslanirnar, er
þessa dagana að semja við Kaupfé-
lag Árnesinga um kaup á verslun-
arhúsinu Kjarnanum á Selfossi.
Kaupfélagið á eins og kunnugt
er í miklum erfiðleikum og er í
greiðslustöðvun. Einar Gautur
Steingrímsson, tilsjónarmaður
Kaupfélags Árnesinga (KÁ) á
greiðslustöðvunartímabilinu segir
nú orðið ljóst að einhverjar eignir
séu til upp í almennar kröfur þeg-
ar forgangskröfur eru greiddar. Þó
mál hafi skýrst talsvert á undan-
förnum vikum sé ljóst að ekki
verði allir lausir endar hnýttir fyr-
ir næsta fund með kröfuhöfum,
sem haldinn verði 24. október.
Einar segir samningana um söl-
una á Kjarnanum á lokastigi. Auk
stórhýsisins Kjarnans ætli Kaupás
að kaupa þrjár aðrar eignir sem
fyrirtækið leigi einnig af KÁ;
Goðahraun í Vestmannaeyjum,
Selvogbraut í Þorlákshöfn og eina
eign í Vík í Mýrdal.
Þrotabú Brúar ehf., dótturfé-
lags KÁ, er að sögn Einars Gauts
að selja Hótel Selfoss. Kaupendur
eru komnir en spurningin er sú
hvort náist að semja um kaupverð
við þá lánardrottna sem eiga veð í
hótelbyggingunni.
„Mál eru að skýrast í bókhald-
inu og tölur að verða ljósari. Við
munum gera grein fyrir þessu á
kröfuhafafundinum. Það er ljóst að
það er til upp í almennar kröfur.
Við erum að fara yfir það núna
hversu mikið það er. Það eru marg-
ir lausir endar og verður ekki búið
að hnýta þá alla fyrir fundinn með
kröfuhöfunum 24. október. En all-
ar upplýsingar núna eru miklu
gleggri en áður,“ segir Einar Gaut-
ur.
KÁ hefur afhent rekstur Hótels
Flúða og Hótels Kirkjubæjar-
klausturs til hlutafélaganna sem
eiga byggingarnar sem hýsa þá
starfsemi. KÁ rekur enn hótel í
Vík en eigandi þess húss er Mó-
klettur ehf. Fram hefur komið að
Olíufélagið hefur yfirtekið frá KÁ
rekstur allra Esso-bensínstöðva á
Suðurlandi.
gar@frettabladid.is
Blönduós:
Bæjarráð
fór rangt að
SVEITARSTJÓRNIR Bæjarráði Blöndu-
óss var óheimilt að fela einum bæj-
arfulltrúa að fara með atkvæðis-
rétt bæjarins á hluthafafundi í Fé-
lagsheimili Blönduóss ehf. Þetta
kemur fram í áliti félagsmálaráðu-
neytisins eftir að málinu var vísað
til þess.
Bæjarráð fól Jóhönnu G. Jó-
hannsdóttur, bæjarfulltrúa og
stjórnarformanni Félagsheimilis
Blönduóss, að fara með atkvæðis-
rétt bæjarins. Ágreiningur var um
afgreiðsluna í bæjarráði og telur
félagsmálaráðuneytið að því hefði
átt að vísa málinu til bæjarstjórnar
til endanlegrar ákvörðunar. ■
Á mánudögum:
Fasteignir
Hér sést fjöldi lesenda (20 - 49 ára)
á fasteignablöðum á landinu öllu skv.
skoðanakönnun Gallup september 2003.
54207
28084
MORGUNBLAÐIÐFRÉTTABLAÐIÐ
Erfiður markaður fyrir ýsu:
Eftirspurnin er engin
ÝSUFJALL
Eftirspurn eftir ýsu á erlendum mörkuðum
er engin þrátt fyrir lágt verð.
Kaupir kaup-
félagshús
HÓTEL SELFOSS
„Það eru margir lausir endar og verður ekki búið að hnýta þá alla fyrir fundinn með kröfu-
höfunum 24. október,“ segir Einar Gautur Steingrímsson, tilsjónarmaður KÁ. Verið er að
ganga frá sölu verslunarhússins Kjarnans og kaupandi er fundinn að Hótel Selfossi.
Kaupás, sem rekur meðal annars Nóatúns-
verslanirnar, er að ganga frá kaupum á fjórum
verslunarhúsum Kaupfélags Árnesinga.
RÓM, AP Áætlað er að 250.000 manns
að minnsta kosti leggi leið sína til
Rómar á sunnudag til að fylgjast
með athöfn þar sem Móðir Theresa
verður tekin í dýrlingatölu.
Atburðurinn verður sýndur í
beinni útsendingu í Sjónvarpinu
milli klukkan átta og níu á sunnu-
dagsmorgun.
Móðir Teresa, sem hét réttu
nafni Agnes Gonxhe Bojaxhiu, lést
árið 1997, þá 87 ára að aldri, en hún
var heimsþekkt fyrir störf sín í
þágu fátækra. Hún var ættuð frá
Albaníu og vann til Friðar-
verðlauna Nóbels árið 1979 fyrir
starf í þágu fátækra á Indlandi.
Stjórnvöld í Albaníu ætla að heiðra
minningu hennar með því að gera
2004 að „Ári Móður Teresu“. ■
Teresa í dýrðlingatölu:
Kvartmilljón
til Rómar
MINJAGRIPIR
Minjagripir með myndum af Móður
Theresu eru til reiðu í verslunum í Róm.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M