Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.10.2003, Qupperneq 19

Fréttablaðið - 17.10.2003, Qupperneq 19
19FÖSTUDAGUR 17. október 2003 ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S T O Y2 24 74 1 /2 3 Fjölskyldubílar Kassaklifur, skátaþrautir, svifbraut, hestaþraut, sund, léttar veitingar og fleira. Jeppar Blindakstur, torfærubrautir, sandakstur, vatnaslark, tímataka, dekkjaþraut, léttar veitingar og fleira TOYOTAEIGENDUR: TAKIÐ FRÁ NÆSTU HELGI. Við látum reyna á græjurnar og förum saman í Haustsafarí á Toyotadaginn, 18. október. Skemmtilegar ökuleiðir. Dúndrandi Toyotafjör. Við ljúkum deginum með veislu og skemmtiatriðum þar sem verður slakað á eftir góðan dag. Dregið verður í þátttökuhappdrættinu og afhent verðlaun. Vertu með! Nánari upplýsingar og skráning á www.toyota.is Við verðum öll úti að aka þann átjánda Með allt á hreinu Það er kristaltær staðreynd aðfiskverndunarsjónarmið lágu ekki að baki kvótakerfinu í sjáv- arútvegi því þá hefðu fiskveiðar verið þróaðar í vistvænar veiðar. Í stað þess hafa þær þróast í rányrkju með þungavinnuvél- um. Það er einnig á hreinu að fiskifræðingar eru ekki svo treggáfaðir að vita þetta ekki. Röskun lífkeðjunnar er í fullum gangi með alltof miklum veiðum á uppsjávarfiski, þ.e. loðnu, síld og kolmunna, alltof mikilli notk- un á dragnót, alltof miklum þungatrollveiðum úthafsskipa allt upp að fjórum mílum og alltof mikilli notkun flotvarpa sem notaðar eru jöfnum höndum á loðnu, síld, kolmunna og karfa. Það er alveg á hreinu að skamm- tíma gróðasjónarmið réðu ferð- inni þegar kvótakerfið var út- hugsað. Varanleg náttúruspjöll Það vita allir sæmilega greind- ir menn að hið viðkvæma lífríki hafsbotnsins þolir ekki til lengdar að hamast sé á því allan sólar- hringinn ár eftir ár með troll- virkjum sem vega með hlerum og öllu frá sextíu tonnum upp í níutíu tonn. Allt þetta þungavinnudrasl er svo dregið með allt að ellefu þúsund hestafla orku um hafs- botninn. Almenningur gerir sér engan veginn ljóst hverskonar varan- leg náttúruspjöll er verið að vinna á móður náttúru. Almenn- ingur á Íslandi er svo hlunnfar- inn með þessu. Fáeinir menn hafa með reglugerðarfargani og lagagerð í kjölfarið eignað sér til einkaafnota allan fiskinn í sjón- um, heila sjálfendurnýjandi náttúruauðlind sem í orði er köll- uð sameign þjóðarinnar. Með orðinu sameign er almenningur gerður að ábyrgðaraðilum auð- valdsins og þarf að standa undir rekstri og bera ábyrgð á um tvö- hundruð milljarða skuldum út- gerðarinnar. Hrun fiskistofna Athugið! Hrun fiskistofna, ekki bara við Ísland heldur í öll- um heimshöfunum, er áþreifan- leg staðreynd samkvæmt niður- stöðu vísindamanna í þeim efn- um. Nú eru aðeins 10% eftir af fiski í sjónum á heimsmæli- kvarða miðað við það sem var 1950. Félagið Framtíð Íslands er náttúruverndarfélag sem stofn- að var 1996 til höfuðs náttúru- spjöllum á hafsbotni, svo og gegn hverskonar óréttlæti hvaða nafni sem það nefnist. Nú hefur undirritaður framkvæmdastjóri Framtíðar Íslands tekið fram lúðurinn og blæs gegn náttúru- spjöllum á hafsbotni, svo og gegn óréttlæti því sem þjóðinni er beitt með hinu svonefnda kvótakerfi í sjávarútvegi. ■ Margrét Sverrisdóttir fram-kvæmdastjóri Frjálslynda flokksins skrifar grein um evruna, krónuna og fullveldið í Fréttablaðið 15. október. Ég get verið sammála henni með að það sé sjálfsagt og áhugavert að velta fyrir sér ýmsum hliðum þessa máls til að umræðan verði málefnaleg og fólk geti velt fyrir sér efnahagslegum og pólitísk- um rökum með og á móti. Hins veg- ar er ég ósammála henni í flestu öðru sem hún skrifar í þessari grein, sérstaklega hvað varðar evruna. Margrét segir að hagfræðingar í Svíþjóð hafi talið hagkerfið of lítið þar í landi til að taka upp evru. Þetta er alls ekki rétt því langflestir hag- fræðingar þar í landi töldu það mjög hagstætt fyrir Svía að taka upp evru. Þar má nefna flesta virtustu hag- fræðingar Svíþjóðar, meðal annars Assar Lindbeck, Lars Svensson, Lars Calmfors, Carl Hamilton og marga fleiri. Þessir hagfræðingar bentu á að auðsköpun í litlum löndum er háð utanríkisviðskiptum og góðri teng- ingu við stærri markaði. En eftir því sem hagkerfin eru smærri, því minna svigrúm er fyrir stærðarhag- kvæmni, samkeppni og sérhæfingu og því mikilvægara er að ná góðri tengingu við stærri markaði. Og svo virðist vera að myntsvæði afmarki markaðssvæði að miklu leyti, t.d. hvað varðar flæði á fjármagni og verðjöfnun á neysluvörum. Bandaríski hagfræðingurinn Andrew Rose framkvæmdi rannsókn á áhrifum af upptöku evrunnar á sænsk utanríkisviðskipti og komst að því að viðskipti Svía við evrusvæðið myndu aukast um meira en 50% þeg- ar til lengri tíma væri litið. Af þess- um sökum eru þau rök sem gjarnan heyrast að Svíar þurfi á sænsku krón- unni að halda til þess að mæta efna- hagssveiflum léttvæg. Þessa sveiflu- jöfnun væri hægt að veita með ríkis- fjármálastefnu og eiga þau rök einnig ágætlega við hér á landi. Evran og hagvöxtur Ásgeir Jónsson hagfræðingur skrifaði athyglisverða grein í Við- skiptablaðið nýlega (sjá http://www.hi.is/~ajonsson) um kosn- ingarnar í Svíþjóð. Þar bendir hann á þá staðreynd að Svíar þurfa á hag- vexti að halda fremur en flestu öðru og þar hefði evran getað lagt þeim lið með því að tengja þá inn á evrópskan markað. Stundum er snúið út úr þess- um rökum og sagt að vegna þess hve hagvöxtur er hægur í kjarna ESB, þ.e. hjá Þýskalandi, Frakklandi og Ítalíu, en það er misskilningur sem sést af því hve vel hefur gengið hjá minni jaðarþjóðum í Evrópu. Málið er einfaldlega það að þrátt fyrir hægan hagvöxt hjá risunum þremur er sam- einaður markaður þeirra þriggja svo stór og voldugur að smærri ríki geta hæglega sótt þangað framfarir og hagvöxt með utanríkisviðskiptum. Margrét telur að við þurfum að hlaupa undir bagga með útflutnings- geira atvinnuveganna með því að breyta gengi. Ég er nú ekki viss um að íslenskur útflutningsiðnaður sé tilbúinn að skrifa upp á þá gömlu hrossalækningu sem heyrir sem bet- ur fer nánast fortíðinni til. Með nú- tíma hagstjórn og tilkomu kvóta- kerfisins hefur hættan á sveiflum minnkað mikið. Staðreyndin er sú að það sem hefur einkum valdið gjald- eyrisskapandi atvinnuvegum erfið- leikum á undanförnum árum er rússibanaferð íslensku krónunnar upp og niður gengisstigann. Stóryrðum eins og landráð sem Margrét notar vísum við Evrópu- sinnar til föðurhúsanna. Slíkar yfir- lýsingar hafa sem betur fer ekki sést í umræðunni síðan Ísland gekk í Atl- antshafsbandalagið. Íslendingar vita nú að það var hárrétt ákvörðun að ganga til liðs við vinaþjóðir okkar í NATO. Við Evrópusinnar óttumst því ekki dóm sögunnar. ■ Umræðan GARÐAR H. BJÖRGVINSSON ■ framkvæmdastjóri Framtíðar Íslands skrifar um fiskveiðistjórn. Andsvar ANDRÉS PÉTURSSON ■ formaður Evrópusamtakanna skrifar um evruna. Evran, krónan og stóryrði

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.