Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.10.2003, Qupperneq 27

Fréttablaðið - 17.10.2003, Qupperneq 27
Í síld er mikið af omega-3 fitu-sýrum sem hafa jákvæð áhrif á samsetningu blóðfitunnar og hindra æðakölkun. Þær hafa einnig jákvæð áhrif á storknun- areiginleika blóðsins og hindra myndun á blóðtappa. Í feitum fiski eins og síld fást um það bil 2,4 grömm af omega-3 fitusýrum úr 200 gramma skammti. Síldin inniheldur líka mikið af próteinum, 19,3 grömm í 100 grömmum af fiski. Próteinið í fiski er auðnýtanlegt og amínó- sýrurnar eru í heppilegu hlut- falli fyrir manninn. Í síldinni er einnig mikið af A-, D- og E- vítamínum og steinefnum eins og joði og kalki. HEIMILD: WWW.RF.IS. RÚSSNESKT SÍLDARSALAT 2 Ora marineruð síldarflök 1 epli 1 lítill laukur 3 sneiðar Ora rauðrófur 2 msk. safi af rauðrófum 1/2 dós sýrður rjómi Síld, epli, laukur og rauðrófur eru skorin í hæfilega stóra bita. Sýrðum rjóma og safa er hrært saman. Öllu er blandað saman í einni skál. Skálin er geymd í kæli. ■Systir mín sagðist hafa bragðaðpide, eins konar pitsu, ótrúlega ljúffenga með þurrkuðum a p r í k ó s u m og sesam- fræjum á tyrkneskum veitingastað í London. Ég hef aldrei bragðað al- vöru pide en hér er mín útgáfa byggð að hluta til á hennar upp- höfnu lýsingum. Til að gera full- komna máltíð úr þessu má snæða pide með staðgóðri kartöflusúpu. PIDE Botn 4 bollar hveiti 1/2 poki þurrger 1 og 1/2 bolli volgt vatn 1 tsk. salt Álegg 3 rauðir laukar olífuolía 3 msk. balsamedik 2 msk. sesamfræ 1 bolli þurrkaðar apríkósur 1 lúka klettasalat rifinn ostur chili olía um 400 kr. Skerið rauðlauk í mjög fína báta og steikið í olífuolíu þar til hann tekur að linast. Hellið þá balsamediki yfir og látið laukinn malla dágóða stund þar til hann hefur brúnast nokkuð og er orðinn stökkur á endunum. Saltið aðeins. Fletjið pide-deigið í lengjur og penslið með olífuolíu. Dreifið lauknum og apríkósubitum á lengjurnar, stráið sesamfræjum og rifnum osti yfir. Bakið í heitum ofni í 15 til 20 mínútur. Stráið klettasalati yfir og chiliolíu eftir smekk. KARTÖFLUSÚPA 1 sellerístilkur 1/2 púrrulaukur 2 msk. smjör 3 kartöflur með hýði 1 msk. hveiti 200 ml mjólk 200 ml vatn 1 msk. dill (ferskt eða þurrkað) 2 msk. steinselja (fersk eða þurrkuð) 1/2 poki frosnar grænar baunir 1/2 dós sýrður rjómi um 400 kr. Steikið sellerí og púrru í smjöri og hrærið svo hveitinu út í. Hellið vatni og mjólk útí og látið þykkna. Teninguðum kartöflunum, salti, pipar, dilli og steinselju er þá bætt út í og látið sjóða um 30 mín. Sýrð- um rjóma og baunum er skellt út í síðustu 10 mínúturnar. Kostnaður samtals 800 kr. 27FÖSTUDAGUR 17. október 2003 Til hnífsog skeiðar GUÐRÚN JÓHANNSDÓTTIR ■ Eldar handa minnst fjórum fyrir 1.000 kr. eða minna. Austfirskt lambakjöt: Eitt tonn af kjöti selt á Netinu Á vefnum www.austurlamb.ishafa neytendur möguleika á að panta austfirskt lambakjöt frá tuttugu framleiðendum og er fyrsta sendingin farin af stað til neytenda. Þessi nýjung hefur mælst vel fyrir og þegar er búið að selja um eitt tonn af kjöti á Netinu. Pantanir tóku að berast um leið og vefurinn var opnaður í byrjun september. Búið er að sérvinna kjötið á þann hátt sem neytendur óska. Kjötið er valið af gripum sem slátrað hefur verið í viður- kenndum sláturhúsum og búið er að sérvinna og taka frá alla þá hluta sem ekki teljast vænlegir í sölu. Valið er úr fituminnsta kjöti og gæðaflokkum með mikilli vöðvafyllingu. Tuttugu bæir taka þátt í verk- efninu, en markmiðið er fyrst og fremst að gefa neytandanum kost á að kaupa upprunamerkt kjöt beint af bóndanum. Þeir bændur sem taka þátt í verkefninu eru sömuleiðis að tengjast neytendum enn frekar með beinni sölu í gegn- um Netið. ■ Tempranillo-þrúgan er vörumerki Rioja-héraðsins en vín þaðan eru ákaflega vin- sæl á Íslandi og í huga margra tákn spænskr- ar víngerðar. Lagunilla-vínhúsið er í eigu Arco Bodegas, sem á í dag fimm stærstu vín- fyrirtækin í La Rijoa og ræður yfir 3.000 hekturum af vínræktarsvæði. Lagunilla Tempranillo er ferskt, gott, ein- falt og ódýrt rauðvín með léttum eikarkeim. Milt í bragði með kryddtóna, góða mýkt og er ríkt af berjum. Léttir pipartónar í eftirbragði. Hentar vel með tapas, kjötréttum, lamba- og nautakjöti ásamt ostum. Fæst í Heiðrúnu og Kringlunni og kostar 990 kr. Ferskt og ódýrt frá Rioja Þetta ferska ungaChardonnay er auðugt af perum, sítrus og apríkósum í bragði með góða mýkt og snerpu í eftirbragði. Ár- angurinn er vín með mikla fyllingu, gnægð ávaxta og gott jafnvægi. Ótrúlegt en satt þá passar þetta hvítvín fantavel með súkkulaði. Það getur verið marg- slungið að blanda saman víni og súkkulaði. Mögu- leikarnir eru óendanlegir því súkkulaði er ekki bara súkkulaði frekar en vín er bara vín. Tegundirnar geta verið með mjólkur- bragði, dökkar, bitrar, unnar, blandaðar og síðast en ekki síst óendanlega góðar. Að ná tengingu milli þessara heima hefur verið mikið reynt og gengið misvel en þeir sem hafa próf- að dökkt súkkulaði og Painter Bridge Chardonnay-hvítvín frá Kaliforníu hafa ekki verið sviknir! Fæst í Heiðrúnu og Kringlunni og kostar 1.190 kr. Súkkulaði og vín - hið fullkomna hjónaband Nýtt í vínbúðum Vín vikunnar Painter Bridge Uppáhaldsmaturinn: Rjúpur með belgísku rauðkáli Sigmar B. Hauksson matreiðslu-maður er ekki í nokkrum vafa um hver uppáhaldsmaturinn hans er. „Það eru rjúpur sem ég hef skotið sjálfur. Ég reyni að hafa rjúpur tvisvar til þrisvar á ári og auðvitað alltaf á jólunum.“ Bannað er að veiða rjúpur um þessar mundir en Sigmar, sem er formaður Skotveiðifé- lags Íslands, er fullviss um að það eigi eftir að breytast: „Við væntum þess að skynsamt fólk á hinu háa Alþingi breyti því.“ Að sögn Sigmars er hann í tvo til þrjá daga að elda rjúpurnar ásamt meðlætinu. „Það er nauð- synlegt að hafa sultu úr aðalbláberjum, og gott rauðkál sem með- læti. Svo er það náttúrlega kraftmikil sósa sem er gerð af beinum og innyflum rjúp- unnar.“ Uppskriftina að rauðkál- inu fékk Sigmar í Belgíu og er hann í tvo daga að búa það til. Sigmar segir að rjúpurnar þurfi að hanga í tvær til þrjár vik- ur áður en þær eru eldaðar. Eftir því sem kaldara sé í veðri, þeim mun lengur þurfi þær að hanga uppi. Þrátt fyrir rjúpna- veiðibannið ætlar Sigmar að elda rjúp- ur fyrir næstu jól, enda segist hann eiga afgang frá því í fyrra. ■ SIGMAR B. HAUKSSON Ætlar að borða rjúpur um næstu jól. Pide og kartöflusúpa KJÖT BEINT FRÁ BÓNDANUM Hver pakki er sérmerktur framleiðandanum með mynd af viðkomandi bæ. Lagunilla Tempranillo FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T Síld er holl: Prótein, vítamín og steinefni

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.