Fréttablaðið - 17.10.2003, Side 30

Fréttablaðið - 17.10.2003, Side 30
AIRWAVES Fjöldi erlendra sveita leikur á Iceland Airwaves-hátíð- inni í kvöld, og eru þær ekki af verri endanum. Flestar koma fram á Gauknum en þar leika TV on the Radio, Prosaics, Captain Comatose og Audio Bullys ásamt íslensku sveitunum Daysleeper, Maus og Brain Police. Stórsveitin The Kills kemur fram á NASA ásamt Kimono, Vínyl, Singapore Sling, Quarashi og Dáðadrengjum. Dúettinn The Kills leikur hrátt, óheflað rokk sem svipar til P.J. Harvey, Yeah Yeah Yeahs og Velvet Underground. Hann er breskur, hún er bandarísk og fyrstu lögin unnu þau með því að senda hvort öðru spólur í pósti. Þetta reyndist of tímafrekt og hún fluttist yfir til Bretlands. The Kills gaf út fyrstu breiðskífu sína, Keep on Your Mean Side, fyrr á þessu ári og hlýtur sú plata að enda á listum gagnrýnenda yfir bestu plötur ársins. TV on the Radio kemur frá Brooklyn í Bandaríkjunum og blandar saman el- ektrónískum hljóðum við rokkið á frumleg- an og spennandi hátt. Fyrsta breiðskífan er enn ekki komin út en hennar er beðið með mikilli eftirvæntingu innan tónlistargeir- ans. Hingað til hefur sveitinni verið líkt við Interpol, Pere Ubu og Pixies. Sveitin gaf út þröngskífuna Young Liars fyrr á þessu ári og héldu gagnrýnendur ekki vatni. Prosaics er tríó sem leikur þétta rokktónlist með „vélbyssu“ bassalínum, eins og segir á heima- síðu. Sveitin er ung og á eftir að sanna sig. Captain Comatose er banda- rískur rafdúett sem braust út á yf- irborðið í gegnum Berlínarsen- una. Þeir leika ferska elektróník og þykja góðir „remixarar“. Þeir hafa m.a. unnið með Andy Weatherall, Gus Gus, Coldcut og Julee Cruise. Fyrsta breiðskífa Captain Comatose, Going Out, kom út snemma á þessu ári hjá Playhouse Records. Audio Bullys er breskur raf- dúett sem hefur verið að vinna sig upp metorðastigann í heimaland- inu. Þeir gáfu nýverið út plötuna Ego War á þessu ári sem fékk þónokkra athygli hér á landi. Mætið snemma, staðirnir fyll- ast fljótt. ■ 30 GRÍMUKLÆDD BJÖRK Björk „okkar“ Guðmundsdóttir mætti í dulargervi á tískusýninguna „Fashion Rocks“ er haldin var í Royal Albert Hall í London á miðvikudagskvöldið. Það var samt auðvelt að þekkja hana. ICELAND AIRWAVES Vidalín 20.30 - 01.30 fram koma: Lokbrá, Han Solo, Michael Pollock, Örkuml, Moody Company, Hand- some Joe og Úlpa. Hallgrímskrikja 17.00 Jóhann Jóhannsson flytur Englabörn. Þjóðleikhúskjallarinn 22.30 - 02.00 fram koma: Móri, Skytturnar, Perculator og Jagúar. Kapítal 20.00 - 03.00 fram koma: Octal, John Log, Berglind, Jara, Biogen, Fran Murder, Ruxpin, Pres- ident Bongo og Buckmaster de la Cruz 11 22.00 - 01.00 fram koma: Drifter, Molesting Mr. Bob og Andlát. GrandRokk 20.45 - 03.00 fram koma: Búdrýgindi, Dikta, Sein, Mið- nes, The Flavours, One Rhino, 200.000 Naglbítar og Tequila Jazz. THE RASMUS Enn og aftur er það rokkið sem situr í efsta sæti poppstöðvarinnar. TÓNLIST Yoko Ono, ekkja Bítilsins Johns Lennons, hefur gefið fram- leiðendum á Broadway leyfi sitt til þess að gera söngleik um ævi látins eiginmanns síns. Söngleik- urinn, sem ekki hefur hlotið nafn en gengur undir vinnuheitinu The Lennon Project, verður þó frekar óhefðbundinn þar sem hann tekur ekki beint á æviágrip- um Lennons heldur mismunandi persónuleikum hans. Framleiðendurnir Edgar Lans- bury og Don Scardino fengu þá hugmynd að ráða 12 leikara sem allir túlka einn persónuleika Lennons. Lög hans í gegnum tíð- ina verða svo auðvitað ein helsta uppstaða söngleikjarins. „Söngleikurinn segir sögu Lennons að vissu marki og gefur góða mynd af því hvernig tímarn- ir og þjóðlífið voru á þessum tíma,“ segir Don Scardino fram- leiðandi. „Lennon tók breyting- um til þess að samsvara hverri kynslóð. Hann var m.a. rokkari, hippi, hugleiðslugúru, pólitískur uppreisnarmaður, heimilisfaðir og skapandi listamaður.“ Samningaviðræður við Yoko Ono hafa staðið yfir í þrjú ár en verkefninu var frestað þegar Columbia Pictures fékk þá hug- mynd að gera kvikmynd um ævi Lennons. Þá börðust menn um að tryggja sér réttinn á lögum Lennons en sú deila leystist þeg- ar hætt var við kvikmyndina. Í söngleiknum verða 30 lög Lennons sem voru öll samin eftir að Bítlarnir hættu. ■ 17. október 2003 FÖSTUDAGUR JOHN LENNON Nú á að breyta John Lennon í söngleik á Broadway. 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 TOPP 10 - FM957 VIKA 42 The Rasmus IN THE SHADOWS Outlandish AICHA 3 Doors Down HERE WITHOUT YOU Busted SLEEPING WITH THE LIGHT.. Írafár FÁUM ALDREI NÓG Matchbox Twenty BRIGHT LIGHTS Stacie Orrico THERE’S GOTTA BE MORE... Robbie Williams SOMETHING BEAUTIFUL Dido WHITE FLAG Staind SO FAR AWAY Vinsælustulögin Fréttiraf fólki Annar skammtur ICELAND AIRWAVES Gaukurinn 20.30 Daysleeper 21.15 Maus 22.00 Brain Police 23.00 Prosaics 00.00 TV on the Radio 01.00 Captain Comatose 02.00 Audio Bullys 04.00 Alfons NASA 21.30 Kimono 22.15 Vinyll 23.00 Singapore Sling 00.00 The Kills 01.00 Quarashi 02.00 Dáðadrengir TV ON THE RADIO Þykja með því athyglisverðara sem er að gerast í New York þessa dagana. Fyrsta breiðskífan kemur út á næsta ári, forsmekkinn fáum við í kvöld á Gauknum. MÓRI Þjóðleikhúskjallarinn DIKTA GrandRokk Söngleikur um Lennon Cheryl Tweedy, ein söngkvennaGirls Aloud, brast í grát þegar hún kom fyrir dómara til þess að svara fyrir sakir sínar. Hún var ákærð fyrir að hafa ráðist, líkamlega og andlega, á þjónustu- stúlku sem vann á salerni skemmti- staðar í London. Í vitnastúkunni við- urkenndi stúlkan í tárum sínum að hafa kýlt þjónustustúlkuna en að- eins vegna þess að hún óttaðist hvað stelpan ætlaði að gera sér. Hún neitaði öllum ásökunum um að hafa haft uppi kynþáttafor- dóma með klúru orðalagi.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.