Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.10.2003, Qupperneq 48

Fréttablaðið - 17.10.2003, Qupperneq 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Bakþankar GUÐMUNDAR STEINGRÍMSSONAR Alltaf verð ég jafn ringlaðurþegar ég heyri talað um vinstri og hægri og að einhverjir hneigist annað hvort til vinstri eða hægri í skoðunum sínum. Ég sé fyrir mér feitan mann sem vaggar þegar hann labbar, ýmist til vinstri eða hægri. Ég sakna þess að maðurinn halli sér ekki líka fram og aftur, eða bara staldri við og líti um öxl. Setjist kannski niður. HEIMURINN er flóknari en svo að hægt sé að hallast einungis til hægri eða vinstri. Menn geta líkið kropið niður, hoppað, snúið við, labbað afturábak, staðið í stað, gengið á ská, lagst, skriðið og fett upp á líkamann eins og í limbó. Möguleikarnir eru óteljandi. Í stjórnmálum er alltaf eins og það séu bara tvær áttir, og ein hreyfing: að halla sér. Það gleymist að gera ráð fyrir þeim sem halla sér ekki neitt, hugsa lítið um hægri og vinstri, og standa kannski bara kjurir, teinréttir, og gretta sig eins og pönk- arar eða æpa einir á timburbrú eins og í málverkinu hans Munchs og vita ekki sitt rjúkandi ráð. ÞAÐ STENDUR ekki steinn yfir steini í þessari vitleysu. Er sá sem er á móti innrásinni í Írak vinstri- maður? Þá er Jacques Chirac vinstri- maður. Er sá sem er á móti Kárahnjúkavirkjun vinstrimaður? Er sá sem leiðir hugann að frelsi ein- staklinganna hægrimaður? Líka sá sem vill lækka skatta? Getur hugsanlega verið að einhvers staðar í bænum sitji maður við tölvuna sína á þessari stundu og skrifi niður skoðanir fólksins og skipti þeim samviskusamlega í tvo dálka: hægri og vinstri. Kannski er hann með sérstakt excel-skjal til þess arna. Mér hugnast ekki tilhugsunin. MIKIÐ MÁ sá vera úti á þekju. Hægri og vinstri eru hugtök sem gagnast að mjög takmörkuðu leyti. Það má hugsanlega, kannski, segja til einföldunar að flokkarnir á Alþingi séu hægri- og vinstriflokkar. En það nær eins langt og það nær. Fólk, manneskjur, er svo margt margt annað: Það er skemmtilegt, leiðinlegt, ágætt, sæmilegt, meiri- háttar, uppáþrengjandi, óvandvirkt, samviskusamt, agað, dómgreindar- laust, ábyrgt, alvörugefið, gagn- rýnið, sátt, ósátt, latt, duglegt, gáfað, ótrúlegt, víðsýnt, þröngsýnt, áræðið, framfærið, feimið, orðheppið, þögult, hugsandi og guð má vita hvað. Punktur. ■ Vinstri/hægri

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.