Fréttablaðið - 31.10.2003, Blaðsíða 4
4 31. október 2003 FÖSTUDAGUR
Semst um stækkun
EES-samningsins?
Spurning dagsins í dag:
Ætlar þú að lesa bók Hannesar
Hólmsteins Gissurarsonar um
Halldór Laxnes?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
32,9%
67,1%
Nei
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
VIÐSKIPTI Baugur, sem hefur lýst
áhuga á áframhaldandi fjárfest-
ingum í Bretlandi, stendur í við-
ræðum um kaup á Oasis-tísku-
verslanakeðjunni.
Breska dagblaðið Financial
Times greindi frá málinu í gær og
sagði að Baugur væri reiðubúinn
að kaupa keðjuna á 150 milljónir
punda, sem gera tæpa tuttugu
milljarða íslenskra króna. Oasis
rekur meira en 160 verslanir í
Bretlandi, ýmist sjálfstæðar eða
inni í verslunarmiðstöðvum.
Fyrirtækið sem rekur verslan-
irnar er í eigu fjárfestingararms
tryggingarisans Prudential.
Ekki náðist í Jón Ásgeir Jó-
hannesson, forstjóra Baugs, en
náinn samstarfsmaður hans tjáði
Fréttablaðinu að Baugur myndi
ekki tjá sig um málið á þessu stigi.
Ljóst væri að fyrirtækið hefði
áhuga á frekari umsvifum á
breskum smásölumarkaði. ■
VETRARDEKK „Nagladekkjanotkun
hefur minnkað eitthvað. Áður en
hálkan kom þetta árið seldum við
mikið af ónegldum vetrardekkj-
um en í hálku eins og er núna selj-
um við nánast eingöngu nagla-
dekk,“ segir Ásgeir Gíslason, eig-
andi Hjólbarðaverkstæðis Sigur-
jóns. Ásgeir segir aðaltörnina
vera hafna og búast megi við því
að hún standi yfir næstu tvær til
þrjár vikurnar.
„Það er grundvallaratriði að
hjólbarðar séu í góðu lagi og henti
við þær aðstæður sem fólk er að
keyra í,“ segir Sigurður Helgason
hjá Umferðarstofu um hvernig
bílar þurfi að vera útbúnir fyrir
veturinn.
Sigurður segir að þeir sem
keyri mikið úti á landi hafi kann-
ski aðrar þarfir en þeir sem keyra
að mestu á höfuðborgarsvæðinu.
Einnig sé nauðsynlegt að fólk gefi
sér þau augnablik sem það tekur
að skafa vel af öllum rúðum, því
miklu skipti að sjá vel í kringum
sig, ekki sé nóg að gera gægjugat.
Hann segir mikilvægt að frostlög-
ur og annar búnaður sé í lagi og
auðvelt sé að fá hjálp frá starfs-
mönnum bensínstöðva til að fylgj-
ast með því. Þá sé stórt atriði að
leita upplýsinga áður en haldið sé
af stað í lengri ferðir.
„Þeir sem geta losnað við að
vera á nagladekkjum gera það.
Þau eru óþægilegri, hávaðasam-
ari og bíllinn eyðir meira bens-
íni,“ segir Sigurður. Hann segir
að starfsmenn Umferðarstofu
reyni að hvetja fólk til að kynna
sér þá kosti sem eru í boði. Fólki
beri skylda til að vera á vetrar-
dekkjum yfir vetrartímann.
„Það eru komnar þannig að-
stæður að fólk verður að fara að
setja vetrardekkin undir,“ segir
Ragnar Árnason, varðstjóri hjá
umferðardeild lögreglunnar í
Reykjavík. Ragnar segir að lög-
reglunni finnist fáir búnir að huga
að vetrardekkjum. Hins vegar
hafi verið hátt hálkustig í gær-
morgun en sáralítið af óhöppum.
Meðalverð reyndist vera tæp-
lega 4.700 krónur þegar Frétta-
blaðið hringdi á fimm hjólbarða-
verkstæði til að athuga verð á um-
felgun á fjórum venjulegum vetr-
ardekkjum.
hrs@frettabladid.is
Fertugur karlmaður:
Braut gegn
dóttur og
stjúpdóttur
KYNFERÐISBROT Rúmlega fertugur
maður var dæmdur í Héraðsdómi
Vestfjarða í fimmtán mánaða
fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn
dóttur sinni og stjúpdóttur.
Hann var ákærður fyrir að
hafa káfað margoft á kynfærum
þeirra og brjóstum. Brotin framdi
hann frá árinu 1995 til ársins
2000. Stúlkurnar eru fæddar árið
1987 og 1988.
Í dómnum segir að brotin sem
hann er sakfelldur fyrir séu alvar-
leg. Hann hafi með þeim rofið
fjölskyldutengsl og brotið gegn
trúnaðartrausti stúlknanna, sem
hann hafði uppeldis- og umsjár-
skyldur við. Þá er hann ekki talinn
hafa neinar málsbætur. Ákærði
hefur ekki áður sætt refsingu en
ekki þótti koma til álita að skil-
orðsbinda dóminn vegna eðlis
brotanna.
Maðurinn var einnig dæmdur
til að greiða stúlkunum samtals
eina milljón króna í bætur. ■
EKKERT LÁT Á ELDUNUM
Þyrla sækir vatn í Arrowhead-stöðuvatnið í
Kaliforníu en tugir þyrlna og 13.000
slökkviliðsmenn berjast nú örvæntingar-
fullri baráttu við skógarelda í ríkinu.
Skógareldarnir:
Rignir á
eldana
KALIFORNÍA, AP Slökkviliðsmenn í
Suður-Kaliforníu keppast nú við
að bjarga nokkrum sögufrægum
smábæjum í ríkinu frá því að
verða skóareldunum að bráð. Að
minnsta kosti 20 hafa látist af
völdum eldanna, þeirra á meðal
einn slökkviliðsmaður. Óttast er
að mun fleiri lík eigi eftir að finn-
ast.
Um 13.000 slökkviliðs- og
björgunarmenn berjast nú vð
eldana, sem hafa eyðilagt 265.000
hektara lands og grandað yfir
2.600 heimilum. Rúmlega 70.000
manns hafa þurft að flýja heimili
sín.
Heldur hefur dregið úr vindi
og rigning og þoka hafa auðveldað
baráttuna við skógareldana. Hins
vegar er óvíst hve lengi veðrið
léttir slökkvistarfið. ■
Í viðtali við Ingvar Sverrissonútvarpsráðsmann kom fram að
hann hefði fundið út að Sjónvarp-
ið hefði keypt sjónvarpsefni af
Alvís síðan árið 1994 sem nemur
1.900 klukkustundum. Þetta var
mishermi Ingvars. Hið rétta er
að innkaupin námu 1.900 mínút-
um eða rúmlega 30 klukkustund-
um. ■
VIÐSKIPTI Tekjur DeCode, móðurfé-
lags Íslenskrar erfðagreiningar,
jukust um 48 prósent fyrstu níu
mánuði ársins miðað við sama
tíma í fyrra. Tap fyrirtækisins
minnkaði um 56 prósent á milli
tímabila, úr 4,26 milljörðum í 1,86
milljarða. Ef miðað er við þriðja
ársfjórðung lækkar tap fyrirtæk-
isins stórlega milli ára, úr 6,5
milljörðum í tæpar 100 milljónir
króna í ár.
Kári Stefánsson, forstjóri fyr-
irtækisins, segir batnandi afkomu
ráðast af aukinni áherslu á að hag-
nýt a rannsóknaniðurstöður í
vöruþróun. Þá hafi fyrirtækið ein-
beitt sér að því að auka tekjur á
sama tíma og kostnaði hafi verið
haldið niðri. Hann segir komandi
mánuði mikilvæga í vexti
DeCode.
Meðal rannsókna sem DeCode
hefur unnið að undanfarið er að
finna offitugen með rannsókn á
þúsund konum og gen sem teng-
ist heilablóðfalli, auk þess að
rannsaka tengsl erfða við hjarta-
áföll. ■
Tæplega tveggja milljarða króna tap á árinu:
Batnandi afkoma DeCode
KÁRI STEFÁNSSON
Hagnýting rannsóknanið-
urstaðna í vöruþróun
skilar árangri.
TAP DECODE
FYRSTU NÍU MÁNUÐI
2002 4,26 milljarðar
2003 1,86 milljarðar
TAP DECODE
Á ÞRIÐJA ÁRSFJÓRÐUNGI
2002 6,5 milljarðar
2003 100 milljónir
■ Leiðretting
OASIS
Baugur hefur áhuga á verslanakeðjunni.
Baugur stefnir á frekari fjárfestingar:
Vill eignast Oasis
fyrir 20 milljarða
Hálkan glæðir
nagladekkjasölu
Nóg er að gera á hjólbarðaverkstæðum um land allt þessa dagana og er
búist við að törnin standi næstu vikur. Lögreglan í Reykjavík segir fáa
komna á vetrardekk. Mikil hálka var í gær en lítið um umferðaróhöpp.
Á HJÓLBARÐAVERKSTÆÐI SIGURJÓNS
Fólki ber skylda til að aka á vetrardekkjum yfir vetrartímann. Sigurður Helgason hjá Um-
ferðarstofu hvetur fólk til að keyra eftir aðstæðum.
Síbrotamaður:
Dómurinn
þyngdur
DÓMSMÁL Hæstiréttur þyngdi dóm
yfir ungum síbrotamanni sem
meðal annars varð valdur að slysi
á hjólreiðamanni þar sem hann ók
gáleysislega.
Maðurinn var dæmdur fyrir
töluverðan fjölda brota á almenn-
um hegningarlögum, umferðar-
lögum og fíkniefnalögum.
Héraðsdómur Reykjavíkur
hafði dæmt manninn í sex mánaða
fangelsi en Hæstiréttur taldi níu
mánaða fangelsi vera réttláta
refsingu. Jafnframt staðfesti
Hæstiréttur úrskurð héraðsdóms
um að ákærði yrði sviptur öku-
réttindum í þrjú ár. ■
Gæsluvarðhald:
Staðfest í
Hæstarétti
ÚRSKURÐUR Gæsluvarðhaldsúr-
skurður yfir manni á þrítugsaldri
var staðfestur í Hæstarétti í gær.
Maðurinn var dæmdur í sex
ára fangelsi í Héraðsdómi
Reykjaness í byrjun júlí fyrir inn-
flutning fíkniefna. Hann áfrýjaði
dómnum og bíður þess að málið
verði tekið fyrir í Hæstarétti.
Manninum er gert að sæta gæslu-
varðhaldi til 12. desember nema
Hæstiréttur dæmi í máli sínu fyr-
ir þann tíma. Hann hefur verið í
gæsluvarðhaldi í rúmlega hálft
annað ár. ■