Fréttablaðið - 31.10.2003, Blaðsíða 14
14 31. október 2003 FÖSTUDAGUR
TYRFT Í KULDANUM
Snjórinn, hálkan og kuldinn gerði vart við
sig á höfuðborgarsvæðinu í gær. Það kom
þó ekki í veg fyrir að unnið væri að tyrf-
ingu en vinnugallinn er vissulega hlýlegri
en áður.
ALÞINGI Fimm þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins hafa lagt fram
þingsályktunartillögu þar sem
farið er fram á að dómsmálaráð-
herra skipi nefnd sem á að
kanna hvort rétt sé að tryggja
með lögum rétt hjóna til hlut-
deildar í lífeyrisrétti maka við
skilnað.
Í greinargerð með tillögunni
segir að samkvæmt hjúskapar-
lögum geti maki krafist þess við
skipti að áunnin lífeyrisréttindi
hans komi ekki til skipta við
skilnað. Telja þingmennirnir að
það sé álitamál hvort ekki sé
eðlilegra að litið sé á öflun líf-
eyrisréttinda sem eignamyndun,
sem hjón hafi stuðlað að með
ákveðinni verkaskiptingu.
Vilja þingmennirnir að athug-
að verði hvort rétt sé að breyta
lögum með þeim hætti að skipta
áunnum lífeyrisréttindum með
samningi eða dómi. Það er mat
þingmannanna að ekki sé nægj-
anlegt að sá sem t.d. hefur sinnt
heimili og börnum meginhluta
starfsævi sinnar verði að eiga
það undir góðvild maka síns við
skilnað hvort hann fái hlutdeild í
lífeyrisréttindum hans. Vilja
þingmennirnir að skipuð verði
nefnd til að fara yfir málið og
skili hún skýrslu um það til Al-
þingis 1. desember 2004. ■
Hér með er auglýst að álagningu opinberra gjalda á árinu 2003 er lokið á
alla lögaðila sem skattskyldir eru samkvæmt I. kafla laga nr. 90/2003 sem
og þeirra sem lagt er á í samræmi við VIII. - XIV. kafla tilvitnaðra laga.
Jafnframt er lokið álagningu á lögaðila, sem skattskyldir eru af
fjármagnstekjum samkvæmt ákvæði 4. mgr. 71. gr. laganna.
Álagningarskrár með gjöldum lögaðila verða lagðar fram í öllum
skattumdæmum í dag, föstudaginn 31. október 2003. Skrárnar liggja
frammi til sýnis á skattstofu hvers skattumdæmis og hjá umboðsmönnum
skattstjóra eða á sérstaklega auglýstum stöðum í hverju sveitarfélagi
dagana 31. október til 14. nóvember að báðum dögum meðtöldum.
Skattseðlar, er sýna álögð opinber gjöld lögaðila hafa verið póstlagðir.
Kærur vegna allra álagðra opinberra gjalda 2003 samkvæmt ofangreindu
skulu hafa borist skattstjóra eigi síðar en mánudaginn 1. desember 2003.
Auglýsing þessi er birt samkvæmt ákvæði 1. mgr. 98. gr. laga nr. 90/2003,
um tekjuskatt og eignarskatt.
31. október 2003
Skattstjórinn í Reykjavík, Gestur Steinþórsson.
Skattstjórinn í Vesturlandsumdæmi, Stefán Skjaldarson.
Skattstjórinn í Vestfjarðaumdæmi, Guðrún Björg Bragadóttir.
Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi vestra, Bogi Sigurbjörnsson.
Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi eystra, Gunnar Karlsson.
Skattstjórinn í Austurlandsumdæmi, Karl Lauritzson.
Skattstjórinn í Suðurlandsumdæmi, Hreinn Sveinsson.
Skattstjórinn í Vestmannaeyjum, Ingi T. Björnsson.
Skattstjórinn í Reykjanesumdæmi, Sigmundur Stefánsson.
Auglýsing
um álagningu opinberra gjalda
lögaðila á árinu 2003Ríkisskattstjóri
P P F O R L A G www.ppforlag.isSími: 5687054
PP FORLAG
& MEÐLÆTI
PP FORLAG PP FORLAG
KÍNVERSKIR RÉTTIR
PP FORLAG PP FORLAG
LEIÐBEINANDI ÚTSÖLUVERÐ AÐEINS 990 KR. HVER BÓK!
Fást í öllum betri bókaverslunum.
Fimm þingmenn leggja fram þingsályktunartillögu:
Lífeyrisréttindum
verði skipt við skilnað
SIGRÍÐUR ANNA ÞÓRÐARDÓTTIR
Sigríður Anna er einn af fimm þingmönn-
um Sjálfstæðisflokks sem hafa lagt fram
þingsályktunartillögu um rétt hjóna til hlut-
deildar í lífeyrisréttindum maka við skilnað.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
FUGLALÍF Skipverjar á Bjarti NK
frá Neskaupstað björguðu villtum
ungfálka á dögunum sem var við
það að örmagnast á flugi yfir
Þórsbanka fyrir austan land.
Hann hlaut vist í síldartunnu sem
var hulin trollbúti til að hindra
flótta og var síðan sendur með
flugi til Reykjavíkur.
Fálkinn klaktist út í maí, en
þekkt er að fálkar á fyrsta ári vil-
list út á rúmsjó og leiti ásjár á
skipum. Ólafur Nielsen, fugla-
fræðingur hjá Náttúrufræðistofn-
un, segir stofnunina hafa fengið
fjóra fálka af skipum í haust, en
fálkastofninn telur á fjórða hund-
rað varppara. „Við fáum fjölda
fálka til okkar á hverju ári, bæði
sjúka, villta og olíublauta. Það er
yfirleitt reynt að hjálpa þessum
kvikindum. Ef skipanna nyti ekki
við myndu fleiri villtir fálkar ör-
magnast og falla í sjóinn,“ segir
hann.
Fálkar voru þýðingarmikil út-
flutningsvara fyrr á öldum og
þóttu stöðutákn fyrir heldri menn
sem notuðu þá við veiðar. Lægð í
rjúpnastofninum veldur nú niður-
sveiflu í fálkastofninum en rjúpan
er helsta fæða fálkans. ■
Bjargað frá drukknun á Íslandsmiðum:
Sjómenn fóstr-
uðu ungfálka
FÁLKINN HEPPNI
Villtur ungfálki sem fór hrakförum í haustnepjunni á Ísllandsmiðum leitaði ásjár skipverja
á Bjarti NK. Hann dvelur nú á Náttúrufræðistofnun og verður sleppt fljótlega.
Tóbaksmál:
Frávísun
ógilt
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur ógilt
að hluta, frávísun Héraðsdóms
Reykjavíkur í máli British Amer-
ican Tobacco á hendur ríkinu.
Fyrirtækið krafðist þess að
viðurkennt yrði með dómi að því
væri heimilt þrátt fyrir ákvæði
tóbaksvarnarlaga, að hafa tóbak
eða vörumerki tóbaks sem það
flytur inn sýnilegt viðskiptavin-
um á útsölustöðum. Héraðsdómur
vísaði þessu frá en ber nú að taka
þetta til efnismeðferðar.
Hæstiréttur staðfesti frávísun
á þeim lið kröfunnar að tóbaksfyr-
irtækinu væri heimilt að fjalla um
vörur sínar í fjölmiðlum. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M