Fréttablaðið - 31.10.2003, Síða 16
16 31. október 2003 FÖSTUDAGUR
NORÐUR-KÓRESKIR BÆNDUR
Norður-Kóreumenn standa frammi fyrir
gífurlegum matarskorti í vetur vegna upp-
skerubrests. Matvæla- og landbúnaðar-
stofnun Sameinuðu þjóðanna hvetur al-
þjóðasamfélagið til að koma landinu til
aðstoðar.
Liechtenstein getur notið góðs af samningum Sviss:
Hótun sem verður
að taka alvarlega
EVRÓPUMÁL „Það sem gerir málið
alvarlegt er að Liechtensteinar
hafa ekki sömu hagsmuni af EES-
samningnum og Ísland og Noreg-
ur. Þeir ættu að geta stokkið á tví-
hliða samninga Sviss við Evrópu-
sambandið í staðinn,“ segir Eirík-
ur Bergmann Einarsson, stjórn-
málafræðingur við Háskóla Ís-
lands, um óvissuna sem ríkir um
staðfestingu á stækkun EES-
samningsins. „Hagsmunir Liecht-
ensteins eru allt aðrir en okkar og
þess vegna verðum við að taka
þessa hótun alvarlega.“ Eiríkur
segir þetta ekki einu töfina í
stækkunarferlinu. „Við vorum
orðin allt of sein fyrir út af vand-
ræðunum með samningana um
fjárframlög sem voru komin með
okkur á ystu nöf.“ Útilokað er að
Evrópusambandið stækki en Evr-
ópska efnahagssvæðið ekki, segir
Eiríkur. „Það er ekki hægt að
beita ólíkum viðskiptareglum inni
í sjálfu Evrópusambandinu, þar
með yrði EES-samningurinn kom-
inn í algert uppnám.“ Hann segir
einn möguleika í stöðunni ef
Liechtensteinar gefa ekki eftir.
Hún sé að Ísland og Noregur leit-
ist eftir því að EES-samningurinn
stækki gagnvart þeim ríkjum en
Liechtenstein verði skilið eftir.
Hins vegar sé óvíst hvernig Evr-
ópusambandið tæki því. ■
TÖLVUVEIRA Tölvufyrirtæki hafa
varað við nýjum tölvuormi sem nú
herjar á tölvur sem keyra á
Windows-stýrikerfinu, Windows
2000, 95, 98, NT og XP. Ormsins,
sem ber nafnið Sober, varð fyrst
vart fyrir réttri viku en hann dreif-
ir sér mjög hratt um Netið, einkum
í Þýskalandi og Bretlandi. Þess er
skammt að bíða að hann berist til
annarra landa. Óttast er að Sober
verði jafn útbreiddur og Sobig-
ormurinn sem hrelldi Windows-
notendur í ágúst í sumar.
Ormurinn dreifir sér með tölvu-
pósti, sækir öll netföng á tölvu við-
komandi og sendir síðan tölvupóst
á þau öll. Pósturinn lítur út fyrir að
vera viðvörun frá veiruvarnafyrir-
tækjum en í honum er falinn texti
sem lofar höfund Sobig-ormsins.
Líkt og aðrir tölvuormar er
Sober falinn í viðhengi tölvupósts
og þarf að opna viðhengið til þess
að hleypa orminum í stýrikerfið.
Hægt er að sækja tól til að út-
rýma orminum á vefsíðuna
www.symantec.com ■
MALASÍA, AP Árásum á sæfarendur
hefur fjölgað verulega á þessu ári
og hvetur Alþjóða siglingamála-
stofnunin yfirvöld um allan heim
til að herða baráttuna gegn sjó-
ræningjum.
Á fyrstu níu mánuðum ársins
voru gerðar 344 árásir á skip á
siglingu, 27% fleiri en á sama
tímabili á síðasta ári. Tuttugu sæ-
farendur voru drepnir, flestir á
Filippseyjum og úti fyrir strönd-
um Bangladess. Árið 2002 voru
aðeins sex myrtir. Særðum fjölg-
aði úr 28 í 61 og gíslum úr 176 í
221. Sæfarendur eru í mestri
hættu í Indónesíu en þar voru
framin 87 sjórán á fyrstu níu mán-
uðum ársins.
Afar sjaldgæft er að sjóræn-
ingjar séu handteknir og dregnir
fyrir rétt. ■
Björgólfur Thor:
Í hópi
fyrirmenna
VIÐSKIPTI Björgólfur Thor Björg-
ólfsson, stjórnarformaður Pharm-
aco Group, er á meðal þeirra sem
ræða um áskoranir fyrir lönd í
Suðaustur-Evrópu í evrópsku við-
skiptaumhverfi á stórri ráðstefnu í
Sófíu, höfuðborg Búlgaríu, í næstu
viku.
Björgólfur situr í pallborði með
átta öðrum, m.a. forseta og forsæt-
isráðherra Búlgaríu, forseta Svart-
fjallalands og leiðandi mönnum í
búlgörsku efnahagslífi og alþjóð-
legum fjárfestingasjóðum. ■
DÆMI UM YFIRSKRIFT
TÖLVUPÓSTS SEM INNIHELDUR
SOBER-ORMINN
New internet virus!
You send spam mails (Worm?)
Sorry, Ive become your mail
Viurs blocked every PC (Take care!)
New Sobig-Worm variation (please read)
A worm is on your computer!
Surprise
Back At The Funny Farm
I love you (Im not a virus!)
Varað við nýjum ormi á Netinu:
Sober sækir
í Windows
Þingsályktunartillaga:
Kanna á
stöðu hjóna
ALÞINGI Lögð hefur verið fram
þingsályktunartillaga sem felur í
sér að skipuð verði nefnd sem
kanna eigi stöðu hjóna og sambúð-
arfólks með börn á sínu framfæri
með tilliti til skatta, almannatrygg-
inga og félagslegrar aðstoðar.
Tillagan, sem lögð er fram af
fimm sjálfstæðismönnum, á að
kanna hvort brögð séu að því að
fólk skilji eða slíti sambúð til mála-
mynda til að njóta fjárhagslegs
hagræðis í kerfinu. Nefndin, sem á
að skila af sér í desember á næsta
ári, á líka að kanna hvernig styrkja
megi stöðu hjóna og sambúðar-
fólks í framangreindu tilliti. ■
EIRÍKUR BERGMANN EINARSSON
Það er skrýtið að tengja saman tvö lönd í
Norður-Evrópu og hálfan dal í Mið-Evrópu.
Alþjóða siglingamálastofnunin:
Varað við
sjóræningjum
BRUNI Eldur kviknaði í veiðar-
færageymslu við Grandagarð um
hádegið í gær. Slökkvilið frá
tveimur stöðvum réðu niðurlög-
um eldsins á tæplega klukkutíma.
Eldsupptök eru óljós.
„Í fyrstu héldum við að fólk
væri inni og að hér væri verbúð
þar sem sofið væri í. Fólk sem
kom hér að úr nágrenninu sagðist
halda að aðeins væri um vinnu-
búðir að ræða,“ segir Þórir Stein-
arsson, útivarðstjóri hjá slökkvi-
liðinu. Í húsinu reyndist vera
bæði veiðarfærageymsla og fisk-
vinnsla. Fjórir reykkafarar fóru
inn til að ráða niðurlögum eldsins.
Þórir segir að í fyrstu hafi þeir
haldið að eldurinn stafaði af
reykofni sem var þar inni. Eldur-
inn reyndist hins vegar loga að
mestu í fiskikari sem stóð innar-
lega í húsinu og hafði náð að læsa
sig í netadræsur sem lágu ofan á
fölsku lofti. Húsið er nokkuð
skemmt af reyk.
Fiskbúð Hafliða er með að-
stöðu í þeim helmingnum sem
fiskurinn var í og var verið að
kæsa þar tæplega sex tonn af
skötu. Að sögn Þorkels Hjaltason-
ar, eins eiganda fiskbúðarinnar, er
víst að einhver hluti fisksins sé
skemmdur. Hins vegar hafi aðeins
farið reykur inn í þann hluta og
lítill hiti verið, og því eigi eftir að
koma betur í ljós hversu mikið sé
skemmt. ■
GRANDAGARÐUR
Fjórir reykkafarar fóru inn til að ráða niðurlögum eldsins.
Slökkviliðið var kallað út að Grandagarði:
Eldur logaði
í veiðarfæra-
geymslu