Fréttablaðið - 31.10.2003, Qupperneq 18
18 31. október 2003 FÖSTUDAGUR
TÍBETSK FEGURÐ
Karl Bretaprins ræddi við tvær fegurðar-
drottningar þegar hann heimsótti samfélag
Tíbeta í Nýju Delí. Prinsinn er í níu daga
opinberri heimsókn á Indlandi.
Happdrætti Háskóla Íslands og Íslandsspil:
Tekjur vegna spilakassa 7,4 milljarðar
ALÞINGI Tekjur Íslandsspils og
Happdrættis Háskóla Íslands af
söfnunarkössum og happdrættis-
vélum í fyrra námu tæpum 2,6
milljörðum króna samanborið við
2,5 milljarða árið 2001 og tæpa 2,3
milljarða árið 2000.
Á þremur árum nema tekjur
vegna spilakassa því um 7,4 millj-
örðum króna. Þetta kemur fram í
svari Björns Bjarnasonar dóms-
málaráðherra við fyrirspurn Rann-
veigar Guðmundsdóttur, þing-
manns Samfylkingarinnar. Heildar-
gjöld fyrirtækjanna af rekstrinum
námu rúmum 900 milljónum króna.
Í svari ráðherra er vakin athygli á
því að þeir peningar sem spilað er
fyrir kössunum og eru greiddir út á
staðnum eru ekki innleystir sem
tekjur í bókhaldi, né eru vinningar
gjaldfærðir.
Rannveig spurði um heildarvinn-
ingsfjárhæðir hvors fyrirtækis.
Ekki fengust upplýsingar um það
hjá Íslandsspilum en hjá Happ-
drætti Háskóla Íslands nam upp-
hæðin um 280 milljónum króna og
er þá einungis um að ræða greiðslu
úr gull- og silfurpottum Gullnámu
Happdrættis Háskóla Íslands.
Íslandsspil aflar fjár til reksturs
SÁÁ, Slysavarnafélagsins Lands-
bjargar og Rauða kross Íslands. ■
STJÓRNMÁL Formaður breska
Íhaldsflokksins hefur verið
felldur af stalli enn eina ferðina.
Ólíkt því sem áður hefur gerst,
stefnir í að forystumenn komi
sér saman um arftaka. Allt bend-
ir til þess að Michael Howard, 62
ára gamall lögfræðingur og
fyrrum innanríkisráðherra,
verði næsti formaður flokksins.
Þungavigtarmenn í flokknum
hafa einn af öðrum lýst því yfir
að þeir ætli ekki að bjóða sig
fram á móti Howard. Framboð-
um má skila fram til 6. nóvem-
ber og gert er ráð fyrir að kjöri
nýs formanns verði lýst 11. nóv-
ember.
Hlutirnir hafa gerst hratt eft-
ir að þingmenn flokksins lýstu
vantrausti á Iain Duncan Smith
fráfarandi formann. Af 165 þing-
mönnum studdu 75 Duncan
Smith en 90 studdu vantraust.
Fyrsti til að leiða flokkinn
ekki í kosningum
Duncan Smith barðist fram í
það síðasta og var með miklar
yfirlýsingar um að hann væri
maðurinn sem myndi leiða
Íhaldsflokkinn inn í næstu kosn-
ingar. Hann tapaði og verður
fyrir vikið fyrsti formaður
Íhaldsflokksins sem ekki fær að
leiða flokk inn í kosningar. Hann
sætti mikilli gagnrýni allt frá
því hann tók við embætti þegar
hann sigraði keppinauta sína í
formannsslag árið 2001. Hann
reyndi að spila veikleikum sín-
um upp í styrkleika og kallaði
sig sjálfan hljóðláta manninn í
breskum stjórnmálum. Þannig
mistókst honum að ná eyrum al-
mennings.
Bent hefur verið á að Duncan
Smith hafi mistekist við að
skipuleggja flokksstarf, við
stefnumótun og við að koma
málstað flokksins á
framfæri. Þolinmæðin
fyrir honum var á þrot-
um og þegar upp
komst að hann hefði
ráðið eiginkonu sína sem ritara,
var mælirinn fullur. Tuttugu og
fimm þingmenn fóru fram á það
bréflega að atkvæði yrðu greidd
um vantraust, sem hann síðan
tapaði. Margir virðast hafa stutt
hann í orði á meðan þeir lögðu
drög að nýrri forystu á bak við
tjöldin.
Strax eftir að tilkynnt var um
úrslit í atkvæðagreiðslunni
komu menn sem þóttu líklegir til
að taka við af Duncan Smith
fram og sögðust ekki ætla í
framboð og myndu fylkja sér á
bak við framboð Howards. Allt
bendir því til þess að maðurinn
sem lýsti því yfir fyrir minna en
ári að hann myndi aldrei stefna í
formannskjör í Íhaldsflokknum
verði formaður.
Glæsileg endurkoma
Endurkoma Howards er
glæsileg. Hann var sá ráðherra
Íhaldsflokksins sem naut
minnstra vinsælda þegar flokk-
urinn hrökklaðist frá völdum eft-
ir stórtap í kosningunum 1997.
Hann hafði þá staðið í
ströngu sem innanrík-
isráðherra. Í for-
mannskjörinu 1997
eftir að John Major
sagði af sér, varð Howard neðst-
ur en William Hague vann.
Þegar Iain Duncan Smith tók
við sótti hann Howard og gerði
hann að skuggaráðherra í fjár-
málum. Þar hefur hann átt marga
spretti í sennum við Gordon
Brown í kappræðum um evruna.
Þannig hefur hann sýnt einna
mestan lit þingmanna á breska
þinginu á kjörtímabilinu á meðan
Duncan Smith átti í vandræðum
með að koma Tony Blair í vand-
ræði í vikulegum kappræðum
þeirra á þinginu. Það var nokkuð
sem Hague tókst í það minnsta
vel.
Nái Howard kjöri eins og flest
bendir til, verður það ekki í fyrs-
ta sinn sem hann mætir Tony Bla-
ir í þinginu. Þá voru þeir í öðrum
hlutverkum því þegar Howard
var innanríkisráðherra var það
Tony Blair sem var í skuggaráðu-
neyti Verkamannaflokksins, þá í
stjórnarandstöðu. ■
ÞRETTÁN ÞORPSBÚAR MYRTIR
Uppreisnarmenn gerðu árás á
þorp í norðanverðu Úganda og
myrtu þrettán óbreytta borgara.
Að sögn vitna bundu árásarmenn-
irnir hendur fórnarlambanna og
börðu þau til ólífis með kylfum.
Uppreisnarmennirnir námu ein-
nig fjölda þorpsbúa á brott með
sér. Uppreisnarmennirnir hafa
háð blóðuga baráttu gegn Yoweri
Museveni forseta síðan hann
komst til valda árið 1986.
MANNSKÆTT RÚTUSLYS 21 mað-
ur fórst og fjórtán slösuðust þeg-
ar rúta lenti í árekstri við flutn-
ingabíl á þjóðvegi í Suður-Afríku.
36 farþegar voru um borð í rút-
unni. Orsakir slyssins eru ókunn-
ar en grunur leikur á því að bíl-
stjóri annars ökutækisins hafi
sofnað undir stýri.
Eitthva› fyrir alla!
BARNABÆKUR • ÆVISÖGUR • SPENNUSÖGUR
SJÁLFSHJÁLPARBÆKUR • LJÓÐ • DULRÆNT EFNI
MATREIÐSLUBÆKUR • SKÁLDSÖGUR •
ÞJÓÐLEGUR FRÓÐLEIKUR • HESTABÆKUR •
ÁSTARSÖGUR • SPENNUSÖGUR O.FL .
Grensásveg i 14 - bakhús • 108 Reyk jav ík • S ími : 588-2400
Fax: 588 8994 • Net fang: sk ja ldborg@sk ja ldborg . is
BÓKAÚTGÁFA
OPIÐ:
9-18 virka daga
10-17 laugardaga
13-17 sunnudaga
Michael Howard
á beinu brautinni
Breskir íhaldsmenn felldu formann sinn í atkvæðagreiðslu þingmanna. Þeirra bíður nú það
verkefni að finna nýjan leiðtoga. Margir telja hann fundinn í gervi fyrrverandi ráðherra.
FALLINN
Iain Duncan Smith, fráfarandi leiðtoga breskra íhaldsmanna, virtist brugðið þegar úrslit at-
kvæðagreiðslu meðal þingflokksins lágu fyrir. Smith mun gegna formennsku í flokknum
þar til kjöri nýs formanns hefur verið lýst, í síðasta lagi 11. næsta mánaðar.
ARFTAKINN?
Flestir eru á því að Michael Howard, þing-
maður breska Íhaldsflokksins, taki við for-
mennskunni af Iain Duncan Smith þótt yf-
irlýsingar Howards fram til þessa bendi til
annars.
■ Afríka
SPILAKASSASALUR
Ekki fengust upplýsingar frá Íslandsspilum
um heildarvinningsfjárhæðir. Myndin er
sviðsett.
Fréttaskýring
KRISTJÁN GUY BURGESS
■ fjallar um leiðtogakjör
breskra íhaldsmanna
ÚRSLITIN
Duncan Smith áfram 75
Duncan Smith burt 90
Kynferðisglæpamenn:
Verði með
ljósin slökkt
TEXAS, AP Yfirvöld í þremur sýsl-
um í Texas hafa skipað kynferð-
isglæpamönnum að halda sig
heima með ljósin slökkt á
hrekkjavökunni.
Menn sem dæmdir hafa verið
fyrir kynferðisbrot gegn börn-
um og eru á skilorði verða að
vera komnir heim fyrir klukkan
sex og hafa ljósin slökkt allt
kvöldið. Þeir mega ekki fara til
dyra ef einhver bankar upp á.
Lögreglumenn munu fylgjast
með því að þeir hlýði þessum
fyrirskipunum.
Á hrekkjavökunni fara banda-
rísk börn í grímubúninga og
ganga á milli húsa til að safna
sælgæti. Ákvörðun yfirvalda
hefur að sögn fengið góð
viðbrögð foreldra sem telja bör-
num sínum betur borgið. ■