Fréttablaðið


Fréttablaðið - 31.10.2003, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 31.10.2003, Qupperneq 26
26 31. október 2003 FÖSTUDAGUR ■ Andlát Indira Gandhi, forsætisráðherraIndlands, var myrt í Nýju Delhi á þessum degi fyrir 19 árum. Hún er sögð hafa verið á vappi um garð- inn sinn þegar hún var skotin. Fljótlega var hún flutt á sjúkrahús og þar fór hún í erfiða skurðaðgerð en lést einum og hálfum tíma síðar. Í fyrstu var talið að morðingj- arnir hafi verið tveir af lífvörðum hennar og að þeir hafi verið skotn- ir af öðrum öryggisgæslumönnum. En það reyndist ekki satt og þótt lítið væri vitað um ástæður fyrir morðinu beindust böndin fljótlega að öfgahópnum Sikh sem tengdist Gullna musterinu en á það hafði verið ráðist í júní sama ár. Síðan árásin átti sér stað höfðu margar morðhótanir borist Indiru en 1000 manns dóu í árásinni á Gullna musterinu. Í kjölfar morðsins á Indiru Gandhi brutust út óeirðir í landinu og margir þeir sem aðhyllast Hindú-trú réðust til atlögu gegn hinum Sikhs trúuðu. Tala látinna í þessum óeirðum er líklega um 1000 en herinn neyddist til að ryðj- ast inn í borgirnar og stöðva út- breiðslu ólátanna. Sonur Gandhi, Rajiv Gandhi, varð svo forsætisráðherra í des- ember 1984 en sjálfur lést hann af völdum sjálfsmorðsárásar í maí 1994. ■ Ámorgun, laugardag klukkan 13hefur Hundaræktarfélag Ís- lands skipulagt árlega göngu hunda og manna niður Laugaveg. Gengið verður frá Hlemmi að Ráðhúsinu í Reykjavík og verður lagt af stað frá Hlemmi kl. 13.30. Allar líkur eru á að mikill fjöldi manna og hunda mæti og hundar af öllum stærðum og gerðum verði á ferli í miðbænum í tengslum við gönguna. Hanna Björk Kristins- dóttir hjá HRFÍ segir að alla jafna sé bannað að vera með hunda á Laugaveginum en Hundaræktarfé- lagið hefur fengið leyfi til göngunn- ar hjá yfirvöldum og Þróunarfélagi miðborgarinnar. „Stolt félagsins, unglingadeild HRFÍ, mun leiða gönguna auk þess sem hljóðfæra- leikarar hafa verið fengnir til að slá taktinn fyrir okkur. Því má reikna með mikilli stemningu í miðbænum og eru allir hundaeigendur hvattir til að mæta með hunda sína,“ segir Hanna Björk. En það verður ekki bara stemn- ing á Laugavegi því Suðurnesingar og Akureyringar ætla að hefja göngu á sama tíma. Svæðafélagið á Akureyri hefur göngu sína við Umferðarmiðstöð- ina í Hafnarstræti og á sama tíma verður lagt af stað frá pósthúsinu í Keflavík. Ekki þarf að taka fram við ábyr- ga hundaeigendur að vera með poka meðferðis. ■ Hundaganga REYKJAVÍK ■ Hundaeigendur ætla að ganga saman niður Laugaveg á morgun, Hundaganga niður Laugaveg Guðmundur Árni Stefánsson al-þingismaður á afmæli í dag og fagnar deginum í miklum mannfjölda á Landsfundi Sam- fylkingarinnar í Haukahúsinu í Hafnarfirði. „Fundurinn ber upp á afmælisdaginn minn og það má segja að í afmælinu verði yfir þúsund manns,“ segir hann hlæj- andi en Guðmundur á enn tvö ár í fimmtugt. Fundurinn verður settur klukkan 4 síðdegis og játar Guð- mundur að hann hlakki mikið til. „Það er alltaf gaman að eiga af- mæli en enn skemmtilegra verður að taka þátt í fundinum. Þetta er eins og eitt stórt ættarmót þegar fólk hittist hvaðanæva af landinu og ánægjulegt að hitta fólk sem maður hefur ekki hitt um tíma,“ segir hann Á fundinum verður ýmislegt rætt fyrir utan að kjósa formann og varaformann en um það virðist ríkja einurð og ekki við neinum átökum að búast. „Við gerum upp kosningarnar, leggjum línurnar fyrir framtíðina og án efa verða Evrópumálin í brennidepli. Þetta er fyrsta þing eftir kosningar og um margt að ræða. Það er oftast tekið hressilega á en oftast er þetta á mjúku nótunum,“ segir Guðmundur sem man tímana tvenna og hefur setið ófá þingin. Guðmundur segir að vanalega fái hann eitthvað lítilsháttar í af- mælisgjöf frá sínu fólki en það tíðkist ekki að gefa neinar stór- gjafir á svona afmælum. „Mér finnst ógurlega gaman að eiga af- mæli og um að gera að varðveita krakkann í sjálfum sér sem lengst og leyfa sér það,“ segir hann hlæj- andi og bætir við að það verði ekki fyrr en seint um kvöldið sem hann geti drukkið afmæliskaffið með fjölskyldunni. Íþróttirnar hafa lengi átt hug Guðmundar allan og drengirnir hans þrír leggja allir stund á fót- bolta og spila og æfa með FH. „Ég slaka á með því að vera formaður knattspyrnudeildar FH og hef óg- urlega gaman að vesenast í því og það er hvíld frá daglegu amstri um leið. Sjálfur er ég ekkert að sprikla lengur, fikta í golfi þegar tími gefst til en er meðaljón í því,“ segir Guðmundur Árni en hann er einnig fastagestur Bókasafns Hafnarfjarðar og les hvað sem fyrir augu ber. MICHAEL LANDON Afmælisbarn dagsins lék í Húsinu á slétt- unni og hreiðraði um sig í hjörtum land- ans. Hann fæddist 1936 en lést 1991, þá aðeins 55 ára. 31. október ■ Þetta gerðist 1955 Margrét Bretaprinsessa lýsti því yfir að hún ætlaði ekki að giftast manninum sem hún elskaði, honum Peter Townsend, en heimurinn hafði beðið í margar vikur eftir því að fá að vita hvort systir drottningarinnar myndi voga sér að giftast alþýðumanni. 1961 Lík Stalíns var fjarlægt úr grafhýsi Leníns. 1963 Sugar Shack með Jimmy Gilmer & The Fireballs er á toppi banda- ríska listans. 1993 Rapparinn Tupac Shakur var handtekinn grunaður um að hafa skotið tvær löggur sem voru í helgarfríi í Atlanta. Hann bar við sjálfsvörn og vann málið. 1997 Louise Woodward, breskur au pair, er dæmd sek um morð á barni sem hún átti að gæta hjá bandarískri fjölskyldu. INDIRA GANDHI Hér vígir Indira nýjar skrifstofur forsætis- ráðuneytisins í september 1981 en hún lést þremur árum síðar. INDIRA GANDHI ■ Á þessum degi fyrir tæpum tveim ára- tugum var forsætisráðherra Indlands myrt. Sonur hennar tók við og dó 10 árum síðar í sjálfsmorðsárás. 31. október 1984                   !                       !"#                !" # #  $  $%&   #     '       (  "## )#  '*    + ',-.' -/0   1    2   #2  3     %    &  '()  * !  +   ' / 450 ARTIC TRUCKS er endursöluaðili PIAA PIAA LJÓSKASTARAR FYRIR ALLAR GERÐIR BIFREIÐA LAUSNIN ER LJÓS HUNDAR AF ÖLLUM TEGUNDUM Þeir sem ekki eiga hunda en langar í þá ættu að ganga með niður Laugaveginn og upplifa gleði og ánægju hunda og manna. Afmæli GUÐMUNDUR ÁRNI ■ Eyðir afmælinu með yfir þúsund jafnaðarmönnum í íþróttarhúsi Hauka í Hafnarfirði Þúsund manna afmæli GUÐMUNDUR ÁRNI STEFÁNSSON Hann viðurkennir að hafa gaman af af- mælum og öllum veislum hvort sem er hans eigin eða annarra. Indira Gandhi skotin Steinþór Eyþórsson veggfóðrari og dúkalagningameistari, Víðilundi 7, Garðabæ, lést mánudaginn 27. október. Carla Ingeborg Halldórsdóttir síðast til heimilis í Seljahlíð, Hjallaseli 55, Reykja- vík, lést laugardaginn 18. október. Gunnar Hjörtur Björgvinsson frá Pat- reksfirði, lést þriðjudaginn 28. október. Esther Jónsdóttir lést mánudaginn 27. október í Utha. Haukur Ingason Hlíðarvegi 5, Ytri-Njarð- vík, lést þriðjudaginn 28. október. Erik Stig Henriksen Nordborg, Dan- mörku, verður jarðsunginn Klausturkirkj- unni í Horsens í Danmörku. 10.30 Sigríður Jónsdóttir Heiðarlundi 3G, Akureyri, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju. 13.30 Kristján Bergur Kristjánsson Brikihvammi, Kópavogi, áður Smárahvammi, verður jarðsung- inn frá Digraneskirkju. 13.30 Gísli Angantýr Magnússon frá Langabotni, Geirþjófsfirði, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík. 13.30 Kristinn Óli Kristinsson bifreiða- smiður, Torrevieja, Spáni, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju. 13.30 Ásta Margrét Magnúsdóttir verð- ur jarðsungin frá Fossvogskirkju. 13.30 Gudmund Knutsen dýralæknir, Fjólugötu 3, Akureyri, verður jarð- sunginn frá Akureyrarkirkju. 14.00 Margrét Einarsdóttir dvalarheim- ilinu Höfða, áður Einigrund 28, verðu jarðsungin frá Akranes- kirkju. 14.00 Jóhann Kjartan Björgvinsson frá Grænuhlíð í Reyðarfirði, verður jarðsunginn frá Reyðarfjarðar- kirkju. 14.00 Jóhann Gunnar Friðriksson Hólabraut, Keflavík, frá Látrum í Aðalvík, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju. 15.00 Jóhanna R. Kristjánsdóttir frá Ísafirði, Kaplaskjólsvegi 29, Reykjavík, verður jarðsungin frá Neskirkju. ■ Jarðarfarir ■ Tilkynningar Fréttablaðið býður lesendum aðsenda inn tilkynningar um dánarfregnir, jarðarfarir, afmæli eða aðra stórviðburði. Tekið er á móti tilkynningum á netfangið tilkynningar@frettabladid.is. Ef óskað er eftir jarðarfarar- eða andlátsauglýsingu má senda texta í slíkrar auglýsingar á auglysingar@frettabladid.is.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.