Fréttablaðið - 31.10.2003, Page 28

Fréttablaðið - 31.10.2003, Page 28
Veitingamaðurinn í Alþjóðahús-inu við Hverfisgötu heitir Murat Özkan og kemur frá Tyrk- landi. Hann fæddist í Istanbúl og bjó þar þangað til fyrir átta árum að hann kynntist íslenskri konu og flutti til Íslands. Murat býður upp á veitingar í Alþjóðahúsinu alla daga og öll kvöld vikunnar. „Við erum með lifandi tónlist á kvöldin og húsið er mjög vel sótt, en þó kemur mun meira af Íslendingum en ný- búum,“ segir Murat, á mjög góðri íslensku. Honum fannst sú ákvörðun að flytja til Íslands ekki erfið, þó vissulega sakni hann fjölskyldu og vina í Istanbúl. „Ísland er frábært land og ekki erfitt. Í Istanbúl, sem er 15 millj- óna borg, er mikil velmegun, en líka mikið atvinnuleysi og fátækt. Á Íslandi er ekki erfitt að finna vinnu ef fólk vill vinna á annað borð,“ segir Murat. Það sem honum hefur þótt skrýtnast við nýjar aðstæður er að hér eru engar moskur. „Þó ég sé ekki strangtrúaður múslimi og fari ekki mikið í moskur í Tyrklandi, er það samt svo stór hluti af menn- ingu okkar að heyra öldungana kalla til bænagjörða. En Tyrkland hefur breyst mikið og er orðið miklu vestrænna en það var. Það er alveg óhætt að tala um nýja kyn- slóð af Tyrkjum,“ segir Murat. Hvað matarvenjur Tyrkja varðar segir Murat að Tyrkir eldi mikið heima. „Við borðum nær eingöngu kalda grænmetisrétti með ólífuolíu á sumrin, en á vet- urna eru eldaðir sætir mjólkur- grautar og búðingar og mikið kjöt og þá helst lambakjöt. Tyrkir nota líka mikið krydd, en þó ekkert sérstaklega sterkt. Helstu krydd- in eru kúmen, oregano og minta, og svo auðvitað salt og pipar.“ Murat gefur lesendum upp- skrift að tyrknesku garð-kebabi. edda@frettabladid.is matur o.fl. Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um mat og drykk Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: matur@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is Tyrkneskur veitingamaður í Alþjóðahúsinu: Lambakjöt vinsælasta kjötið GARÐ-KEBAB AÐ TYRKNESKUM HÆTTI 2 stk. eggaldin 500 g lambagúllas 1 laukur 10-12 stk. sveppir 3-4 tómatar 2 stk. pepperóní-paprikur 2 tsk. olía salt, pipar og oregano ostur hrísgrjón eða búlgur (fæst í Heilsuhúsinu) Eggaldinin skorin í þriggja sentímetra sneiðar og djúpsteikt í um það bil þrjár mínútur. Það gerir aldinið mjúkt. Gúllasið, laukurinn, sveppirnir, tómatarn- ir og paprikan steikt í olíunni og kryddað með salti og pipar. Opn- ið eggaldinin með matskeið og fyllið með kjötinu. Osturinn rif- inn yfir og steikt í ofni í 10-12 mínútur. Borið fram með hrísgrjónum eða búlgum. Faxe Festbock er bragðmikill,sterkur dökkur bjór, ein 7,7%. Hann hefur verið þróaður um ald- ir samkvæmt danskri brugghefð með bestu fáanlegu hráefnum: byggi, humlum og að sjálfsögðu vatn úr einkalindum Faxe, þar sem vatnið hefur fengið sín ein- kenni úr fornum kóralrifum undir Sjálandi í Danmörku. Faxe Fest- bock er bruggaður samkvæmt þýsku hreinleikalögunum frá 1516, Der Deutsche Reinheitsge- bot. Bragðið er vel fyllt og með miklum maltkeim. Litur er dökk- brúnn. Faxe Festbock á að drekka við kjallarakulda, rétt ofan við frostmark til að ná fram bestu bragðeinkennum þessa mikla mjaðar. Faxe Festbock fæst í 50 cl dósum í flestum Vínbúðum og kostar 299 kr. ■ MURAT ÖZKAN OG ENES Bjóða gestum Alþjóða- hússins upp á exótíska rétti Faxe Festbock: Helkaldur sterkur danskur FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M Sítróna Sítrónur eiga rætur sínar að rekja til Indlands og Malasíu og bárust til Grikklands og Rómar. Sítrónur bárust til Vestur-Evrópu með krossförum á miðöldum. Þær voru taldar til ýmissa hluta nytsamleg- ar, meðal annars til að gera varir rauðar. Sítrónur eru í dag aðallega notaðar í matargerð ýmis konar. Þær eru c-vítamínríkar eins og aðrir sítrusávextir. ■ Jólaævintýrið hefst 27. nóvember Borðapantanir eftir kl. 14 í síma 551 9555 www.argentina.is N Ý R M A T S E Ð I L L restaurant bar take-away Sólin rís í austri Nýr veitingastaður Aðalstræti 12 sushi, salöt, misósúpur, curries, núðlur og grillréttir opið í kvöld frá kl.17.30 Villibráð Villibráðarkvöld verður þann 8. nóvember á Hótel Ólafsvík og dansleikur um kvöldið. Verð með gistingu í tveggja manna herbergi kr. 8.500 á mann. Pantanir í síma 430 1650 Hótel Ólafsvík Villibráðarkvöld

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.