Fréttablaðið - 31.10.2003, Síða 29
Ostahúsið í Hafnarfirði hefursett á markað nýjan skyrdes-
ert með tveim bragðtegundum,
karamellusósu og súkkulaðisósu.
Skyrdesertinn er bæði fituminni
og kolvetnasnauðari en þeir des-
ertar sem fyrir eru á markaðn-
um.
Skyrdesertinn er því sniðinn
að þeim neysluvenjum sem fólk
tileinkar sér nú í auknum mæli.
Skyrdesertinn er framleiddur
í 90 g og 285 g dósum, sem hentar
minni fjölskyldum. Einnig er des-
ertinn framleiddur í 80 g dósum
fyrir mötuneyti skóla og stofn-
ana. ■
Þetta er erfið spurning því mérfinnst flestur matur góður,“
segir Pétur Einarsson leikari þeg-
ar hann er beðinn að nefna uppá-
haldsmat. „Ég get jafnt notið þess
að borða gufusoðna ýsu og dýrind-
is steikur. En ég held ég nefni
spaghettí bolognese sem ég bý til
sjálfur.“
Pétur segist ekki vera alinn
upp við að gera nokkurn skapaðan
hlut í eldhúsi, en þegar hann full-
orðnaðist voru allt í einu í gangi
kröfur um að hann sýndi lit í eld-
húsinu. „Ég byrjaði á að vaska
upp endrum og sinnum og fikraði
mig svo smátt og smátt út í mat-
reiðsluna.“
Nú er Pétur hinn liðtækasti í
húsverkunum og þegar hann eld-
ar sérréttinn sinn, spaghettí
bolognese, byrjar hann á að steik-
ja hakkið. „Það er nú svo merki-
legt þegar maður steikir íslenskt
hakk að þá fyllist pannan skyndi-
lega af vatni. Vatninu er nefnilega
bætt við þegar búið er að hakka
kjötið og þetta þýðir bara að fyrst
soðnar hakkið í vatninu. Mér
krossbrá einhvern tíma þegar ég
var í Skotlandi að steikja hakk, þá
kom bara ekkert vatn. Ég þurfti
að hafa mig allan við að hreyfa
hakkið á pönnunni svo það brynni
ekki,“ segir Pétur.
Í spaghettíréttinn
notar Pétur svo lauk,
mikið af tómötum,
kjötkraft, léttsteikta
papriku og kraminn
hvítlauk, sem hann
stráir grænmetisalti
yfir og setur út í síðast. „En spag-
hettíið er svo kapítuli út af fyrir
sig. Til að það heppnist sem best
sýður maður vatn með salti og
smjöri. Setur svo spaghettílengj-
urnar út í og passar vel upp á þær.
Þær mega hvorki vera of harðar
eða slepjulegar.“ ■
29FÖSTUDAGUR 31. október 2003
Uppáhaldsmaturinn:
Má hvorki vera hart né slepjulegt
Vín vikunnar
GRAND HÓTEL REYKJAVÍK býður til jólahátíðar með sérstakri
hátíðarstemningu og ilmandi jólahlaðborði. Við bjóðum glæsileg
salarkynni fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
B o r ð a p a n t a n i r í s í m a 5 1 4 8 0 0 0
GRAND JÓL – Föstudags-,
laugardags- og sunnudagskvöld
og í hádeginu á föstudögum.
Glæsilegt og ilmandi jólahlaðborð
í anda íslenskra jóla.
Trió Grande leikur undir borðhaldi og létta danstónlist á eftir.
Gunnar Páll leikur ljúfa tónlist í Brasserie.
Alsace-svæðið skiptist upp ítvö svæði: Bas-Rhin og
Haut-Rhin sem er sunnar. Bas-
Rhin gefur af sér léttari og ein-
faldari vín en þetta vín frá Wilm
úr riesling-þrúgunni kemur ein-
mitt frá því svæði. Íslendingar
hafa til langs tíma kunnað að
meta vínin frá Alsace og er þetta
vín við flestra hæfi.
Fínleg angan af blómum ein-
kennir vínið, það er ávaxtaríkt
þar sem finna má vott af
þroskuðum ferskjum, eplum og
kalki. Lipur stíll í víninu sem
endar í kröftugu og leikandi eft-
irbragði. Það á vel
við sjávarfang og
hentar til að
mynda þetta
klassíska Riesl-
ing ákaflega vel
íslenska skel-
fisknum sem og
fiskréttum ýmiss
konar, sérstak-
lega fiski í
rjómasósum.
Fæst í
Heiðrúnu og
Kringlunni og
kostar 1190 kr. ■
PÉTUR EINARSSON LEIKARI
Orðinn góður kokkur með árunum.
SKYRDESERT FRÁ OSTAHÚSINU
Desertinn er framleiddur í
90 g og 285 g dósum.
Nýr eftirréttur frá Ostahúsinu:
Skyrdesert fyrir nútímafólk
Alþýðlegt Alsace vín
Chateau de Barbe Blanche Lussac Saint-Emilion 1998 kemur frá 28 hektara ekru í
hjarta Lussac Saint Emilion og hefur legið 12
mánuði á eikartunnum, þar af fjórðunginn af
tímanum í nýrri eik sem gefur mikinn kraft.
Í angan býður vínið upp á nettan sveitakeim
með leðri og örlitlum vindlakassa en bragðið
hefur skemmtilegan ávöxt af rauðum berjum,
mikla fyllingu, nett tannín og milt eftirbragð.
Vínið er blandað úr 65% merlot, 25% cabernet
franc og 10% cabernet sauvignon, mjög klass-
ísk Saint-Emilion blanda. Hentar vel með
lambakjöti og ljósu fuglakjöti.
Fáanlegt í flestum stærri Vínbúðum og kost-
ar 1490. ■
Sveitavín frá
Saint Emilion
Wilm Riesling
Vín vikunnar Chateau de Barbe Blanche