Fréttablaðið - 31.10.2003, Síða 31
31FÖSTUDAGUR 31. október 2003
Ævintýradansleikhús barn-anna á Akureyri hefur hafið
starfsemi sína að nýju á haust-
dögum. Þetta er annað árið í röð
sem þær Arna Valsdóttir og
Anna Richardsdóttir standa fyr-
ir námskeiði af þessu tagi fyrir
börn, en þær hafa báðar getið
sér gott orð í listalífinu.
Fjölmörg börn taka þátt í Æv-
intýradansleikhúsi barnanna og
nú þegar hefur hópurinn sett
upp eina sýningu í haust í versl-
unarglugga tískuverslunarinnar
Centro í miðbæ Akureyrar. Það
er eitt af markmiðum Ævintýra-
dansleikhússins, að það sé sýni-
legt almenningi og stuðli að
auknu menningarlífi í miðbæ
Akureyrar. Ráðgert er að vera
með leiksýningar í gluggum
miðbæjarins síðasta föstudag
hvers mánaðar auk þess sem
vegleg jólasýning verður í des-
ember.
Næsta gluggasýning verður í
Pennanum/Bókval á Akureyri
föstudaginn 31. október klukkan
17. ■
s í m i 5 5 3 8 0 5 0 • w w w . e c c o . c o m
ÞURRIR OG HEITIR FÆTUR Í BARNASKÓM FRÁ ECCO
Ecco Kids
73992-3
Stærðir: 27-40
Litir: Svart og silfur
Ecco Kids
70271-3
Stærðir: 22-40
Litir: Svart, vínrautt
og rautt
Ecco Kids
70301-3
Stærðir: 22-40
Litir: Blátt, silfur,
svart og rautt
B æ j a r l i n d 1 - 3 K ó p a v o g i S í m i 5 5 5 6 6 8 8
Nýjar
vörur
haust 2003
!!!
Barnavagnar
Bílstólar
Ömmustólar
Leikföng
Sundföt
Bandarísk forskólabörn eyða aðmeðaltali tveimur tímum á dag
fyrir framan sjónvarps- eða tölvu-
skjái, eða um það bil jafn löngum
tíma og þau eyða í leiki utanhúss.
Þetta kom fram í nýlegri banda-
rískri könnun, en niðurstöður
hennar voru kynntar í vikunni.
Samkvæmt könnuninni er þetta
þrisvar sinnum sá tími sem börnin
lesa eða njóta þess að lesið sé fyrir
þau. Könnunin sýndi einnig fram á
að jafnvel yngstu börnin eru ekki
undanskilin. Tveir þriðju barna
undir tveggja ára aldri sitja við
sjónvarp að minnsta kosti klukku-
stund á dag. Bandarískir uppeldis-
fræðingar eru uggandi um þróun-
ina og benda á að börn undir tvegg-
ja ára ættu ekki að horfa á sjón-
varp yfirleitt.
Aðeins 34% barna sem eru alin
upp á heimilum þar sem sjónvarp-
ið er „alltaf“ eða „oftast“ í gangi
eru læs um sex ára aldur. Könnun-
in leiddi líka í ljós að: Þriðjungur
barna undir sex ára aldri eru með
eigið sjónvarp í herberginu sínu.
Eitt af hverjum fjórum er með
DVD-spilara. 7% barna á þessum
aldri eru með tölvu inni hjá sér.
Fyrri rannsóknir hafa leitt í ljós
að tengsl eru milli sjónvarps- og
tölvunotkunar barna og offitu,
slæmra svefnvenja og ofbeldis-
hneigðar á uppvaxtarárunum.
Samtök uppeldisfræðinga í Banda-
ríkjunum hvetja foreldra til að
stjórna tíma barnanna við skjáinn,
ákveða hvað þau horfa á og reyna
að hvetja þau til annarra athafna,
eins og íþróttaiðkunar eða tónlist-
arnáms. ■
Sögustund:
Búálfur í
Þjóðmenn-
ingarhúsinu
Laugardaginn, 1. nóvember, lesÓlafur Gunnar Guðlaugsson
upp úr bók sinni Höfuðskepnur
Álfheima - Benedikt búálfur. Þetta
er fimmta bók Ólafs um Benedikt
og félaga hans búálfana. Ólafur er
þriðji í röð níu barnabókahöfunda,
sem gefur út bók um jólin og tekur
þátt í Sögustundum sem kenndar
eru við Gevalia-kaffi. Sögustundir
miða að því að hvetja foreldra til að
lesa fyrir börn sín og vekja athygli
á þeirri grósku sem er í ritun ís-
lenskra barnabóka.
Samhliða upplestrinum verða
myndir úr bókinni sýndar.
Sögustundir hefjast klukkan 14 í
Veitingastofunni Matur og Menn-
ing í Þjóðmenningarhúsinu. Boðið
er upp á Gevalia-kaffi , ávaxtasafa
og kleinur, meðan á upplestri
stendur. ■
SÖGUSTUNDIR Í NÓVEMBER
8. nóv. Axel Gunnlaugsson:
Eldgos í garðinum.
15. nóv. Sigrún Eldjárn:
Týndu augun.
22. nóv. Yrsa Sigurðardóttir:
Biobörn.
29. nóv. Brian Pilkington:
Mánasteinar í vasanum.
6. des. Elías Snæland Jónsson:
Valkyrjan.
13. des. Björk Bjarkadóttir:
Leyndarmálið hennar ömmu. Hvað er skemmtilegast að gera?
Hilmir: Að perla.
Gunnhildur Bára: Að byggja úr
duplo-kubbum.
Hvað er leiðinlegt að gera?
Hilmir: Að fara í dúkkó.
Gunnhildur Bára: Mér finnst
leiðinlegast í búðum. Því mömm-
ur eru stundum lengi í búðum og
við nennum ekki að vera lengur
með þeim.
Hvað ætlarðu að verða þegar þú
verður stór?
Hilmir: Töframaður. Ég kann að
gera alls konar spilagaldra.˚
Gunnhildur Bára: Ég veit það ekki.
Hver ræður á Íslandi?
Hilmir: Ólafur Ragnar Gríms-
son.
Gunnhildur Bára: Borgarstjórinn.
Hvað er skemmtilegast í sjón-
varpinu?
Hilmir: Mér finnst Idol-stjörnu-
leit skemmtilegast því þar eru
allir að syngja.
Gunnhildur Bára: Barnatíminn,
til dæmis Andrés önd.
Hvar eru jólasveinarnir núna?
Hilmir: Á fjöllunum, þeir eru að
elda matinn.
Gunnhildur Bára: Heima hjá
mömmu sinni og pabba, þeir
eru að setja dótið ofan í poka.
Hver myndir þú vilja vera?
Hilmir: Ég myndi vilja vera lögga
og handtaka einhvern bófa.
Gunnhildur Bára: Ég vildi vera
löggukona og taka bófana. ■
FYRIR FEÐUR Flestir foreldrar
hafa lent í því að reyna í örvænt-
ingu að sefa grátandi barn og
þeirri angist sem þetta getur
valdið. Feður geta augljóslega
ekki gripið til þess ráðs sem oft
dugar best, að gefa þeim brjóst,
en hér koma nokkrar ábendingar
sem gætu gagnast þegar snuðið
eða pelinn virka ekki.
• Reynið að komast að orsök
grátsins, hvort það er tanntaka,
hungur, blaut bleia eða annað.
Þetta hljómar næstum of einfalt
en fólk með hágrátandi ungabarn
á öxlinni nær ekki alltaf að hugsa
rökrétt.
• Prófaðu að bjóða litlaputtann
sem snuð. Þetta virkar oft og er
mjög vinsælt. (FRAMHALD NEÐAR Á SÍÐUNNI)
SJÓNVARP OG TÖLVUR
Börn í Bandaríkjunum eyða alltof miklum
tíma við tölvur og sjónvarp að mati upp-
eldisfræðinga.
Bandarísk börn yngri en sex ára:
Tveir tímar á dag við skjáinn
■ Góð ráð
■ Góð ráð
• Ruggaðu barninu. Annaðhvort í
vöggu eða í fanginu. Ruggustóll
getur gert kraftaverk.
• Rifjaðu upp hvað þér fannst
fyndið sem barn. Grettur, asnaleg
hljóð og leikir ná athygli barnsins.
Virkar vel heima en gæti verið
vandræðalegt á kaffihúsi eða í
kjörbúðinni.
• Söngur er alltaf róandi. Ekki er
verra að dansa rólega um með
barnið í fanginu á meðan.
• Réttu móðurinni barnið. Vin-
sælasta ráðið af þeim öllum. Þú
getur þó sagt að þú hafir reynt.
(FRAMHALD)
FJÖR FYRIR KRAKKANA
Síðasta föstudag hvers mán-
aðar er sett upp ævintýraleik-
hús í búðarglugga á Akureyri.
Miðbær Akureyrar:
Ævintýradansleikhús í búðarglugga
HILMIR ÁRNASON OG GUNNHILDUR BÁRA ATLADÓTTIR
Eru á leikskólanum Gullborg.
Hvað finnst þér?
Mömmur stund-
um lengi í búðum